Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1964, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1964, Blaðsíða 14
þrjár aldir í ánauð hjá afkomendum eviópskra innflytjenda í Suður-Afríku. Nú veit allur heimurinn nokkuð um baráttu Alberts Luthulis fyrir frelsi íólks hans og hver sá sauðþrái faraó er, sem hann hefur deilt við. Að vísu tók Verwoerd ekki við em- bætti forsætisráðherra fyrr en síðla árs 1958. En hann hafði áður gegnt embætti innanríkisráðherra í tíu ár, og kynflokkamál þá heyrt undir hann. Hann hafði árum saman verið einn þeura stjórnmálamanna Suður-Afríku, er mest kvað að. Fré því er Suður-Afríku-sambandið var stofnað, 1910, (lýðveldi varð það, þegar því var ekki lengur vært í Brezka samveldinu, 1961), hafa aðeins sex for- sætisráðherrar farið með völd, — ,eða sem svarar jafnaðarlega níu ár hver. — Slíkt er auðvitað algert einsdæmi um lýðræðisríki. Og þeir hafa allir, ef ég man rétt, verið af Búum komnir. En Búar hafa, eins og alkunna er, alila tíð genigið manna lengst í kynflokka- misrétti. Þrír fyrstu forsætisráðherrar Sam- bandsríkisins voru hers'höfðingjar, þeir Botha, Smutz og Herzog, allir hinir mikilhæfustu menn. Smutz var upphafs- maður ríkjandi stjórnmálastefnu þjóð- ernissinna, — flokkseinræðis- og apart- heidstefnu. Fjórði forsætisi-áðherra var Malan, áður prestur í hollenzk- - reformertu kirkjunni, sem fastast held- ur fram útvá'lningarkenningu Kalvíns. Hún hefur ein allra mótniæiendakirkna í Suður-Afríku lagt blessun sína yfir stjórnarfarið, og af þeim orsökum ekki orðið sætt í alkirkjuráðinu, en sagt sig úr því. Næstur á undan Verwoerd í embætti, var Jóhannes Strijdom, öfga- fullur þjóðernissinni. v 9- " erwoerd virðist vera verðuigur arftaki þessara manna og sér þess með- vitandi. Varla er óviðeigandi að enn sé vitnað í Gamla testamentið í sambandi við hann, þar sem segir frá Rahabeam, syni og arftaka Salómons konungs. Rahabeam sagði, er hann tók við völd- um: Hafi faðir minn lagt á yður þungt ok, þá mun ég gera ok yðar enn þyngra! Luthuli skrifar: „Frá Botha hershöfð- inigja til Verwoerds hefur hver nýr forsætisráðherra lagt æ þyngra ok á Afríkumenn. Síðan sambandslögin tóku gildi 1910, hefur hver ríkisstjórnin af annarri eflt vald hinna hvítu þjóðemis- sinna á kostnað hinna, sem eru opinber- lega nefndir lítilsigldir kynf!okkar“. Og enn segir Luthuli: „Af þeim mönn- um, sem farið hafa með stjórn í Suður- Afríku, hefur enginn tekið sér slíkt vald sem Verwoerd, og enginn upphugs- að jafnmörg neikvæð og mannúðarlaus lagaákvæði og hann. Geymist sérstak- lega minning einhvers þeirra einstakl- inga, sem valdir hafa verið að þján- ingum okkar, hlýtur það að verða hann. Mér er ekki unnt að gefa yfirlit um þann sæg aðgreiningarlaga, sem hann er ýmist höfundur að eða hafa orðið til að hans undirlagi" . Sem dæmi um slíka löggjöf nefnir Luthuli sérstaklega ákvæði um vega- bréíaskyldu. Segir hann að Verwoerd hafi að vísu ekki verið frumhöfundur þeirra laga, en hann hafi blásið í þau — sem önnur skyld lög — nýju lífi og aukið þau, svo að þau næðu jafnt til kvenna sem karla. Og ennfremur segir hann: „Það eru ekki aðeins viss svið lífs okkar sem Verwoerd reynir að hafa vald á, heldur allt líf hvers einasta Af'.íkumanns, frá fyrsta degi hans í barnaskóla og til banadægurs". Því til skýringar, að Verwoerd hefur með vegabréfum lagt hlekki aðlgreining- arstefnunnar á konur eigi síður en karla, skal þess getið, sem Luthuli segir um konur kynflokks hans, Bantúa. Þær hafa tekið virkan þátt í andspyrnu- Námumaður að störfum í námu nálægt Preloria. hreyfingunni svo um munaði. Sem dæmi um kvenskörunga nefnir hann, að á síðastliðinni öld hafi kona ein, sem allir skelfdust, farið fyrir miklum her inn í Oranjeríki. 10. stuttu máli er engin leið að geta nema fárra hinna veigamestu af þeim urmul apartheidlaga, sem Luthuli grein- ir frá og segir Verwoerd hafa gætt nýju lífi, gert virk. Lög um þjóðarskráningu frá 1950 flokka landsmenn eftir litarhætti, gera ráð fyrir spjaldskrá með mynd af hverju mannsbarni og nákvæmum upp- lýsingum. Samkvæmt þeim eru hörunds- dökkir menn skyldaðir til að bera jafn- an á sér vegabréf. Lög eru fyrir skiptinigu manna eftir litarhætti á öllum opinberum stöðum, — lög um bann við giftingu og kynmök- um milli hvítra manna og hörunds- dökkra, — lög um heimild yfirvald- anna til að ákveða hvers konar störf hver kynflokkur um sig megi stunda og hver ekki, — lög um kjörgengi og kosningarétt, eða réttara sviptingu hvors tveggja hvað hötrundsdökka menn snertir, — lög er heimila handtöku kornmúnista, en svo eru nefndir flestir, er tala eða skrifa gegn stefnu stjórnar- innar í kynflokkamálum, — lög um ráð- stafanir geign mótspyrnustarfsemi og skemmdarverkum af hálfu andstæðinga þjóðernissinna, — lög er heimila nauð- ungaflutninga heilla þjóðarbrota eð4i ættflofcka. Þannig mætti lengi telja. 11. uthuli skýtur að í ævisögu sinni frásögn um tvær ferðir til útlanda. Hann var kjörinn fulltrúi mótmæl- endakirkna í Suður-Afríku, ásamt fjórum öðrum hörundsdökkum mönn- um og mörgum hvítum, á alþjóðlegt og fjölsótt kristniboðsþing í Madras á Indlandi, 1938. Náin samvera með kristnum leiðtogum frá fjöldamörgum löndum varð honum lærdómsrík og jók honum umbyrðarlyndi og víðsýni. Um þetta ferðalag segir hann: „Ég held 'að- það hafi haft einna sterkust áhrif á mig að sjá þa/r smámynd hnattræns kristindóms. Ég kynntist þar í fyrsta skipti _ árangri kristniboðsskip- unarinnar: Farig út um allan heim og boðið fagnaðarerindið. Það sikýrðist, sem mér var áður óljóst“. Tíu árum síðar fór Luthuli í fyrir- lestraferð til Bandaríkjanna í boði kirkju- og kristniboðsráðs Norður-Ame- ríku. Hann var þar stanzlaust á ferða- lögum í tvo mánuði, alls staðar eftirsótt- ur fyrirlesari og prédikari. Hvar sem hann kom talaði hann fyrir miklum mannfjölda 0|g svaraði ótal spurningum varðandi stjórnmál og kirkjumál í Suð- ur-Afríku. Þrátt fyrir að hann varð var við kynflokkaaðgreiningu í Ameríku, skrifar hann: „Ég kvaddi — eftir tvo mánuði — hálfnauðugur; svo marga vini hafði ég eignazt og svo upplífgandi fannst mér að umgangast hvíta menn með eðlilegum hætti — án þess að háski hlytist af“. v „ T ið viljum koma í veg fyrir bylt- ingu, sem nú ógnar framtíð þjóðarinnar, meo því að gera hana óþarfa, fram- kvæma hlutverk hennar nú þegar“. Orð eins og þessi lýsa hugsjón og brennandi þrá Alberts Luthulis eftir að kynflokkajafnrétti komist á í Suður- Afríku-lýðveldi, án þess að til blóðugra átaka komi. Hann veit hver vopnavald- ið hefur og á hverjum það mundi bitna fyrst og fremst. Nú höfðu lengi verið starfandi í land- inu — eða síðan 1912 — samtök blökku- manna, er nefndust Afríski þjóð- þingsflokkurinn, — sem var þó ekki stj ói nmálaflokkur í venjulegum skiln- ingi. Hann var tilorðinn eftir fyrirmynd skyldra samtaka, er Mahatma Gandhi hafði komið á meðal 400 þús. plantekru verkamanna í Natal, en þar dvaldi hann 1893 til 1916. Markmið var hið sama: Kynfloikkajafnrétti og bætt kjör, — baráttuaðferð söm: mótspyrna án valdbeitingar, borgaraleg óhlýðni en ekki ofbeldi. Eigi skyldi berjast gegn óréttlæti mieð því að firemja hið mesta óréttlæti — mannvíg. Um svipað leyti og Luthuli kom heim úr ferð sinni til Ameriku, afgreiddu þjóðernissinnar endanleg lög um sér- svæði, eða aðgreininigu bústaða hvítra manna og hörundsdökkra í landinu. En það jafngilti sviptingu eignarréttar fyrir þá síðarnefndu. Blökkumenn sama ættflokks skyldu flytja til af- markaðra svæða, búa útaf fyrir sig. Svo frekleg kúgun þótti þetta, að talið var að lítið mundi stoða að gera út fulltrúa á fund stjórnarvaldanna, eða láta orðsendingu nægja, líkt og oft áður. Afríski þjóðþinigsflofckurinn beitti sér því fyrir að tefja framkvæmd laig- anna með verkföllum, kröfugöngum og ýmsu öðru móti. Árið 1952, þegaf þessi átök stóðu sem hæst, var Luthuili kjörirm forseti Afr- íska þjóðþingsflO'kksins. Margir ágæt- ir menn höfðu gegnt því ábyrgðarmikla embætti á undan honum. Þeirra á með- al þrír læknar, sem allir höfðu fengið menntun sína í Bandaríkjunum. Ferða- bókahöfundurinn frægi, John Gunther, átti samtal við þá alla 1953 — og þá líka Luthuli — oig ber hann mikið lof á þá. Skömmu eftir forsetakjörið settu yfir- völdin Luthuli tvo kosti: Segja að fullu skilið við Þjóðþingsflokkinn eða segja af sér höfðingjaembættinu. Hann svaraði því til, að afrískur höfðingi er fyrst og fremst leiðtogi ættflokks síns, því næst eru skyldur við yfirvöld lands- ins. Þetta þótti ek’ki bera vitni um næga undirgefni. Hann var dæmdur frá embætti og auk þess til tveggja ára heimilisvarðhalds eða einangrunar, í Groutville. Þó voru- ekki bannaðar heimsóknir til hans. II 13, Um þessar mundir var sem oftar stórfurðuleigt kapphlaup milli hrotta- legra framkvæmda yfirvaldanna á að- greiningarlöggjöfinni annars vegar, og viðbrögðum blökkumanna hins vegar. Afrísiki þjóðþingsflokkurinn beitti sér óspart fyrir, að ríkisvaldinu yrði gert sem erfiðast fyrir með hverja til- raun í misréttisátt, með fjöldafunda- samþykktum, verkföllum og kröfu- göngum. Luthuli átti frumkvæði að því, að hætt yrði að kaupa vörur fram- leiddar í landinu sjálfu, að svo miklu leyti sem það reyndist gerlegt. Það hafði mikil áhrif. Þannig settu mörg erlend ríki viðskiptabann á Suður- Afríku-lýðveldi. Sem dæmi um andspyrnu má enn- fremur geta þess, að mynduð voru sam- tök um ag brjóta opinskátt og á áber- andi hátt reglugerðir um aðgreiningu manna eftir litarhætti á opinberum stöðum, svo sem í hverskonar farar- tækjum, almenningsbókasöfnum, gisti- og veitingahúsum, sjúkrahúsum og bönkum, járnbrautarstöðvum og bið- stofum. Tugþúsundir manna létu hinar rólegustu lögregluna fangelsa sig. Og blökkumenn héldu áfram að troða sér alls staðar að, þrátt fyrir að refsingar fyrir slík brot höfðu verið þyngdar. Einna óvinsælust höfðu lög um vega- bréfasikyldu verið. Blökkumenn voru skyldaðir til að bera alltaf á sér per- sónuskilríki með mynd og nafni, upp- lýsingar um ættflokk, heimili og vinnu- stað. Lögregluríki gat ekfci gengið öllu lengra • 1 að svipta milljónir manna persónufrelsi. Luthuli skirrðist við að brjóta lög, með því að honum var sem stjórnanda andspyrnuhreyfingarinnar nauðsynlegt að vera frjáls ferða. En þessi lög varð hann að brjóta og það á sam mest áber- andi hátt.- Það skeði á útifundi tugþús- unda blökkumanna, þar sem einniig mikill fjöldi hvitra marrna var saman kominn og blaðamenn víðsvegar að. Þar og þá brenndi Luthuli vegabréf sitt í augsýn allra og hvatti aðra til að fara að dæmi sínu. Vegna þessa kröfðust yfirvöldin af honum gagngers uppgjörs. Hann var kærður og dæmdur í eins árs varðhald fyrir lagabrot, að viðbættu hálfu ári fyrir að hafa brennt vegaibréf sitt. Af öðrum kæruatriðum var hann sýknaður, — en þau voru 102! ____ 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. tölublað 1964

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.