Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1966, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1966, Blaðsíða 12
FANGI Frarwhald af bls. 10. málfars og menningar en réttnefnd ljóð eða kveðanleg kvæði. Frá því er ekk- Og ég fór að taka upp aðra að- ferð, sem var jafnvel ennþá meira af- mennskandi. Hún var sú að vera vin- gjarnlegur við menn, án þess að treysta þeim. Maxim kenndi mér þessa aðferð. „Ég þekki til þessara vinnubúða", sag'ði hann, „og ef vel á að fara skaltu ekki treysta nokkrum manni. Þarna verða margir, sem vilja gerast kunningjar þínir, og þarna verða ýmsir velútlít- andi og fínir menn, sem reyna að segja fyndni um sovétskipulagið. Treystu þeim ekki. Þeir eru bara að reyna að veiða eitthvað upp úr þér, sem þeir svo geta kjaftað frá síðar. Þú ert einn, þú átt enga kunningja, mundu það“. Dagarnir drögnuðust áfram. A fætur klukkan sex, til að hlusta á sovét-þjóð- sönginn, éta brauð og sykur, sem smeygt var gegnum lúguna, morgunæfingar í búrinu, fúlt þefjandi fiskisúpur, sem ég gat ekki komið niður, útvarpssending- ar, sem affluttu Bandaríkin og lífið þar, verðir, sem sýndu Maxim tennurn- ar, krúnurakstur á fárra daga fresti, og — guði sé lof — biblían og fleiri bæk- ur. I dögun 5. nóvember, eftir sex vikna dvöl í þessu fangelsi, reif ein- hver foringi lúguna upp á gátt. — Landerman, taktu saman dótið þitt — en þau orð vissu allir fangar, að þýddu, að nú ætti að fara að flytja þá. — Hvert á ég að fara? — Það veit ég ekki. Svo var mér fylgt í gluggalausan flutningavagn, og síðar var ég rekinn inn í járnbrautarvagn ásamt mörgum fleiri föngum og loksins inn í óupp- hitaðan klefa í Smolenskfangelsi nr. 1, en Smolensk er fyrir norðaustan Minsk. Eftir að hafa skolfi’ð af kulda í fimm daga var ég enn fluttur. Fyrrverandi almenningsvagn, troðfullur af föngum, ók okkur eftir einhverju, sem virtist vera þvergötur, að járnbrautarstöð, þar sem við biðum í nokkra klukkutíma í myrkrinu. Lestin okkar kom eftir miðnætti, og við gengum í halarófu fram hjá dátum með hand-vélbyssur og lögegluhunda. Við gengum fram með lest af venjuleg- um flutningavögnum, þar til við kom- um að einum með móðuglerrúðum, með ryðguðu stöngum fyrir. Inni í fangel- isvagninum voru flestar kytrurnar fylltar körlum og konum, skríkjandi og grátandi, skiptandi á vindlingastubbum og síldarflökum, æpandi, öskrandi, bölv andi og syngjandi. Enda þótt þarna væri engin fótajárn eða sveltir fangar, minnti þetta mig á fangaflutninga, eins og Tolstoy lýsti þeim fyrir hundrað ár- um. í flestum kytrunum voru tólf fangar eða fleiri, en ég var einn míns liðs. Ég var enn svo varkár með að brjóta engar reglur, að ég spurði hina fangana einsk- is, og þegar lestin tók að hreyfast af stað, settist ég á trébekkinn og bjóst til svefns. E n þá heyrði ég gegnum kliðinn af rússneskum ópum, glamrið í vögn- unum og allan hávaðann, kail, sem mér lét ótrúlega í eyrum: — Pete! Pete! Ertu þarna einhvers staðar? Þetta var karlmannsrödd, sem æpti þarna á ensku og meira að segja með Brooklynhreim. Ég æpti eitthvað á móti. — Halló, Pete! Ég er Ameríkumaður, og ég er tveimur klefum aftar við ganginn. Ég heyrði, að þú værir á þess- ari lest. Ég komst allur í uppnám. Þarna var landi minn og vinur, maður, sem ég gat loksins treyst! Hann sagðist heita Nick Nedin og vera að afplána fimm ára fangelsisdóm. Ég sá hann í fyrsta sinn næsta morgun, þegar lestin var að koma til Moskvu. Þetta var maður, að því er virtist hátt á fertugs aldri, íklæddur spánýrri skyrtu með niðurhnepptum kraga. Hann var með afleitan hósta og mikinn kvíða- svip. 1 fangavagninum á leiðinni til Krasnopresnevskaja-fangagistihússins, eins af mörgum til að geyma í fanga á ferðalagi, hvíslaði hann að mér sögu sinni. Hann kvaðst vera pólskur gyðing- ur, sem hefði flúið til Rússlands, þegar Hitler ruddist inn í Pólland. Eftir vist í rússneskum fangabúðum, fór hann til Ameríku 1946, tók próf sem skioaverk- fræðingur, fékk borgararétt, kvæntist og fékk atvinnu við kaupskipaflotann. Þeg- ar hann var á heimleið úr skemmtiferð til Rússlands 1961, býttaði hann íáein- run a.-þýzkum mörkum fyrir rúblur hjá rússneskum liðsforingja. Hann var tekinn fastur í Minsk og yfirheyrður af K.G.B. (sovézku rikisöryggislögregl- unni), sem reyndi að fá hann til að játa á sig njósnir. Nick neitaði því og var svo í yfirheyrslum í fjóra mánuði. En fyrir réttinum kom það samt fram hjá kærandanum, að raunverulegt brot hans væri ekki það að býtta pening- um, heldur njósnastarfsemi, og Nick var dæmdur í fimm ára fangelsi í Minsk og þriggja ára í vinnubú'ðum, sem við vorum nú á leiðinni til. — Það er naumast! sagði ég. — Hvað ertu að gera hér? Og hvernig líður þér? — Það er allt í lagi með mig. Og nú er þetta dásamlegt, finnst þér ekki, Pete? Héðan af verðum við saman. Segðu mér nú fréttir frá Bandaríkjun- um. Enda þótt verðir í fangagistihúsinu hefðu fyrirskipanir um að halda okkur sundur, gat Nick talið þá á að láta okk- ur í sama klefa það sem eftir var ferð- arinnar. Hann samkjaftaði aldrei, og þegar við ókum í fangavögnum eða lágum á gólfinu í klefanum í fanga- gistihúsinu, hafði ég gaman af að heyra hann tala um heimþrá sína eftir Ame- ríku. E n ég hafði vanizt ofvel laun- pukri og grunsemdum í fangelsinu, til þess að treysta honum. Það var ekki einasta sú tilviijun, að tveir amerískir /angar, dæmdir fyrir ópólitíska glæpi væri samtímis á ferðinni í sama fang- elsi (og mér hafði aftur og aftur verið sagt, að ég væri sá eini). Þar kom einn- ig til saga Nicks, en því lengri sem hún varð, því meira hafði ég hana grun- aða um að vera upplogna. Til hvers var hann að sækjast eftir rúblum, ef hann var að fara út úr Sovétríkjunum? Og hvernig vissi hann svona nákvæmlega, hvar vinnubúðirn- ar okkar voru? (Hann benti meira að segja á þær á korti, sem hann þóttist ’haía keypt meðan hann var í fang- elsinu, enda þótt ekkert kort hefði lifað af fyrstu leitina í sovézku fang- elsi, auk heldur getað verið þar til sölu). Hvernig hafði hann vitað nafnið mitt? Ég prófaði vísindakunnáttu hans með nokkrum spurningum, svona rétt út í bláinn. (Ég hafði lært bæði efna- fræði og spænsku í menntaskóla og ég var sannfærður um, að verkfræðingur hefði hann aldrei verið). Hann talaði mikið um mál sitt, en ýmsar skýringar hans virtust vera hæpnar. — Hvað um sendiráðið í Moskvu? spurði ég. — Hefurðu sett þig í sam- band við það? — O, þeir vita um málið mitt, en þessir bölvaðir letingjar hafa hvorki hreyft hönd né fót til að hjálpa mér. En kannski var hann bara að vera varkár gangvart mér. Ef út í það var farið talaði hann ensku ágætlega og hann virtist þekkja talsvert til í Ame- ríku, og svo var hann með mynd af sér og konu sinni úti fyrir húsi þeirra í Ohio. Gat þetta verið útbúnaður gagn- njósnara? Var hann raunverulega óhamingju- samur Amerikumaður eða var hann bara njósnari, sem lögreglan hafði sett til höf- uðs mér? Mér var illa við að trúa því um þennan mann, sem lagði handlegg- inn um herðar mér, meðan við töluð- um með heimþrá um matinn heima. En ég varð að vera varkár. Hvers vegna var hann svona óviss um sína eigin sögu, en reyndi að vera svo sannfær- andi? Hvernig gat hann tekið þetta geysi-ótrúlega mót okkar eins og ein- hvern sjálfsagðan hlut? Um það leyti, sem við fórum í fangelsi í Moskvu, hafði ég sannfærzt um, að hann væri njósnari. Eða var það bara þetta, sem Rúss- arnir vildu? Voru þeir að reyna að brjóta niður mótstöðu mína? Eða var ég kominn með ofsóknarbrjálæði? Ég gat ekki komið mér niður á neinu, Nick viðvíkjandi, nema því einu, að nærvera hans var svo langt frá að vera mér til afþreyingar, að hún beinlínis jók á einmanakennd mína. Hann var ógnun við rni-g — og sú alvarlegasta enn sem komið var — og ég yrði að auka var- úðarráðstafanir mínar. Ég óskaði, að ég hefði aldrei hitt hann — og að ég væri ekki með þessa sektarkennd fyrir að óska þess. Frh. í næsta blaði. BÓKMENNTIR Framhald af bls. 7. ert afbrigði til, nema ef innihald þeirra skyldi vera betra, en það atriði verður hvorki sannað né afsannað, nema met- in væru skáldverk beggja tegunda, og horfir þá ekki vænlegar fyrir frum- burðum breytingasinna en öðrum góu- gróðri. Varlegra mun að neita ekki hugsanlegum ágætu-m þeirra verka að óreyndu, en að kaupa slíkan varning óséðan eða lítt sýndan fyrir skáldalaun margra meðalmanna og sá til þess pen- ingum að hljóta þá uppskeru, sem þekkt er, eða aðra svipaða vafageml- inga bara söku-m meðmæla Kára Marð- arsonar, ekki ákveðnari en þau þá eru, eða vegna þess að höfundar þeirra eru ungir og gætu þegið aukatekjur og uppeldi við óvissa framleiðslu, það er óíévænleg ráðstöfun, þótt fyrir hafi borið ágætt verk óbundins máls ljóð- rænnar tegundar einnig. Kári Marðar- son hefir mörg skilyrði til að vita al- menningi betur um gildi skáldskapar. Menntun hans, greind og áhugi beinist að þeim efnum, og fundvísi hans á vit og fyrirætlun í fáránlegum hrúgum flónskulegra orðaleppa og afbakana eða fjarstæðra talnaraða sanna magn áöurnefndra eiginleika. Samt er honum varlega gegnandi, þegar hann heimtar af mönnum enn meira vorkunnlæti en umburðarlyndi það hið mikla, sem „atómljóðum“ hefir að þessu hlotnazt, að minnsta kosti hjá nokkrum hluta ritdómara og ritstjóra. R Her að framan hefir þess verið getið, hversu freklega „atómljóð“ krefð- ust bókfestingar, ef geymast skyldu, og það næstum hversu stutt, sem geyma þyrfti, og nauðsynjar þeirra til ritunar- aðstöðu athugandans, ef þar átti fram úr nokkru að ráða. Þessi eiginleiki rit- anna skiptir lesendum í flokka, þar sem öðrumegin lenda menn með ákveðin ytri skilyrði um tíma og aðstæður til rit- mennsku og rýninga — erfð eða áunnin —, en hinumegin þeir, sem fátæktar eða annríkis vegna skortir þau skilyrði og gefa því frá sér að lesa eða framleiða slíka vöru. Sú stéttaskipting hlýtur að valda tjóni, þar sem á meðal þeirra, er ytri skilyrða vegna geta gert hvað sem þá lystir, hljóta að koma allmargir menn, sem ekkert hafa i höfðinu til bóklegra starfa, nema í bezta falli framgirni, og hljóta því að verða stéttarskammir á meðal orðlistarmanna, þótt nýtir mættu reynast til að bræða síld, en á hinn bóg- inn koðna niður af bókaleysi og ö'ðrum aðstöðuskorti ýmsir þeir, sem vel hefðu mátt, vits og manndóms vegna, verða verðmætir rýnendur rita eða bóka- gerðarmenn í smáum eða stórum stíl. Ljósast verður þetta með samanburði við embættismannaflokk landsins, látna og lifandi. Þar voru of margir réttnefnd- ir pokar, sem kuðlað var í lærdóms- mannastétt með afli foreldraauðs, á meðan gáfumenn, eins og Bjarni Borg- firðingaskáld, Bólu-Hjálmar, Gísli Kon- ráðsson og fjöldi annarra, urðu að smíða sér sjálfstraust og tiltrú manna með ljóð- um, sem lærðust og voru semjanleg á göngu milli bæjar og beitarhúsa og voru munandi alla leiðina frá orfinu eða ár- inni og heim til ritfanganna. Þessi verks- háttur við nám og samningu mikils af bókmenntum þjóðarinnar stytti bilið á milli lærðra og leikra og gerði íslenzka alþýðu að miklum hluta að þeim bók- menntamönnum, sem greind þeirra og hugarfar leyfði. Dýrt rím og ramgerðir bragir heimtuðu orðafjölda, vöktu upp stílbrögð og myndauðgi, en þátttaka í fjölbreyttum viðfangsefnum gerði svo alla þá, er það gátu orðið, að orðsnjöll- um mönnum og kunnandi á móðurmál sitt, og margt hinna að sælli njótendum snilldar og aðhlægis en þeir hefðu ann- ars orðið. essu fá engin verk eða viðfangs- efni orkað jafnvel og almenningsljóða- gefð, svo reglubundnir og dómtækir sem íslenzkir bragir hafa oftast verið og eru enn hjá hinum skárri höfundum. Vilji einhver framsetning koma í stað þeirra og telji sig tímabærari, skyldi hún að minnsta kosti hafa þá kurteisi að nefnast ekki nafni þeirra, svo að ekki falli gróm af hugsanlegum mistökum á saklausan og svo að sú efnismeðferð verði ekki krafin um þau gæði, sem hún aldrei ætlaði að hafa í för sinni. Hér skal ekki reynt að gizka á, hvernig bragleysur verka á meðal enskumælandi þjóða, eða kasta steini um höf út til höfunda þeirra, sem upphaflega mótuðu smekk Kára Marðarsonar, en hér á landi hefir svo verið málum vari'ð, að vanda- söm bragargerð var flestum efnilegum mönnum nokkurt keppikefli og þótti sæmdarauki sérhverjum kunnáttumanni í „faginu". Vandalaus samsetningur eða sá, sem leikmönnum sýnist auðsaminn, hvetur ekki til orðahirðu né orðfimi. Smáþjóðin hér á hólmanum á sér hinsyegar engan jafnvissan rétt til sjálfs- virðingar, frelsis og álits annarra þjóða og þann, sem tungumál hennar veitir. Því er okkur sáluhjálparatriði, póli- tískt og menningarlegt, að halda máli okkar óbreyttu eða að minnsta kosti sem minnst spilltu, festa í hugum svo margra, sem hafa einhvern haldbotn heiðarlegr- ar hugsunar, þá löngun að geta borið fyrir sig hljómgó'ða, þróttmikla og auð- uga þjóðtungu, hreinasta og fimasta allra heimsins mála. í( ári Marðarson hefir sjáanlega dýrlega kunnáttu í þeirri þjóðtungu, sem hér er beitt, og rækt til hennar, en hitt er vafasamt, hvort hann skilur nauð- syn íslendinga til listfengirauna og í- þróttaæfinga þess hins sama máls og ger- ii sér ljóst, hversu bráðnauðsynlegt það er að þau afrek, sem með því eru unn- in, séu ekki aðeins verðlaunaglíma fárra manna, sýnd einu sinni á ári, og litlum hópi sérhæfðra leikdómenda, heldur sé almenningseign, sem börnin mannast á í hléum leika sinna og gamalmennið leit- ar sér afþreyingar við á milli andvarp- anna, þótt oftast verði ekki nema lærð- ur listiðnaður, en auki auk þess óbiluð- um þroskamönnum virðingu fyrir starfi annarra og brýni þeim afrekaþrá. Sigurður Jónsson frá Brún. 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS- 3. júií 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.