Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1966, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1966, Blaðsíða 8
Oscar Clausen Presfasögur: Frá slra Máia-Einari h lér verður sagt nokkuð frá guðs- manni, sem uppi var fyrir tæpum þrem öidum, síra Einari Torfasyni á Stað á Reykjanesi í Barðastrandarsýslu (1682- 1698). Hann hefur sýnilega þjáðst af leiðum kvilla, svokallaðri þrætuástríðu, og er ekki ótíður sjúkleiki, jafnt á guðsþjónum og öðrum mönnum, enda fékk hann auknefnið síra Mála-Einar. — Um hann farást sagnaritum orð á þessa leið: (Sbr. Fræ Sighv. X, 154). „Hann var lagamaður mikill og beitti líka lagaviti sínu oftast árlega í einhverjum klögumálum, stundum fyrir andlegum og stundum fyrir veraldlegum rétti, og stundum hvorutveggja, en ávann oftast lítið. — Hafði mikla kaupverzl- un og auðgaðist mjög að peningum, og fór það betur en prestsverk, þó að hann væri söngmaður góður“. Síra Einar var mikilla ætta og hefur eflaust verið glæsilegur ásýndum. Hann var sonur síra Torfa Snæbjörnssonar á Kirkjubóli í Laugardal, sem var mikill höfðingi, og kominn í ættir fram af merkum mönnum, en kona síra Torfa var Helga dóttir síra Guðmundar pró- fasts á Staðastað, Einarssonar Öldu- hryggjarskálds. Annar sonur síra Torfa var Teitur, sem var hraustmenni mikið og gengu þeir báðir menntaveginn. Eftir að síra Einar hafði lært hér á landi það sem þá var kostur á, þ.e.a.s. útskrifaður úr Skálholtsskóla, fór hann til Kaupmannahafnar og var skráður þar við háskólann í stúdentatölu 1. nóv. 1655, og var Teitur bróðir hans einnig í Kaupmannahöfn um þessar mundir. — Á þessum árum áttu Danir í ófriði við Svía, og var það oft að þessar þjóð- ir bárust á banaspjótum, í þess orðs bókstaflegri merkinu. Á ég þar við, að herir þeirra sóttu hver að öðrum, fótgöngulið vopnuð lagvopnum fóru- á ísum yfir Eyrarsund, þegar frosthörk- ur voru, og sundið lagði. Svona var þetta veturinn 1660, að Karl Gústaf Svíakonungur sótti með hermenn að Kaupmannahöfn og „inntók" eða sigr- aði borgina. >á safnaði Danakonungur liði til varnar borginni, og gengu þeir bræður Einar og Teitur í varnar- liðið og unnu sér þar mikinn heiður fyrir ágæta framgöngu en þó einkum Teitur, sem var annálað karlmenni. Þessarar frækilegu fram- göngu þeirra bræðra naut síra Einar síðar, og var kallað að vera í „kóngs- ins gunst“, eða njóta hans náðar, eins og síðar verður sagt frá. k5 íra Einar var nokkur ár við nám í Kaupmannahöfn, en hefur lík- lega slegið eitthvað slöku við námið vegna hermennskunnar o.fl., og því náði hann ekki að lokum nema litlu prófi við háskólann. Þetta próf, sem þeir kölluðu „attetats" nægði .honum þó til þess, að dómi danska yfirvalda, að geta orðið skólameistari í Skálholti, og heim fór hann til íslands með kon- ungsveitingu fyrir þessu embætti. . En þegar svo til Skálholts kom, vildi hinn hálærði Magister Brynjólfur bisk- up Sveinsson ekki veita Einari móttöku og fela honum skólastjórnina. Honum þótti hann hvorki svo lærður eða „hóg- iyndur“ og stilltur á skapsmunum, sem það embætti „útkrefði", — og svo fylgdu Einari líka ýmsar sögur frá kóngsins Kaupmannahöfn, um vaia- samt framferði hans þar, sem orktar voru um „spottvísur11. — Að öllu þessu athuguðu vildi nú hans herradómur í Skál'holti samt ekki beinlínis hafa veit- ingarbréf hans hátignar Danakonungs að engu, og bauð hann því Einari, að ef hann stæðist Examen (próf) hjá Oddi eldra Eyjólfssyni, síðar presti í Holti undir Eyjafjöllum, sem var einn lærðasti prestur í Skálholtsstifti, skyldi hann afhenda honum skólameistaremb- ættið. En út í það þorði Einar ekki að leggja og gaf skólameistarann upp á bátinn. Hann bað svo Brynjólf biskup að leggja lið að því, að sér yrði veitt sæmilegt brauð þegar slíkt losnaði. Biskup lofaði honum því, til þess að hafa hann af sér og komast hjá árekstri við danska konungsvaldið, en það varð nú samt ekki fyrr en eftir nokkur ár, eða árið 1670, að honum var veittur Staður í Steingrímsfirði. En þegar karl- arnir í Steingrímsfirðinum fréttu að Einar ætti að verða sálusorgari þeirra, var þeim það mjög á móti skapi og mótmæltu því fastlega að taka við hon- um, en Brynjólfur biskup, sem var harður í hom að taka, sinnti því ekki að neinu, og vígði Einar þangað, og næstu 7 árin urðu Steingrímsfirðingar að láta sér nægja þá andlega fæðu, sem síra Einar lét þeim í té. — Á Stað bún- aðist honum vel, en alltaf var hann lítt vinsæll og illþokkaður af sóknarfólk- inu, enda kom þar ýmislegt fyrir síra Einar, sem varð þess valdandi, að hann hélt ekki fullum heiðri sínum, og skal nú sagt frá því. af að var árið 1677, þegar síra Ein- ar hafði verið Staðarprestur í 7 ár, að hann eignaðist son í hórdómi, með tiginni maddömu, Guðrúnu Halldórs- dóttur, sem var ekkja eftir síra Þorleif Einarsson á Stað á Reykjanesi í Barða- strandarsýslu. Drengurinn var skírður Teitur í höfuðið á Teiti föðurbróður sínum. Það var allsögulegt þegar átti að fara að feðra Teit litla. Móðirin harðneitaði að gefa upp hver væri fað- ir drengsins, en síra Einar varði málið um sinn, — fyrst með þögn hennar, og svo með að ljúga faðerninu á annan mann, (Sbr. Præ Sighv. X 153). Síra Einar flækti svo málið á 3 ár með véflum, stórmennsku og kyndugum brögðum, krókum og lagaflækjum, og tókst að koma því svo fyrir, að hann missti ekki hempuna. Á meðan þetta málaþras stóð yfir dó barnið, en síðan tók síra Einar sjálfur konuna til aflausnar, og þóttist með því hafa bundið enda- hnút málsins. En sóknarmenn hans voru ekki alveg að baki dottnir, og alltaf var þeim jafnmikið í nöp við prestinn, og nú kærðu þeir hann fyrir biskupi og af- sögðu að hafa hann fyrir sálusorgara sinn. — Síra Einar bjóst nú við að verða vikið frá embætti og því tók hann það ráð að bregða sér til Kaupmanna- hafnar og leita á náðir konungsins og stjórnarherranna, og fyrir þeirra at- beina ná leiðréttingu máia sinna, og þar tókst honum að fá þá náð hjá kóngi, að mega fá annað brauð, þó að hann missti Stað í Steingrímsfirði. Hann sótti svo um Stað á Reykjanesi árið 1682 og fór þangað, en ekki var hann betur þokkaður þar, og þar lenti hann í miklum galdra-málum á síðustu ár- um sínum, sem nú skal sagt frá. Á Alþingi 1692 leggur sýslumaðurinn í Barðastrandarsýslu, Torfi Jónsson, fram tvo dóma, sem dæmdir höfðu verið í héraði, um gaidraáburð þann, sem Þórunn Einarsdóttir, Arnbjörg Vigfús- dóttir og síra Einar Torfason á Stað, vegna dóttur sinnar og sóknarbarna, höfðu borið á Bárð nokkurn Bjarnason, ungan mann í sóknum síra Einars. Bárði þessum hafði verið dæmdur tylftareiður í héraði, en hafði fallið á honum, þ.e. honum hafði ekki tekizt að fá 12 menn til þess að sverja með sér sakleysi sitt. Lögmennirnir nefndu 12 menn í dóm, til þess að ráða málinu til lykta, og dæmdu þeir, að rétt hefði verið að dæma Barði tylftareiðinn í héraði, þó að hann hafi fallið á honum. — Hér skal getið aS nokkru kæruatriðanna á hendur Bárði, sem koma ljóslega fram á bókun þeirri í gjörðabók Alþingis í málinu (sbr. Alþb. 1692); Bárður kannaðist við, 1. að hvað viðvíkur framburði Þór- unnar Einarsdóttur um að hann hafi leitað sér óvirðingar, þá hafi hann í síðasta málinu fullkomlega játað að svo hafi verið, og lýsing hennar á þeirri athöfn sé sönn. 2. Játar Bárður að hafa gefið Arn- björgu inn hvannarætur, eins og getur um í fyrri dóminum, en þá brá svo við, eftir framburði hennar, að hún fékk „óglaðleika, uppsölu og umbreytingu á sínum geðsmunum", 3. Meðkennir hann, að hann hafi legið í rúminu eins og Arnbjörg hélt fram, og í afleiðingum þess hafi hún fengið „verk fyrir brjóstið og ástrióu til þess að fyrirfara sér í Staðará. 4. Játar hann sig hafa sent Arn- björgu hnífa, eins og dómurinn getur um, — en eftir móttöku þeirra, segist hún hafa fengið „stóra ástríðu til þess að deyða sig á þeim“, þó að annars hafi hún aldrei haft neina ástríðu þó að slíkur voði væri sér nálægur. — Sömu- leiðis hafði Bárður gefið Arnbjörgu inn brennivín, og segir hún að það hafi haft sömu áhrif á sig og hvannaræt- urnar. 5. Er staðfest fyrir réttinum frásögn síra Einars Torfasonar um, að laugar- dagskvöldið fyrir öskudag, hafi kona Bárðar komið heim til Reykhóla og leitað að honum, en það sama kvöld „hafi fyrst fásinna komið á Arnbjörgu svo hún hafi óvizku talað, en Þórunn fengið það stóra áfall með ofboði með fleiru“, sem héraðsdómurinn getur um. 6. Greinir valdsmaður Barðstrend- inga, Magnús Þórðarson, frá samtali sínu við Bárð í smiðjunni á Reykhólum viðvíkjandi galdralærdómi, en þá hafi Bárður svarað til, að þeir sem ætluðu sér að fást við slíkt „yrðu áður þrisvar að spýta niður braúði og víni, og stiga ofan á það, þegar þeir standa upp, en það væri ekki tilvinnandi“. Þetta kvaðst Bárður aldrei hafa gjört og neitaði að þrátta nokkuð um „Brauð og vín“. — Loks játaði Bárður fyrir héraðsdóm- aranum, að hann hafi haft með höndum „Karla-Magnúsar skrif og Buslubæn", og sömuleiðis kveðst hann „í frekasta máta“ hafa lagt sig eftir að læra gald- ur þegar hann var undir Jökli, „þótt sér hefði ei til neinnar framkvæmda hrokkið". Bárður var sjálfur persónulega til staðar fyrir lögréttunni á Alþingi og mun sýslumaðurinn hafa fiutt hann með sér þangað til þess að standa þar fyrir máli sínu, og líklega haft hann í bönd- um, sem hvern annan stórglæpamann. Eflaust hefur Bárður vesalingurinn verið orðinn andlega brotinn og kjark- laus þegar hann stóð frammi fyrir lög- réttunni og játaði sig skýrlega, eins og í alþingisbókinni stendur, sekan á galdraverkum þeim, sem hann var sak- aður um. Þá var nú ekki annað eftir en að dæma Bárð aumingjann og það stóð ekki á því. Þingmennirnir dæmdu hann samkv. framanskráðum áburði, og skyldi hann þola húðlátsrefsingu, þ.e. hýðast, „sem hann frekast kann afstanda eð'a þola eftir tempran og mati vel- nefnds valdsmanns, Torfa Jónssonar, hér á Öxárþingi, að fyrstu hentugleik- um“. Einnig skyldi þessi „drengur“ Bárður Bjarnason, burt víkja úr syðra hluta Barðastrandarsýslu, „og þar ekki framvegis vera, né sér til heimilis halda, svo ei stærri vandræði né ófrið- ur af hljótist“. — Síðan var refsingin lögð á Bárð 6. júlí að öllum lögréttu- mönnum áhorfandi, (sbr. Alþb. 1692 X 360) eftir „tempran“ og mati valds- mannsins, en það vill segja, að hann var hýddur allt hvað hann þoldi, án þess að missa meðvitund. — En hvað Framhald á bls. 10. 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS- 3. júií 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.