Lesbók Morgunblaðsins - 02.05.1965, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 02.05.1965, Síða 1
fóru hana sjómenn-,. sem > i-áðnir vor«. þar á vertíð, og þessa leið komu lika skreiðarlestirnar vestan af nesinu. Hinn götuslóðinn lá yfir Hólavöll, sunn an við Landakot, og þaðan vestur að Lambastöðum. Þessa leið urðu sóknar- prestar Reykjavíkur að fara meðan þeir áttu heima á Lambastöðum. Þriðja götuslóðann má nefna, sem kallaður var Hlíðarhúsastígur. Hann iá upp úr Grófinni, en náði ekki lengra en að Hlíðarhúsum. Þessar vom þá samgönguleiðir Reykjavíkur fyrir hálfri annarri öld. En þess ber að geta, að þá ferðuðust menn miklu meira á sjó heldur en síðar varð, og fiá öllum verstöðvum og byggðum við Faxaflóa fóru menn á róðrarbát- um sinum til Reykjavikur, ef þeir áttu þangað erindi. w' ir-■ Arni Oía: sögu Reykjavikur Vegleysur og fyrstu vegir Segja má, að nú liggi allir veg- ir á íslandi til Reykjavíkur. Af þeirn tugum þúsunda bíla, sem nú eru hér í landi, eru ekki margir, sem ekki hafa einhvern tíma ekið um götur Reykjavíkur. Fótgangandi Reykvíkingur, sem verður að hugsa um það eitt að forðast hina œðis- gengnu bílaumferð á götunum, gef- ur sér alls ekki tíma til þess að at- huga hvern einstakan bíl sérstak- lega. Fyrir hans augum er þetta ein æðandi benda farartækja, sem hann verður að forðast, ef hann vill halda limum og lífi. ailgjörlega ófært, og varð því að fara sunnan við háholtið, enda þótt það sýnd ist harður melur. Eftir þessum vegi urðu að fara allir þeir sem aetluðu til Reykjavíkur, hvort heldur þeir voru af -Suðurlandi, úr Borgarfirði, að vestan, eða norðan. Lækurinn var oft illur yf- irferðar, en árið 1828 var sett brú á hann, neðan við traðirnar, og þótti það. allmikið og sérstaklega dýrt mannvirki. Tveir götuslóðar lágu um þessar mundir frá Reykjavik vestur á Nes. Annar var hinn svokallaði Götuhúsa- stígur, sem lá þar sem nú er Fisoher- sund og Mjóstræti og beygði þar vest- ur á túnin að Götuhúsum; þaðan lá svo gata vestur eftir, fram hjá Bráð- ræði og yfir Eiðisgranda, og hafði þetta alltaf verið aðalleiðin vestur á Nes, og Arið 1829 kemur hingað nýr stiftamt- maður. L.A. Krieger, og gegndi því em- bætti fram til ársins 1837. Á hans dög- um fer fyrst að verða vart við gatna- gerð í Reykjavik. Þá var farin að mynd ast byggð fyrir austan læk, og einmitt þar má enn í dag sjá merki þess, að Krieger var hér. Þ ess er þá fyrst að geta, að sem stiftamtmaður hafði hann umráð Arn- arhólstúns. Þóttu það eigi litil hlunn- indi. En nú lá þjóðvegurinn eftir tröð- um þvert í gegnum þetta tún. Þótti Krieger það hinn mesti ókostur, enda vseri talsverður áti'oðningur þar vegna þessa. Tók hann þá það til bragðs, að hann lét aka mold í traðirnar og hálf- fylla þær, svo að þær urðu með öllu óíæorar, «n jagði svo fyrir, að br-öjin á læiknum skyldi flutt suður að Bak- arastíg, og þar skyldi þjóðleiðin fram,- vegis vera.. 3eint suður af Konungs- garði, þar sem stiftamtmaður bjó, baíði Knudtzon reist brauðgerðarhús 1834. Var þá sett göngubrú á lækinn niður aí því, svo að Miðbæingar gæti sótt þang- að brauð sín og jafnframt var rudd gata frá læknum upp að brauðgerðarhúsinu og fekk hún þegar nafn af því og var köGluð Bakarastígur, en heitir nú Bankastræti. Þarna skyldi nú þjóðleiðin liggja, og var þetta síðan lengi mesta umferðargata úr Miðbænum. Svo verðum við að bregða okkur of- urlítið lengra aftur í timann. Meðan latínuskólinn var í Skálholti, hlóðu skólapiltar vörðu þar norðan við trað- irnar, sem þeir kölluðu Skólavörðu, og sést grunnur hennar enn. Þegar skól- inn var fluttur til Reykjavíkur og hús reist handa honum á Hólavelli, var það eitthvert fyrsta verk skólasveina að hlaða nýa Skólavörðu. Völdu þeir henni stað gegnt skólanum á Arnarhólsholti, þar sem það var hæst. Þetta var ósköp venjuleg varða, hlaðin úr óhöggnu grjóti, en þó bar mikið á hénni þarna á háholtinu, þar sem ekkert gat skyggt á hana. Svo fluttist skólinn til Bessastaða 1804 og eftir það var enginn til þess að hugsa um vörðuna og halda henni við. Hún iét því á sjá með ári hverju og eftir 30 ár var svo komið, að varðan var horfin, en eftir var stór grjóthrúiga á holtinu, En þá vöktust upp einhver ó- kunn öfl vörðunni tii bjargar. Árið 1834 var hún hlaðin upp að nýu og miklu voldugri en áður. Fer tvennum sögum um hvernig á því stóð. Sumir segja að Krieger stiftamtmaður hafi staðið fyrir þessu, en aðrir segja aS kaupmenn í bænum hafi tekið saman höndum að gera þetta Krieger til heið- urs, og átti varðan nú ekki lengur að heita Skólavarða, heldur ,,Kriegers Minde“. En Skólavörðunafnið var seigt og nýa nafnið festist aldrei við vörðuna. Það sést meðal annars á því, að veg- Framhald á bis. 12 En fari nú svo, að hann hafi tíma til fið staldra við um stund á einhverju götuihorni og horfa á bílana með ■ at- hyg-li, mun hann undrast hvílíkur fjöldi skrásetningarmerkja er á þeim. Og þá mun honum verða það ljóst, að hér eru á ferð bílar úr flestu.m héruðum lands- ins. Það eru ekiki aðeins heimabílar, sem hann þarf að forðast á sínum eigin götum, heldur einnig bílar af öllu Suð- uriandi, öllu Vesturlandi, öllu Norð- urlandi og jafnvel austan af fjörðum. En ef við bregðum okkur nú svo sem 150 ár aftur í tímann, þá var öðruvísi Ihér um að litast. Þá voru að vísu engir biiar til og hesturinn var eini farar- skjótinn. En þá lágu heldur ekki allar leiöir til Reykjavíkur. Þangað iá aðeins ein gata, eí götu skyldi kalla. Fram að þeim tíma var byggð í Reykjavik varla annað en nokkur hús í Kvosinni, hjáleigurnar og fáein tómt- húsbýli í Grjótaþorpinu. Þá var Aðal- stræti eina gatan í bænum. Strandgat- en, sem nú heitir Hafnarstræti, var þá ekki annað en malarkamburinn fyrir framan hús kaupmanna, eins og hann var upphaflega. Annars voru aðeins etígar miili húsa. Á ðalvegurinn, þjóðvegurinn, lá fiustur úr bænum, yfir læikjarósinn, um Arnarhóistraðir og þaðan í ótal hlykkj- i*m norðan í Arnadhólstholtinu og inn fyrir það, og siðan suður með þvi, yfir Brciðamýri og upp á Öskjuhlíð og aust- ur Bústaðaholtið að vaði á Elliðaánutm tindan Ártúnum. Eini kaflinn af þess- um vegi, er sæmilegur gat talizt, voru traðirnar, en siíðan þræddi hann milii fiteina, og í 3reiða.m,ýri voru cuft kaf- hlaup, þegar rigningar gengu. Sjálft Bústaðáholtið hafði og þann ósið að *aÆnfi j sig vatni eins og svamipux og vai

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.