Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Blaðsíða 14
46 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS lamt vinna og aftur vinna — hér, eins og annars staðar — þar sem ætiunin er eð ná góðum árangri. í næstu byggingu í Rockefeller Cent- er, þeirri, sem nefnd er „Franska bygg- ingin“ hafa Loftleiðir söluskrifstofu á götuhæð. Þeir fluttu þarna inn eftir að Castró og kúbanska flugfélagið hans fluttu út — og þarna er íslenzka flug- félagið í hópi 15 annarra flugfélaga, sem öll hafa söluskrifstofu á götuhæð í Rockefeller Center. Hér er útstillt niyndum frá íslandi — og þarna eru geimfararnir við Öskju. Þúsundir manna ganga fram hjá þessum gluggum á degi hverjum — og ekki aðeins borgarbúar á leið til vinnu eða í verzlanir á fimmtu götu, heldur líka ferðamenn í New York. Rockefeller Center er mikið aðdráttar- afl fyrir alla, sem til borgarinnar koma — og þeir aðkomumenn, sem ekki leggja lykkju á leið sína til þess að skoða þetta fræga „Center" hafa ekki séð New York. A þessum slóðum verður aðeins helmingur af sögu Loftleiða í New York til. Hinn helmingurinn er skráður úti á flugvelli þar sem tugir starfsmanna vinna á vöktum allan sólarhringinn og afgreiða flugvélar, sem koma og fara. Svara fyrirspurnum og greiða fyrir far- þegum. Annast alls kyns störf í sam- bandi við afgreiðslu flugvélanna. Frá Manhattan út á Kennedy-flug- völlinn á Long Island er góður hálftíma akstur. Flugvallarsvæðið er heimur út af fyrir sig, mikil umferð og mikill hávaði — fjöldinn allur af mjög nýtízku- legum byggingum og sægur af nýjustu og stærstu þotunum. Á skrifstofu Loftleiða í „International Arrivals Building" ræður Erling Aspe- Allt að G5 flugvirkjar og aðrir starfsmenn Lockheed vinna vlð RR-400 meðan hún stanzar á Kennedy-flugvelli. lund ríkjum. Á hans snærum er farþega- afgreiðslan, deild sú, sem annast flug- áætlanir, allt sem lýtur að mati og drykk fyrir farþegana um borð i vélunum — og svo annast hann þá deild, sem nefnd er „Týnt og fundið“, sennilega ekki vinsæl- óista starfið. Hver dagur er hér annadagur, bæði fyrir Loftleiðamenn sem aðra. Flugvélar lenda og hefja sig til flugs á mínútu fresti, þegar mest er um að vera — og þar eiga Loftleiðir sinn skerf. Erling hefur starfað hjá félaginu þarna vestra í mörg ár, þótt hann hafi enn ekki náð þrítugsaldri hefur hann fengið mikið ábyrgðarstarf. ið hittum ungan mat&vein, sem er ábyrgur fyrir Loftleiða-matnum. Hann er með nokkra kassa af Lindu- súkkulaði í fanginu, því að á hverjum bakka er þessi ágæta, íslenzka vara, sem fólk stingur upp í sig, þegar það er búið með steikina og rauðvínið, hefur borðað ávextina, fengið sér kaffi og koníak----og, teygt úr sér í sætinu og þakkað fyrir matinn. „Chef’s Orchid“ sér um að koma matn- um um borð í flugvélarnar, aðrir sjá um drykkjarföngin og söluvarninginn og allt verður það að gerast samkvæmt „Matseðlarnir í flugvélunum jafnast á við matseðla fínustu og dýrustu veit- ingahúsa í New York og London, því að „lúxus“-farþegarnir þurfa „lúxus“-mat, eins og gefur að skilja," segir Poulos. „Að útbúa mat í farþegaflugvélar nú- tímans er orðið heil vísindagrein. Þetta var fábrotið og einfalt, þegar við vorum að byrja á árunum eftir striðið. En svo er ekki lengur. í framtíðinni munum við afgreiða allan mat frystan í flugvélarnar — og rannsóknarstofur okkar hafa leitt í ljós, að fullkominni máltíð getum við haldið algerlega óskemmdri í þurrís í níu mánuði. Hún missir hvorki bragð né gott útlit: Fyrsta flokks. Og að hita hana upp til framleiðslu tekur ekki nema örfáar mínútur. Þannig verður það í framtíðinni, nánustu framtíð." Þanmig líta þeir út, matsveinarnir, sem þjóna Loftleiðafarþegunum hjá Chef’s Orchid. fgreiðslusalnum deila Loftleiðir með spænska flugfélaginu Iberia — og ef ekki væri jafnrólegt hjá Spánverj- unum og raun ber vitni kæmust Loft- leiðafarþegarnir, sem leggja upp á hverju kvöldi, ekki fyrir í salnum. í fyrstu var hann nógu stór — „ýmsir töldu okkur jafnvel færast of mikið í fang að taka á leigu jafnstóran sal“, seg- ir Erling, „en nú er hann allt of lítill, eins og reyndar öll flughöfnin. Umferð- in hefur gersamlega sprengt allt utan af sér hér löngu áður en þeir fram- sýnustu reiknuðu með. Hér kvarta allir um þrengsli og New York-borg hefur á prjónunum að gera enn einn flugvöllinn tii viðbótar við þá þrjá, sem borgin hefur not af eins og stendur.“ „Okkar vélar RR-400 verða þær stærstu á Norður-Atlantshafsleiðunum í sumar — og þá verður enn þrengra í afgreiðslunni hjá okkur. Þar við bætast svo leiguvélarnar, sem verða mikið á ferðinni í sumar. En sem betur fer verð- ur ekki brottför allra samtímis á kvöld- in. Það er óhugsandi.“ Erling bregður sér ■<neð okkur til „Chef’s Orchid", fyrirtækisins, sem út- býr allan mat í flugvélarnar — og þar hittum við hinn grískættaða Paul Poulos Og fyrir okkur eru bornir gómsætir rétt- ir. Poulos stofnaði fyrirtæki sitt ásamt bróður sínum og föður eftir stríðið og Loftleiðavél var fyrsta erlenda flugvél- in, sem hann afgreiddi matinn í. Þetta var á þeim árum, er hann þvoði sjálfur diskana og gerði yfirleitt allt, sem gera þurfti. Nú er „Chef’s Orchid“ í hópi stærstu fyrirtækja í heimi ó þessu sviði ■— og eldhúsin þeirra, sem eru á nokkr- um stærstu flugvöllum Bandaríkjanna, afgreiða tíu þúsund máltíðir á dag til mikils fjölda flugvéla, bæði bandarískra og annarra. Erling Aspelund, stöðvarstjóri Loftleiða á Kemnedy-flugvelli. áætlun. Enginn vill verða valdur að seinkun brottfarar. u, I m hreinsun og fragtina sér Banda- ríkjamaður, Alfred Shea að nafni, sem á níu ár að baki í þjónustu Loftleiða. Áður vann hann í 10 ár hjá bandaríska félaginu Northwest og er því öllum hnútum kunnugur, enda hafa þeir Loft- leiðamenn notfært sér reynslu og kunn- áttu staðarmanna í miklum mæli. Flest- ir eða allir bandarísku starfsmenn fé- lagsins höfðu að baki langan starfsferil hjá öðrum félögum, þegar þeir gengu í þjónustu Íslendinganna. Þeir kunna 24. desember 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.