Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 02.05.1965, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 02.05.1965, Qupperneq 10
menningarsjóðsgj'ald en verð- um að greiða 1 kr. eyrir þar sem okkur er gert að gjalda söluskatt einnig af þess- ari krónu. — Þið fáið þó að hækka verð aðgöngumiða að lengri mynd- unum. — Já, það varð að samkomu- lagi við verðlagsstjóra, að hækka mætti verðið um 40% ef fella verður niður sýningu kl. 7 vegna lengdar mynda. Er miðað við að sýningin taki 1:45 klst. Hins vegar höfum við í Gamla bíói aldrei notað okkur þetta samkomulag nema myndin sé a.m.k. 2 klst. Ann- ars vil ég ekki láta hækka verð aðgöngumiða öllu meii-a, heid- ur lækka skattana af skemmt- unum þessum, sem ættu að vera ódýrar skemmtanir fyrir almenning. — Liggur þér nokkuð sér- stakt á hjarta? — Já, mig langar til að skamma dagblöðin fyrir það, hve lítið þau gera af því að skrifa um kvikmyndir og kynna þær myndir, sem verið er að sý'na í bænum hver’u sinni. Þetta er ekki nógu góð þjónusta við almenning, né við okkur bíóeigendur. Það er líka ágætt að mismunandi gæði myndanna komi fram við síik- ar umsagnir, þótt vitaskuld fari ekki nærri alltaf saman smekk Ur almennings og gagnrýnend- anna, ef af aðsókn má ráða. myndunum 11475. — Gamla bíó. — Er Hafliði Halldórsson við? — Augnablik. — Hafliði. — Góðan dag, þetta er hiá Lesbó-k Morgunblaðsins. Hvað er helzt að frétta? — Við vorum að gera nýjan árssamning við Metro Goldwyn Mayer um 40 kvikmyndir. Við börðumst fyrir því að fá lækk- aða leiguna, en hún hækkaði samt um 10%. Það er erfiðara fyrir okkur að greiða leiguna en kollega okkar erlendis, þar sem bíóin eru ekki háð verð- lagseftirliti og miðarnir mun dýrari. — Hvaða myndir eru á næst unni frá M.G.M.? — Bráðlega sýnum við „Hvernig Villta-vestrið var numið“, sem fékk tvenn ósk- ar-verðlaun í fyrra. Hún segir frá landnemafjölskyldum. í að- alhlutverkunum eru John Wayne, Gregory Peck, Debbie Reynolds, Carroll 3aker, Jam- es Stewart og Henry Fonda. Þá er „Ævintýarheimur Grimms-bræðra“, mynd um líf og starf sagnaritaranna frægu, þar sem felld eru inn í 3 ævintýri þeirra. í aðalhlut- verkum eru Lawrence Harvey, Claire Bloom og Karl Böhn. Þá munum við einnig sýna „Sunnudagur í New York“, sem Leikfélag Reykjavíkur sýndi á sviði í fyrra. — En myndir frá öðrum kvikmyndafélögum? — Já, fjölmargar. Helzt mætti nefna „Sweet Bird of Youth“ eftir leikriti Tennessee Williams, með Paul Newman Tvær nýjar plctur. Fyrir nokkru kom á markaðinn ný plata með Fjórtán Fóst- bræðrum. Á þessari plötu þeirra, eins og hinni fyrri, eru átta lagasyrpur, eða alls fjörutíu lög. Þarna ber hæst syrpur eftir Jón Múla Árnason og Sigfús Halldórs son ásamt syrpu úr söng- leiknum My Fair Lady, en þar syngur Elly Vilhjálms með. Hinar fimm lagasyrp- urnar standa saman af gam- alkunnum lögum, en alls er tuttugu og eitt íslenzkt lag á plötunni. Búast má við því, að þessi plata Fjórt- án Fóstbræðra e'~i eftir að verða allt eins vinsæl og og Geraldine Page í aðalhlut- verkunum og Disney-myndina „Sword in the Stone“. Það er teiknimynd, sem hefur gengið óralengi víða um lönd. Disney- myndirnar hafa gengið bezt hjá okkur. — Hvernig hefur aðsóknin verið að undanförnu? — Hún hefur verið heldur dræm í vetur, nema þó að mynd Ósvalds Knudsens, en hana sáu um 20 þúsund manns, margt af því fólk, sem annars fer sjaldan í bíó. — Telur þú að sjónvarpið valdi þessu mjög? — Já, ég er ekki í vafa um það. Sú er einnig reyndin ann arsstaðar, a.m.k. fyrstu árin. Danskir bíóeigendur ætiuðu að fara að loka alveg, en þá lækk uðu yfirvöldin skemmtana- skattinn. í Englandi var hann alveg afnuminn. — Hve mikið greiöið þið í skemmtanaskatt af miðunum? — Skemmtanaskatturinn er 27,5%, en svo eru fleiri skatt- ar. Alls greiðum við í beina skatta 45% af verði hvers miða. Þá innheimtum við einn- ig 1 kr. af hverjum aðgm. í fyrri platan þeirra ,sem náð hefur fádæma vinsældum. Þá kom út fyrir nokkru fjögurra laga plata sungin af Ómari Ragnarssyni, ber hún heitið Ómar Ragnarsson syngur fjögur ný barnaiög. Þarna er á ferðinni sannköll uð barnaplata, en alitof lít- ið hefur verið gefið út af hljómplötum á íslandi, sem sérstaklega eru ætlaðar börnum. Ómar hefur gert textana og eru þeir allir hin ir skemmtilegustu og gæti ég trúað því að fullorðna fólkið hlustaði í laumi þeg- ar börnin setja plötuna hans Ómars á fóninn. essg. Asamt EUy V)th|Á«»n9 oq hllúrnavelt Svavarc O«osl* SMÁSAGAN Framhald af bls. 3. að taka? Ég reyndi að fá heilafrumurn- ar til að starfa af fullum krafti. Loks komst ég þó að þeirri niðurstöðu, að gólfklúturinn væri eina rétta lausnin. Eftir nákvæma rannsókn í eldhúsinu íann ég gólfklútinn og skolpfötuna loks íram i baðherbergi. „ÉG VIL FÁ MJÓLK“, var kallað frá barnaherberginu, meðan ég var að vinda gólfklútinn í síðasta sinn. Ég reis upp og starði sljóum augum fram fyrir mig. Loks áttaði ég mig og gekk að isskápnum, eftir að ég hafði laugað hendur mínar. Nú var það yngsti engillinn. Hún horfði á mig svefndrukknu augnaráði, wuus" —I— en brosti an.gurvært, þegar ég rétti henni glasið. Þegar hún hafði tæmt glas ið, hvarf ég með þau orð á vörum, að mamma og pabbi kæmu bráðum, en þá yrði hún líka að vera sofnuð. Þegar ég var að koma glasinu fyrir, heyrði ég eittihvað ískur líkt og þegar hurð er opnuð. Nú er hún að stelast fram úr, hugs- aði ég og brosti með sjálfum mér. Ég reyndi að gera rödd mína reiði- lega, þegar ég kallaði fram: „Ef þú kemur þér ekki upp í rúm strax, þá flengi ég þig“. „Ertu viss um að þú sért einfær um það?“ svaraði festuleg karlmannsrödd, og í sama bili birtist Knútur af efri hæðinni, brosandi í dyrunum. „Ég hélt að þetta væru krakkarnir", sagði ég vesaldarlega og brosti á móti gleðivana brosi. „Eru þau eitthvað óþekk við þig“? spurði kom.umaður glettníslega. „Nei, nei, þau eru ágæt“, svaraði ég eins sannfærandi og mér var unnt. „Ég ætlaði að fá lánaða eina mjólk- urhyrnu“, mælti Knútur og virti fyrir sér eldhúsgólfið af sýnilegum áhuga. „Já, það ætti að vera í lagi“, svaraði ég og reyndi að beina athygli hans frá gólfinu. Þegar Knútur hafði tekið við hyrn- unni, þakkaði hann fyrir sig og hvarf jafn hljóðlega og hann hafði komið. Það er vist bezt að arka enn einu sinni inn í stofu og gera aðra tilraun til að lesa og hafa það rólegt, eins og systir mín hafði mælt mjög svo vitur- lega. Ég hreiðraði um mig í sófanum og hélt áfram að lesa í reyfaranum, þar sem frá var horfið. Þetta var æsispenn- andi sakamálasaga, og þegar spenning- urinn náði hámarki, fór ég ósjálfrátt að lesa uppihótt: „Hvar íaldirðu penjngana? Þetta er þitt síðasta tækifæri", urraði hann og leit ógnandi á Harry. En hann mælti ekki orð frá vörum. ,,Nú já, þú þegir enn“, sagði Lesiey með iskaldri fyrirlitningu. „Þessi hérna hefur losað um málbein ið á mörgum“, mælti hann lævíslegri röddu og dró sjálfvirka skammbyssu úr brjóstvasanum, miðaði henni á höf- uð fórnarlambsins og mælti með þunga í röddinni .... „ÉG ÞARF AÐ PISSA“. etta stóð nú reyndar ekki í reyf- arsnum. Það var elzti engillinn, sem hafði gripið fram í fyrir söguhetiunni með þessum óvirðulegu orðum. Hann stóð þarna í stofudyrunum og horfði á mig píreygður. „Nú, veiztu ekki hvar baðherbergið er“? rumdi ég. Framhald á bls. 14. |0 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. tbl. 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.