Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1964, Page 2
SVIP
MVND
Nálægt hliði á okkurgulum
múrnum kringum konungs-
h,öll Kambódju er lítið skilti með
enskri áletrun, þar sem segir: „Gæt
ið yðar á hrekkjótta fílnum“. Til-
elni þessarar viðvörunar er gamall
og þunglamalegur fíll með blóð-
blaupin augu og brotinn rana, sem
er hlekkjaður við lítið skemmtihús
rctt hjá hliðinu. Einhver húðsjúk-
dómur hefur gert hann ljósrauðan
á lit, og þess vegna er hann álitinn
heilagur í Kambódju, þar sem fíll-
inn er þjóðartákn. Á sínum tíma
var honum leyft að hlaupa frjáls-
lega um velhirta hallargarðana, en
svo urðu nokkur slys — hann
hvoltdi m.a. stórum bíl fullum af
kínverskum tónlistarmönnum og
kastaði óheppnum gesti yfir múr-
inn.
Þegar skrautlega búinn umsjónarmað
ur sýnir gestum konungshöllina, á
hann til að segja við þá: „Verið ekki
hræddir, herrar mínir. Þegar þið sjá-
ið íílinn klóra sér og heyrið hann reka
upp rokur, verið þá ekki hrseddir —
verið ekki hræddir við að hlaupa.“
Nú eru hafðar nánar gætur á gamla
fílnum. Þó hann hafi í engu misst helgi
sína, þykir tryggara að vera við öllu
búinn. Á síðustu árum hafa Kambódju-
menn orðið að laga sig eftir kröfum
veruleikans með svipuðu móti á öðr-
um sviðum — án þess þó að eyða með
öllu þeim draumkynjaða blæ sem hvíl-
ir yfir þessu litla en mikilvæga ríki í
Suðaustur-Asíu.
F yrir tæpu ári, eða í nóvember síð
astliðnum, hafnaði valdhafinn í Kam-
bód.iu, Nóródom Síhanouk prins, efna-
hags- og hernaðaraðstoð frá Banda-
ríkjur.um, sem nam 30 milljónum doll-
ara árlega, og lét jafnframt að því
liggja, að hann æskti nánara samneytis
við Kínverja.
Síðan hefur stefna hans og fram-
komr vaidið talsverðum heilabrotum
vestat hafs. Hann hefur hótað að slíta
stjórnmálasambandí við Bandaríkin,
en síðan dregið þá hótun til baka. Hann
hefur stungið upp á fjórveldaráðstefnu
um hlutleysi Kambódju, sem yrði inn-
gangui að stórri ráðstefnu um Suð-
austur-Asíu, en siðan dregið þá uppá-
stungu tii baka. Hann hefur fallizt á
tvíveldaráðstefnu um Suður-Víetnam,
en síðan skipt um skoðun. Hann hefur
lýst því yfir, að hann beri engan kala
til .Bandaríkjanna, og samt látið óátald-
ar árásir stúdenta, sem að jafnaði eru
heldur friðsamir bar í landi, á sendi-
ráð Bandaríkjanna ag Bretlands í Pnom
penh. Ekki er enn fyliilega ljóst hvað
olli þessum árásum, hvort þaer voru
skipulagðar af stjórna ívöldunum eða
hvort stúdentarnir smituðust svo af
reiðiköstum prinsins, að þeir ákváðu að
láta til -karar skríða sjálfir. Hann hef-
ur nckkrum sinnum sett Bandaríkjun-
um úrslitakosti um að verða við kröfum
síni'm, en síðan fallið frá þeim.
í sumar bað hanr. um bjálp Sam-
einuðu þjóðanna til að kotria í veg fy.r-
ir áiekstra á landamærum Kambódju
og Suður-Víetnams. En þegar rann-
sóknarnefnd Öryggisráðsins laigði til, að
hafður yrði vörður frá Sameinuðu þjóð-
unum við landamærin, féllst prinsinn
ekki á það, þar sem nefndin hafði i
skýrslu sinni lagt til að Kambódja tæki
upp stjórnmálasamband við Suður-Ví-
etnam Hann kvaðst hafa vænzt þess,
að Suður-Víetnam yrði stimplað árás-
araðili. Ekki alls fyrir löngu lét hann
þau orð falia, að ef Bandaríkin biðu
lægra hlut í Suður-Víetnam, ætti hann
von L því, að í næstu heimsókn sinni
til Peking yrði sér heilsað með skipun-
inni „Síhanouk, krjúptu á kné!“
A ð Norður-Víetnam fráteknu er
Kambódja minnsta ríkið að flatarmáli
í Suð&ustur-Asíu. íbúafjöldinn er kring
um 5 miiljónir. Aðeins Laos er fámenn-
ara. En Kambódja hefur mikla hernað-
arlege þýðingu. Landið liggur milli Tha
ílands og Suður-Víetnams, tveggja
heztu sam.herja Bandaríkjamanna á
þessu svæði. Kambódja er að mörgu
leyti unaðslegt land. Höfuðborgin,
Pnompenh, stendur á bökkum hins
mikla Mekong-fljóts og er sambland af
austurlenzkum ai /intýraheimi og vest-
rænum viðskiptahverfum.
Landið er frjósamt. Regn er nœgilegt
til að framleiða tvær uppskerur af hris-
grjónum árlega — eða jafnvel þrjár ef
íbúarnir kærðu sig um að leggja svo
hart að sér. í vötnum landsins og sjón-
um við ströndina er fiskisæld meiri en
cíðast hvar annars staðar í heiminum.
Amerískt korn er ræktað þar með mjög
góðum árangri. Sama er að segja um
gúm.mí og timbur. Á venjulegu ári er
landið fyllilega sjálfbirgt og getur flutt
út 1í ndbúnað-arafurðir fyrir rúmar 50
milljónir dollara árlega. Um 5% íbú-
anna, mestmegnis í Pnompenh, haifa lif-
að hljóðlátu lífi allsnægta og munaðar.
Hin 95% lifa einföldu og nægjusömu
lífi.
Kambódjumenn rekja ættir sínar til
hins sögufræiga Khmer-heimsve dis, sem
stóð nieð mestum blóma á 14. öld. Með-
al iandsmanna eru einnig rúmir 400.000
Víeliiomar og 300.000 Kínverjar. Nálega
allir játa hinar blíðu kenningar Búddha
trúar, sem er ríkistrú. Eins og Síhan-
ouk segir stundum sjálfur, er þjóð hans
yfirleitt ánægð, gæf og glaðlynd, og
helzta ósk hennar í stjórnmálum er
að iá að vera í friði.
IVóródom Síhanouk er 41 árs gam-
all og ákaflega hörundsár. Hainn er
maður einstaklega fjölhæfur ag gæddur
frábærri lífsorku. Ekkert sem máli skipt
ir á sér stað í Kambódju án beinnar um-
sjónar hans.
Svc að segja í hverri viku fer prins-
inn nokkrum sinnum út á landsbyggð-
ina í sérstakri þyrlu, kemur við í 10-
15 þorpum og ræðir við íbúana. Hann
talar í útvarpið nokkrum sinnum í viku
hveiri og ræðir þá eitthvert þeirra
morgu mála, sem hann telur mest að-
katlandi. Hann á ótrúlega auðvelt með
að komast í samband við þegna sína,
ræðir við bændurna á myndríku alþýðu
máli sem þeir kunna vel að meta. Hann
talar auk móðurmálsins reiprennandi
frönsku og góða ensku. Andlit hans er
drengjalegt og ákaflega hreyfanlegt,
íöddir. mjó og hástemmd.
Vi.Id sitt yfir Kambódju vanrn prins-
inn eftir lýðræiðislegum leiðum, en það
er algert — og um fyrirsjáanleiga fram-
tíð tryggt.
IVambódja var enn frönsk nýlenda
árið 1941, þegar Síhanouk, 18 ára gam-
all, var kjörinn af Vichy-stjórninni til
að setjast í hásæti landsins. Ný stjórn-
arskrá, sem Frakkar lögðu fram árið
3949, tryggði honum áfra-mihaldandi
konungj/ald og veitti landinu takmark-
aða sjálfstjórn með þingi sem fór með
vald í innanlandsmálum.
Síhanouk fannst stjórnarskráin
hvorki fá sér í hendur völdin sem hann
æskti né heldur veita sér færi á að
afla sér persónulegs fylgis meðal þjóð-
arinrar, þar sem konunigurinn var haf-
inti yfir flokka oig stjórnmál. Árið 1955,
2 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
tveimur árum eftir að Kambódja varð
sjáifstætt ríki, lagði hann niður völd og
fékk þau I hendur föður síndAi, NóM-
dom Súramarit. Síðan stofnaði hann.
„Sangkum Reastr Níjum“ eða „Sam-
fylkir.gu sósíalista" óg hóf að ferðast
um landið til að vinna séý fylgi.
I kosningunum þetta sama ár vann
flokkur hans öll þingsætin, 91 að tölu,
og SíhanC'Uk varð forsætisráðherra.
Þremur árum síðar vann flokkurinn
aftur öll sæ-tin á þjóðþinginu. Árið 1962
þegar síðustu kosningar fóru fra.m,
Puðu engir aðrir flokkar fram.
Þó Síhanouk hafi ekki opinberlega gert
stjóiriarandstöðuna útlæga, hefur hann
ekki örvað hana. Hinn vinstrisinnaði
Lýðrreðisflokkur, sem ein-u sinni hafði
rr.eirih'uta á þingi, hefur veslazt upp.
Að því er varðar kom.múnista, hetur
prinsinn stundum handtekið leiðtoga
þeirra, og haft þá í haldi, þangað til
þeir gátu, með hans eigin orðum, „virt
þjóðlega hagsmuni og hina fullkomlega
óháðu 'h.lutleysisstefnu Kambódju“.
Koi'nmúnista'floickurinn er að heita má
úr sögunni.
£r egar faðir Síhanouks lézt 1960,
ákvaö hann að setjast ekki aftur I há-
sætið. í stað þess lagði hann til, aS
stjórnarskránni yrði breytt með þeim
hætti, að þjóðhöfðinginn skyldi vera
þjóðkjörinn. Þetta var að sjálfsöigðu
samþykkt, og í þjóðaratkvæðinu var
Sihanouk kosinn í embættið með yfir-
gnæfandi meirihluta. Þar sem hann er
adsráðandi á þjóðþinginu, eru í reynd-
mni engin höft á vaidi hans — enda
fer enginn af þegnum hans opinberlega
fram á slík höft.
Auk þess sem Síhanouk er pólitískur
leiðtogi þjóðar sinnar, leggur hann hart
að sér við að leiða hana í félagslífi,
menningarefnum og listum. Hann er
einn helzti íþróttamaður Kambódju, og
hefur sú viðleitni hans tvöfaldan til-
gang: Hún gefur æskulýð landsins for-
dæmi en prinsinum er mjög umhugað
um að vekja samkeppnisanda með þtöð
sinni, og hún hedur honum frá offitu.
Síhanoúk er stuttur og þéttvaxinn mað-
ur og á í sífelldu stríði við þunga sinn
— fer oft í matarkúra sem gera hon-
um og fjölskyldu hans lífið leitt.
Sitianouk hefur verið kvæntur fi.mm
„opinberum" eiginkonum og getið við
þeim 14 börn. Af þeim eru 13 á lífi og
eiga sum þeirra afkvæmi, þannig að
prinsinn er löngu orðinn afi. Núver-
andi kona hans, Monique, er án efa
ein íegursta og þokkafylista kona sem
funclin verður í svo virðulegri tignar-
stöð'u.
Þegar Síhanouk lagði niður koniungs-
vald, fluttist hann úr höllinni í opin-
beran bústað sem hann hafði reist
þar skammt frá. Þetta er tiltölulega
einföld nútímabygging og stendur bak
við eirifalda girðingu. Ibúðin er lítil
og búin sundurleitum húsgögnum
frá Frakklandi, Bar.daríkjunum og Suð-
ur-Víetnam, svo nokkur lönd séu nefnd.
Á loðinni er einnig opinber veizlusal-
ur ásúmt austurlenzku leikhúsi, körfu-
knalt’eiksvölium, handknattleiksvöllum,
knattspyrnuvelli og lítilli sundlaug.
Handan við götuna eru nokkur önnur
litil hús. í einu þeirra býr Monique og
Framhald á bls. 14
Utgeíandl: H.±. Arvakur. Reykjavrk.
Framkv.stJ.: Slgfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Viaur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristtnsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6. Simi 22480.
30. tbl. 1964