Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Blaðsíða 13
Haraldur J. Hamar
LOFTLEIB
E kkert íslenzkt fyrirtæki rekur
jafnumfangsmikla starfsemi í heimsborg-
inni New York og Loftleiðir. Það fer að
vísu ekki mikið fyrir félaginu innan um
milljónirnar á Manhattan, en í bæki-
6töðvum þess á sjöttu hæð í Inter-
national Buiiding í Roekefeller Center
er mikið unnið og dyggilega, því tak-
markið er, að ekkert sæti sé autt í flug-
vélum félagsins, sem þaðan flytja á
fjórða hundrað farþega á dag yfir há-
ennatímann.
Margt hefur breytzt síðan fyrsta Loft-
leiðavélin, Skymaster DC-4, settist á al-
þjóðaflugvöllinn í New York í ágúst-
mánuði árið 1948. Ekki þótti öllum mik-
ið vit í því fyrirtæki, enda var róður-
ir.n harður fyrstu árin. Afgreiðslumenn-
irnir á flugvellinum höfðu ekki heyrt
nafn félagsins fyrr, hvað þá heldur þús-
tmdirnar og milljónirnar, sem árlega
Ikaupa sér flugfarseðil í þessu stóra
landL
En þegar við gengum inn í skrifstofu
Sigurðar Helgasonar framkvæmdastjóra
félagsins í hjarta Manhattans fyrir nokkr
um vikum fundum við strax, að braut-
ryðjendabragurinn var fyrir löngu horf-
inn í þessum herbúðum.
„Hér hef ég nú verið í fjögur ár“,
sagði hann — „og starfsemin hefur auk-
izt um helming á þeim tíma. Ég hef
enga ástæðu til að ætla, að vöxturinn
haldi ekki áfram. í okkar heimi eykst
ellt og dafnar. Nýir skýjákljúfar þjóta
upp framan við gluggana okkar, Kenn-
édy-flugvöllur er orðinn of lítill, þótt
hann sé glettilega stór — og við verðum
eð lengja flugvélarnar okkar til þéss að
fá rúm fyrir fléiri sæti, fleiri farþega.“
Hér í Bandaríkjunum erum við með
liðlega 100 starfsmenn, tiltölulega fiesta
hér á skrifstofunni og úti á flugvelli.
En í Chicago og í San Francisco höfum
við líka skrifstofur. Alls staðar nóg að
6tarfa.“
„Samvinna okkar við bandarísk stjórn
ervöld hefur verið einstaklega góð. Þau
kunna vel að meta viðleitni okkar til
íþess að gera ferðalög yfir Atlantshaf
édýrari, því að þau standa traustan
vörð um hagsmuni almennings gagnvart
öllum fyrirtækjum, sem selja þjónustu.
Við höfum líka fengið góðan hljóm-
grunn meðal almennings hér í landi,
bæði vegna lágu fargjaldanna — en ekki
síður vegna þess, að Loftleiðir er ekki
ríkisrekið eða styrkt flugfélag eins og
flest eða öll Evrópufélögin, sem hingað
ifljúga. Hér eru þeir, sem standa á eigin
fótum, metnir meira en aðrir.“
„Árangur okkar á markaðnum eykst I
beinu hlutfalli við það fé og þá fyrir-
höfn, sem við leggjum í þetta. En flutn-
ingageta okkar er takmörkuð. Það er
euðvelt að fá inni í bandarískum blöð-
lun, þegar frásagnir um ísland eru ann-
ers vegar, því fólk þekkir ekki mikið
tii landsins — og ísland er forvitnilegt.
Þegar hótelið okkar nýja í Reykjavík
tekur til starfa verðum við reiðubúnir
tii þess að svara hinni miklu eftirspurn
A Sigurður Helgason, framkvæmdastjóri
f Eoftleiða í New York — í skrifstofu
sinni í Rockefeller Center. t
24. desember 1965 -------------------
lagsins — og hefur á sinni könnu allt,
sem sala, sölumennska og auglýsingar
heitir. Hann var í 13 ár hjá SAS og
var því enginn nýgræðingur, þegar
hann réðst til Loftleiða: Hefur ferðazt
um heiminn þveran og endilangan oft
og mörgum sinnum og þekkir banda-
ríska markaðinn þó langtum bezt.
„Fyrir okkur selja sex þúsund ferða-
skrifstofur“, segir hann — „stærstur
hlutinn í Norður-Ameríku, en allmargar
eru þó í Suður-Ameríku, því að þaðan
gætum við fengið mikinn fjölda far-
þega, ef við gerðum eitthvað til þess.
En það er ástæðulaust að dreifa kröft-
unum þangað suður úr því að við getum
auðveldlega fyllt okkar vélar á banda-
ríska markaðnum — og getum meira að
segja ekki svarað eftirspurninni. Við
byggjum okkar sölustarf upp á mjög
hagkvæman hátt og hér starfa langtum
færri miðað við flutningamagnið en hjá
nokkru öðru félagi. Við verjum líka
tiltölulega miklu minna fé í auglýsingar
en önnur sambærileg félög — og fáur.v
samt fleiri farþega en mörg þeirra —
og gætum fengið fleiri, eins og ég sagði
áður.“
„Við leynum því ekki, að okkar vélar
fljúga hægar, síður en svo. Við leggjum
áherzlu á það, en bjóðum líka lægri
fargjöld en allir 18 keppinautar okkar
á flugleiðum til Evrópu. Við flytjum
meira af menntamönnum en öll önnur
flugfélög, því að þeir hafa að jafnaði
léttari pyngju en ýmsir aðrir. Nú erum
við að byrja að selja leiguferðir með
„Sexunum" fyrir alvöru og gerum ráð
fyrir mikilli aukningu á því sviði. ísland
er stöðugt að komast ofar á blaðið hjá
okkur, ekki sízt með tilkomu nýja Loft-
leiðahótelsins — og áhugi fer vaxandi á
íslandsferðum. Eitt bandarískt stórfyrir-
tæki hefur t.d. áhuga á að senda einn
fiugvélarfarm af sölumönnum til stuttr-
ar dvalar á íslandi — og það eru verð-
laun, sem duglegustu sölumenn fyrir-
tækisins fá. Þetta fyrirtæki hefur á und-
anförnum árum sent „verðlaunamenn"
sína um allar trissur — og er byrjað
að leita að nýjum áfangastöðum og lítt
þekktum. Fleiri koma á eftir, því að
þróunin er í þessa átt“.
„Nú erum við að taka upp IBM far-
bókanakerfi, sem á að bæta mjög þjón-
ustu okkar við ferðaskrifstofurnar —
auka hraða og spara tíma. í sumar höf-
um við verið með yfir tuttugu stúlkur
tii þess að taka á móti farmiðapöntun-
um á tveimur vöktum alla sjö daga vik-
unnar — og þær taka við pöntunum
beint frá ferðaskrifstofunum um öll
Bandaríkin, annað hvort á fjarrritara eða
í síma. Já, hér er nóg að starfa — og
það eykst stöðugt“, segir John Louchery
og brettir upp skyrtuermarnar.
Eúmið leyfir ekki að rekja
skemmtileg og fróðleg viðtöl við ýmsa
starfsmenn Loftleiða á þessum stáð, en
viðhorf þeirra og verkefni eru að mörgu
leyti ólík því, sem við þekkjum í Ev-
rópu. Þessi stórmarkaður er ekki keim-
líkur öðrum, hér þarf aðrar aðferðir og
aðra tækni. En grundvallaratriðið er
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 45
langtum betur, því færri hafa komizt til
íslands en vildu yfir hásumarið.“
„Það er mjög mikilvægt fyrir Loftleið-
ir að búa vel um sig í New York,“
heldur Sigurður áfram — „því að hér er
aðalmiðstöð alþjóðlegrar flugstarfsemi
og hingað þurfa flugfélögin að sækja
mikið af upplýsingum og tæknilegri að-
stoð og leiðbeiningum. Við höfum fært
okkur allt slíkt í nyt í ríkum mæli —
það er nauðsynlegt.“
Sigurður Helgason er formaður fs-
lendingafélagsins í.New York, sem ný-
lega átti 25 ára afmæli. Um leið og við
kvöddum hann sagði hann okkur, að
félagar væru á milli 150 og 200 og fúnd-
ir væru jafnan fjölsóttir — bæði af fé-
lagsmönnum og íslendingum, sem eru á
ferð í heimsborginni.
N
X i æst litum við inn til John Louc-
hery, sem er yfirmaður söludeildar fé-