Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1964, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1964, Page 1
30. tbl. 4. október 1964 — 39. árg. I 7 Harry S. Truman: Fyrstu áttatíu árin mín l* jálfsagt er búið að spyrja raig hundrað sinnum: „Hvernig er að vera áttræður?“ Þetta er nú bjánaleg spurning, fyrst og fremst vegna þess að ellin kemur svo hægt og bítandi. Og ég er feginn því, að hún skuli hafa verið heldur hæg- fara hjá mér, svo að ég get með sanni sagt, að mér finnist ég ekkert eldri nú en um sextugt. Ég hef notið góðrar heilsu og líkamsburða, o.g ég hef víst einhvern- tíma sagt, að ég muni sem bezt ná níræðisaldri. Móðir mín varð 94 ára, og há var ég búinn að vera forseti í meira er tvö ár. Amma mín, Young, varð 91 érs, og frænku átti ég, sem varð 97. Hinsvegar dó faðir minn tiltölu'.ega ungur — 64 ára — og afar mínir báðir komust ekki nema hátt á áttræðisaldur. Þannig er ég orðinn sjötti elzti fyrr- ■verandi Bandaríkjaforseti — Adams- arnir báðir, Jefferson, Madison og Hoover hafa orðið eldri en ég er nú (þó ætti ég að fara fram úr John Quincey Adams, eftir sex mánuði). í sambandi við þetta afrek, ef afrek skyidi kalla, hef ég verið heiðraður, iangt út yfir það, sem nokkur maður gæti með nokkurri sanngirni ætlazt til. Það hófst nú 1. maí, heilli viku fyrir afmælið mitt, þegar forustu'menn bænda úr öllu landinu buðu mér til Ííádegisverðar í Mormónahöllinni hér í heimaborg minni, Independence, og kváðust vilja þakka mér Fjögurra-liða rcttarbótina og svo allt annað, sem stjórn mín hefði gert fyrir bændastétt- ina, en allt og sumt sem við gerðum var að gera ráðstafanir til þess að bú- vöruverð lækkaði ekki eftir ófriðinn, en það gerir það _ venjulega þegar óíriði lýkur. í sömu viku tóku vinir mír.ir í Kansas City sig til og héldu inikla, árlega afmælislveizlu sína fyrir nnig í Muehlebaeh-hótelinu. Þeir höfðu meira að segja matseðil á ellefu tungu- málum, og sungu heiðurskvæði til mdn - og eitt þeirra hafði tíu ára telpa ort. Þ ví næst fór ég til Washington. Og vikan, sem þar tók við, varð erfið- itri en kosningabaráttan 1948. Ég var á eífeildum þeytingi, myrkranna milli, í tvo sólarhringa. Blaðamannaféiagið bauð mér að halda ræðu — sem ég svo fiutti — að mestu upp úr mér. Hæsti- réttur, sem ég hafði skipað fjóra dóm- ara í (af þeim er Tom Clark einn uppi- standandi), hélt mér hádegisverðar- boð í matsal sínum. Svo var kvöld- veizla hjá fyrrverandi samþingsmönn- um mínum úr ö'ldungadeildinni í varnarmáianefndinni, en ■ hún var stofnun, sem ég hef alltaf verið hreyk- inn af — í styrjöldinni sparaði hún um 15 milljarða dala, sem annars hefðu farið í súginn. Johnson forseti tók þátt í þessu borðhaldi, auk um það bil 300 annarra góðra vina minna. En merkasti viðburðurinn var samt sá að koma aftur í öldungadeildina og hlu.sta á öill þau fögru orð, seim 27 öld- ungadeildarmenn — af báðum flokkum — höfðu um mig að segja. Þegar þeir höfðu lokið máli sínu, fannst mér bein- línis ég engin orð eiga til — og þeir dagar eru fáir þegar ég verð mállaus. Samkvæmt þingtíðindunum 8. maí, hljóðar ræða mín þannig: „Þakka ykk- ur fyrir. Jafnvel þótt ég ætti marga gleðiiega afmælisdaga óliifaða, mun engi'nn þeirra jafnast við þennan“. Þessi heimsókn mín í öldungadeild- ina var að einu leyti sögulegur við- burður. Þetta var í fyrsta sinn sem fyrrverandi forseti hafði komið fram sem virkur þátttakandi í öldungadeild- inni, samkvæmt þingsátyktun, sem san.þykkt var -í fyrra. Ég hafði einu sinni áður talað í öldungadeildinni — 29. apríl 1960 — en í það skiptið varð, formsins vegna, að g.era þinghlé. Ég vildi, að ég hefði í þetta sinn getað sagt eitthvað, sem hefði getað geymzt í sögunni. En það gat ég hvorki sem öldungadeildarmaður né forseti. Til þess var ég of hrærður. Mr egar ég var um sjötugt, spurði biaðamaður mig, hvort ég ætiaði að bjóða mig fram aftur, og ég sagði hon- um að það ætlaði ég að gera þegar ég yrði níræður. Vitanlega var ég að gera að gamni mínu. En einhver bjáninn fór að reikna og fann það út, að þegar ég verð níræður, verða engar kosningar. Jafnvel fyrir 1952 kom ég mér niður á því, að átta ár — og svo þessi þriggja mánoða varaforsetatími — yrði nóg og mér hefur aldrei dottið í hug að breyta þc-irri skoðun. Ég hefði getað farið af stað aftur, þrátt fyrir 22. breytinguna — sem er önnur tveggja slæmra breyt- inga á stjórnarskránni (en hin er sú 18.) — en þar er valdatími forseta tak- markaður við tvö kjörtímabil. Sú 22. kom fram á hinu illræmda 80. þingi og var barin í gegn þrátt fyrir neitun m'.na, en kom ekki til framkvæmda fyrr en ég var farinn úr emibætti. Og svo neyðarlega vildi til, að þetta 80. þing, sem Repúblíkanar réðu, lamaði þeirra eigin forseta, Eisenhower. Hann . hefði sennilega unnið þriðju kosningarnar. Það er erfitt að sigra Iþjóðiietju. Tökum til dæmis Grant. Hann dró sig í hlé 1876, eftir tvö tíma- bil í Hvíta húsinu, en lét svo bjóða sig fram á nýjan leik, 1880. Hann komst r.ú ekki að sem frambjóðandi, en við fyrstu atkvæða.greiðsluna fékk hann flesi atk/i'æði. Og hann var versti forseti í okkar sögu. Nýlega var ég spurður um sess minn í sögunni. Blaðamaður einn gróf upp skoðanakönnun með 75 helztu sagnfræðingum, sem birt var í sunnu- dagsblaði New York Times. Sam- kvæmt henni voru mestu forsetarnir — l þessari röð: Linooln, Washington, P'ranklin Roosevelt, Wilson, Jefferson, Jackson, Theodore Roosevelt, Polk og — í níunda sæti: Harry Truman. Ég sagði blaðamanninum, að ég tæki ekk- ert mark á þessari könnun, hvað síðari tíma sögu snerti; að sagnfræðingarnir væru álíka ófróðir og könnunarmennirn ir J 948, sem sögðu , að ég mundi ekki sigra það ár. Enginn getur metið rétt stjórn mína fyrr en 30 árum eftir að ég er allur, og nú ætla ég að lifa 10 ár enn, svo að þelta getur orðið löng bið. Og að minnsta kosti er þetta hlutur, sem ég ætla ekki að gera mér rellu út af. Svo vil'l til, að ég te’!, að Washington eigi að komast efstur á blaði. Hann kom á fót nýrri stjórn og það kostaði margs- konur erfiðleika. Lincoln kom fram á sjónarsviðið og bjargaði stjórninni, en ég mundi telja hann á eftir Washing- ton , Alla ævi hef ég verið sæmilega laus við áhyggjur og ef til vill er það frum- skiíyrðið fyrir langlífi. Langt er siðan ég lærði að safna saman staðreyndunj og skynsamlegustu skoðunum og siðan taka ákvörðun mína. Og þegar hún var tekin, hafði ég engar á'hyggjur af henni eftii það. Hefði ég tekið skakka álykt- un, tók ég bara aðra, til leiðréttingar hinni fyrri. En það er hægt að nöldra sjálfan sig í gröfina með iðrun og efa- semdum um sjálfan sig. Ég hef verið einhver lakasti viðskiptavinur svefn- piliuframleiðenda og hef alltaf iagt áherzlu á nægilegan svefn og fuil- komna afslöppun éður en ég átti að taka mikilvæga ákvörðun. A forsetaárum mínum varð ég að taka margar erfiðar ákvarðanir sem é.g vissi, að mundu særa fjölda fólks. En ég hikaði aldrei við það, úr því ég á annað borð hafði ailar staðreyndir fynr framan mig. Og ég reyndi aidrei að sníkja mér vinsældir, hvorki hjá blööurn né skoðanakannendum. Ég hef talið, að forseti, sem lætur vinsælda- sjónarmiðið ráða meiru en réttlætis- sjcnarmiðið, sé að stefna sér í glötun. Ef forsetinn hafi á réttu að standa, geti hann náð til almennings og sann- íærl hann, jafnvel þótt hann geti átt von á miklum óvinsældum í fyrstunni. Erfiðasta ákvörðunin, sem kom til rninna kasta, var sú að fara í Kóreu- styrjöldina. Það hefur aldrei hvarfiað að mér, að ég hafi ekki farið rétt að, og í þessu tilviki virðist það aimanna- rómur, að við yrðum að gera þetta. Marshallhjálpin, Fjögurra-liða áætiun- in, Loftbrúin til Berlínar, NATO og kjarnorkusprengjan — allt þetta vakti andstöðu í mismunandi mæli, annað- hvort fyrirfram eða eftir á, en allt öðlaðist það fylgi, eins og ég vissi fyrir fram. Sú ákvörðun, sem mesta andstöðu vakti og mesta var tilfinningamálið, var þegar ég taldi það nauðsynlegt, 11. apríi 1951, að leysa Douglas Mac Arthur hershöfðinga frá embætti hans í Auslurlöndum. Það er svo sem enginn Framhald á bls. 4 Hairy S. Truuian (ræður unglingur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.