Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1964, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1964, Page 12
íslenzkir ættliBir erlendis — 4. grein Frá Jóni Eiríkssyni, koníer- ensráði (1728-1787) Eftir Sigfús M. Jolrmsen, fyrrv. bæjarfógeta J ón Eiríksson var fæddur 31. ág. 1728 sennilega fremur en 1729, er sum- ir telja, að Skálafelli, austasta bænum í hinni svipmiklu, fögru, fjöllum krýndu Suðursveit í Austur-Skaptafellssýslu. Foreldrar hans voru, Eiríkur Jónsson, Jónssonar bónda Sigmundssonar á Hnappavöllum í Öræifum, og kona Ei- ríks Steinunn Jónsdóttir, Vigfússonar ríkisbónda á Hofi í Öræfum. Kona Jóns á Hnappavöllum var Anna Jónsdóttir Þórarinssonar á Heinabergi á Mýrum í A.-Skaftafellssýslu. Snemma bar á óvenjumiklum náms- hæfileikum hjá Jóni Eiríkssyni svo að af alþýðu manna var hann talinn undra- barn íýrir gáfur sínar. Hann var fermd- ur upp á kristin fræði á 9. aldursári. Svo var hornan komið til náms til móð- urbróður síns, séra Vigfúsar Jónssonar í Stöð í Stöðvarfirði, er var lærður vel og gott skáld. Jón var 2 yetur (1743—4) í Skálholtsskóla. Þar komst hann í kynní við danska prestinn Ludvig Har- boe, er til landsins kom að tilhlutan stjórnarvalda til að hafa tilsjón með kirkju og skóilamálum. Varð Harboe svo hrifinn af gáfum hins unga skólasveins að hann bauðst til að taka hann að sér og láta hann ganga á skóla. Fór hann með Harboe til Noregs og lauk stúd- entsprófi við Niðarósskóla 1748. Inn- ritaðist síðan við háskólann í Kaup- mannahöfn og lagði fyrst stund á guð- fræði, tók síðan að lesa lögfræði og varð kandidat 1758. Hér er ekki ætlunin að lýsa að neinu ráði hinu fjölþaetta og stórmerka æfi- starfi Jóns Eiríkssonar og þeim mikla frama, er hann hlaut, um þetta geta menn lesið í æfisögu Jóns, er út kom í Kaupmannahöfn 1828 eftir Svein Páls- son lækni. Bókin mun í fárra höndum. Verður hér stiklað á þv íhelzta. Jón Eiríksson komst til æðstu em- bætta í Danmörku, prófessor í lögfræöi, skrifstofustjóri í stjómarráðinu, yfir- dómari í hæstarétti, yfirbókavörður við konungl. bókhlöðuna í Kaupmannaihöfn. Þar hafði verið ólag á mörgu og Jóni bezt treyst til að bæta úr því. Ilann varð meðiimur í danska og norska vís- indafélaginu. Átti sæti í ótal nefndum. Hinni almennu skólanefnd, í fjárhags- og verzlunarnefnd fslands og í nefnd þeirri, er sjá skyldi um sölu eigna kon- ungsverzlunarinnar á íslandi. Hlaut skip un í nefnd þá, er falið var að gjöra tillög ur til hagsbóta fyrir danska bændur. For maður lærdómslistafélagsins, að stofn- un þess hafði hann beitt sér öllum öðr- um frsmur og var útgefandi Félagsrit- anna. Einnig í stjórn Ái-nasafns. Stöð- unni sem kennari danska erfðaprinsins, er honum bauðst færðist hann undan að taka við, sökum þess hve mjög hann var hlaðinn störfum. Sýnir þetta álit- ið á honum. Hann hafnaði doktorsgiráðu í lögum, er hann var flestum betur kom inn að, af þeirri einföldu ástæðu að hann hafði ekki tíma til að sinna ræðu- höldum og öðrum umsvifum, er mót- tökunni fylgdu. Hann var skylduræk- inn svo af bar við öil embættisstörf og svo mikill starfsmaður að annað eins var óþekkt. Ofbauð heilsu sinni með of mikilli vinnu, missti að síðustu svefn og bilaðizt á taugum, starfaði samt til síðasta dags, hlaut vofvejflegan dauð- daga á leið til skrifstofu sinnar. Sum af ritverkum þessa þauliðna rit- höfundar, en nokkur þeirra fjalla um fornfræðileg efni, hafa verið prentuð, en margt í handritum. Hann var hálærð- ur í flestum bókmenntagreinum, talaði helztu mál álfunnar og grísku- og latinu maður og djúpsær vísindamaður. Jón Eiriksson bar fölskvalausa ást í brjósti til föðurlands sins íslands og var eldheitur í baráttu sinni fyrir bætt- um kjörum þess, efnahagslega og stjórn farslega og fékk þar ýmsu umþokað til bóta, sem öðrum hefði eigi tékist, svo áhrifaríkur maður sem hann var meðal danskra stjórnarvalda. Starfið sem harm vann fyrir fósturjörðina verður víst seint fullþakkað. Æfisagan var rituð að tilhlutan Bjarna amtmanns Thorsteinssonar og ritar hann formála. Upp í hann er tekið ágrip úr formála, er Ólafur Ölafeson (Olavsen) prófessor í Kóngsbergi í Nor- egi skrifaði að æfísögu Jóns, sem eigi mun hafa verið fullgerð. Jón Eiríksson hafði og sjálfur samið brot að æfisögu sinni. Beztu menn þjóðarinnar unnu að því að æfisagan kæmi út. í formálanum fyrir æfisögunni segir m.a.: „Hafi nokkur maður af hjarta og sérplægnisdaust elskað sína fósturjörðu, aukið hennar heiður utanlands sem inn- an, með frábærum lærdómi og dugnaði, leitast við að létta og styðja hennar fall- völtu velmegun og án manngreinarálits haldið fram ungum gáfuðum sonum hennar, þá er það víst konferensráð Jón Eiríksson.“ Móðurætt hans er rakin í æfisögunni langt fram eru það kunnar æittir, er koma mjög við Skaftafellssýslur og Austurland, og óþarft að lýsa þeim nánar hér, en föðurættin hins vegar rak- in .niánar. Það er SkaftaféLls- og Hnappa vallaættin gamla í Öræfum, sem tengja iná við Svínafell, ekki sízt, við Svinafell hefir ættin verið kennd upprunalega. Ættir þessar, sem Jón Eirík.^on var kominn af að langfeðgatali, eru marg- samtvinnaðar. Ættfeðurnir hafa setið höfuðbólin í öræfum, héraðinu milli sanda, Breiðársands og Lcmagnúps- sands, svo lengi sem vitað er, við góð efni og rausn, búið vel að sinu og sýnt mikla þrautsegju gagnvart hinum sttríð- andi náttúruöfluim, eldgosum og jökul- hlaupum, sem eyddu löndum þeirra, svo oft horfði til fullkominnar landauðnar. Sögu- og ættfróðir menn telja víst að þetta séu ættir hinna fornu Freysgyðl- inga, þó eigi sé unnt að rekja svo langt með vissu. En svo mörg drög hnígi þar undir, sögulegar staðreyndir, nafnalík- indi ó.fl., að ætt landnámsmanna Freysgyðlingar, sem kenndir eru við Þórð Freygoðða, bróður Brennu-Flosa, komnir af Þorgeiri Þórðarsyni, hafi haldið velli. Hinir fornu Freysgyðlingar sátu á þrean áðurnefndum jörðum, sem gömlu ættimar eru kenndar við og einnig á Hofi, en þar var hof Freysgyðlinga í heiðni. í Svínafelli sat Flosi og þar var fyrr- um eitt hið mesta höfðingjasetur og höf- uðból Freysgyðlinga, niðja Þórðar Freys goða framan úr landnámstíð, en frá því snemma á öldum hafa jökulhlaup gjört þar hin mestu spjöll, brotið landið og umturnað öllu. Svínfellingar kallast þessir ættmenn, Svínafellsættin eldri, yngri ættina með sama nafni hyggja menn komna af henni. Svínafeil var frægt í sögum, þar bjó FIosi og mun hafa sett þar kirkju um árið 1000. Þar fæddist Brand- ur Jónsson, bróðir Orms Svinfellings, biskup að Hólum. Þar var einnig fædd- ur Staða-Ámi biskup Þorláksson, einn hinn atkvæðamesfi biskup í kaþólskum sið. . Bróðir Orms Svinfellings var Þórar- inn faðir þeirra Þorvarðar og Odds Þórarinssona, er mjög koma við sögu. Er gengi Oddaverja tók að hnigna óx veldi Svínfellinga og um miðja 13. öld höfðu þeir nær öll mannaforráð um Austfirðingafjórðung, frá Helkundu- heiði til Arnarstakksheiðar. Kúrkja hefir verið sett að Hofi mjög snemma því sá háttur var hafður á, að úr hofunum væru gerðar kirkjur, en Rauðalækjarkirkja vai-ð brátt höfuð- kirkja þar og þamgað lét Guðrún Kod- beinsdóttir lögsögumanns Flosasonar (Brennu-Flosa) færa föður sinn, er lézt 1071, og grafa upp, en hann var greftr- aður að Kálfafelli í Fljótshverfi. Síðustu bændumir í beinan karllegg frá Þorgeiri Þórðarsyni Freysgoða voru Jón Sigmundsson og Ormur Svínfelling- ur, einhver ágætasti höfðingi á sinni tíð, sonur hans Ormur dó ungur að aldri Jón Eiríksson konferensráð og niðjalaus, 1270. Eftir lát hans eða um það bil, hafa tengslin orðið milli afkomenda hinna eldri Svínafellsættar og þeirrar yngri. Jón Sigmundsson býr um og fyrir miðja 16. öld í Svínafelli móti móður sinni Steinvöru og talið er ncáckuð öruggt, að forfeður hans hafi búið þar fram um 1400. Sumir ættfræð- ingar telja yngri ættina hafa setið þarna miklu lengur fram og nefna Sigmu.nd Ormsson langafa Jóns Sigmundssonar og ætlartengslin orðið um 100 árum áður, þá komin hin gömlu ættarnöfn fram. Tengdir urðu milli Svínfellinga og Oddverja og Ásbirninga í Skaga- firði og annara helztu ætta. Af Svínfellingum fornu fór mikið orð og orðstir þeirra með ágætum. Fram eftir öldum og fram á vora daga hafa greindir og mikilhæfir bændur og af- reksmenn setið að búum sínurn í Öræfa sveit, er voru engir ættlerar, sbr. um- sagnir í gömlum æltartölum. Áberandi er hve margir náðu háum aldri. Sami andinn hefir drottnað með dáð og gjör- ir enn samfara frábærri gestrisni og höfðingsskap. Jón Eiriksson ól aldur sinn í Dan- mörku og jók þar kyn sitt, verður getið ættar frá honum síðar, en fyrst nafn- greindir nokkrir frændur hans í föð- urætt af hinum gamla Öræfastofni. Synir Jóns Sigmundssonar í Skapta- felli voru þrír með vissu, Einar í Skaptafelli afi Einars smiðs er þar bjó, frá honum eru komnir miklir hag- leiksmenn. Jón faðir Sveins í Svínafelli, föður Ásmundar s.st. og Sigurðar prests í Eydölum. Þriðji sonurinn var Einar bóndi á Hnappavöllum, faðir Jóns s.st. föður Einars skólameistara. Sennilega mun Sigmundur ungi á Hnappavöll- um einnig hafa verið sonur Jóns í Skaptafelli, þó eigi tahð alveg víst. Jón Eiríksson og Einar skólameistari voru 1 beinan karilegg komnir af Jóni Sig- mundssyni í Skaptafelli, að þriðja og fjórða að frændsemi fremur en þre- menningar. Að vísu þremenningar í móðurætt Jóns því Steimmn Vigfús- dóttir frá Hoifi amma Einars, var syst- ir Jóns Vigfússonar á Hofi. F rá Einari skólameistara í Skálholtl Jónssyni, er mjög þótti strangur og í- hlutunarsamur, gáfumaður mesti, síðar Skáliholtsráðsmaður og sýslumaður um hríð, er komin merk ætt. Meðal sona hans voru Gísli prestur í Selárdal, er átti Ragnheiði Bogadóttur frá Hrapps- ey. Meðal afkomenda þeirra, Einar Boga son frá Hringsdal og Ólafur kaupmað- ur Jóhannesson á Patreksfirði. ísleifur Einarsson sýslumaður á Geitaskarði, síð ar yfirdómari og etasráð. Sonur hans var Gísli prestur í Kálfholti, faðir séra ísleifs í Arnarbæli, föður Gísla ísleifs- sonar skrifstofustjóra. ísleifur ytfirdóm- ari var lagamaður mikill, hann þótti fastur fyrir. Hann vildi gjöra aðför að Jörundi Hundadagakonungi, og taka hann höndum, en hik var á mörgum. Frá dætrum Einars Jónssonar, voru komnir, Guðlaugur Guðmundsson sýslu- maður og bæjarfógeti á Akureyri og séra ísleifur Einarsson á Stað, tengda- faðir Guðmundar Hannessonar prófess- ors. Þingskörungarnir Benedikt Sveins- son alþingisforseti, sýslumaður og yfir- dómari og Bjarni frá Vogi, cand. mag., alþm. og viðskiptaráðunautur landsins voru af ætt Jóns Sigmundssonar í Skaptafelli. Amma séra Sveins í Sand- felli, föður Benedikts var systir Jóns Eirikssonaæ. Helga Amadóttir að Hofi Þorvarðarsonar, kona séra Jóns Bjarna- sonar, móðir Bjarna Jónssonar og þeirra bræðra, var í karllegg komin atf bróður Einars Jónssonar, skólameistara áðurn. Sveinn alþm. Ólafsson í Firði, Sveinn alþm. Sveinsson í Vestdal, Þorleifur alþm. Jónsson í Hóium, Þorgrímur Þórðarson læknir og alþm. Páll alþm. Þorsteinsson. Sömu ættar frá Sveini Jónssyni Svínafelli. Skáldin Einar Benediktsson, Halldór Kiljan Laxness og Gísli Brynjólfsson, Jóhannes Sveinsson Kjarval list- málari, Lárus Pálsson leikari, Lár- ussonar Pálssonar læknis. Þrír síðast- töldu afkomendur Sveins í Svínafelli. Einnig séra Jón Finnsson, faðir séra Jakobs Jónssonar prests og rithöfundar og Eysteins Jónssonar fyrv. ráðherra. Björn Magnússon prófessor (Eydalaætt yngri), Bjarni Sigurðsson í Hofsnesi, Sig fús Sigfússon þjóðsagnaþulur. Vigfús Árnason frá Hjálmholti, bróðursonur J óns Eiríkssonar, cand, jur. æfisagnarit- ari, stafaði að útgáfu „Hof og Statska- lenderen“ í Kaupmannah. Þeir frændur Jón Ólafsson (stál, Jón) og Jón Ófeigs- son yfirkennari. Sveinn Sveinsson Jóns- sonar forstj. í Völundi h.f. í móðurætt frá Jóni í SkaptafeUi. Jón Bergsson óðalsbóndi og kaupmað- ur á Egilsstöðum og kona hans voru bæði komin af Sveini í Svínafelli, hann í móðurætt föður síns (Eydala- ætf yngri), en hún í föð- urætt frá Sveini og fyrri konu hans. Sigurður Jónsson kaupm. á Seyð- 12 LESBOK morgunblaðsins 30. tbl. 1964

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.