Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1968, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1968, Page 3
TT itold Gombrowicz. 'höfundur leik- ritsins Yvonne, sem Leikfélag Reykja- víkur frumsýnir á næstunni, fæddist í Maloszyce í Póllandi 4. ágúsit 1904. Faðir hans var efnaður óðalseigandi og ólst því Gombrowicz upp við siði og háttu efri stéttar Póllands. Hann stund- aði nám í Varsjá og París oig er lög- fræðingur að menntun. Árið 1933 gaf hann út fyrstu bók sína, „Endurminn- ingar frá æskuárunum“. Árið 1939 urðu þáttaskil í lífi hans. Það ár bauðst hon- um far með jómfrúferð pólsks farþega- skips til Suður-Ameríku en á meðan á ferðinni stóð, brauzt heimsstyrjöldin út í Evrópu og Gombrowicz kaus að hverfa frá borði og setjast að í Argentínu. Með þessu tók hann ekki einungis af- stöðu gegn föðurlandi sinu heldur öllu sem heyrði Evrópu til, þjóðisikipulagi þess, befðum o-g viðhor'fum. í d-agbókum sín-u-m o-g skáldsögun-ni ,,Tra-ns-atlanityk“, sem kom fyrst út í París árið 1953, fjall- ar Gombrowicz um þessa afstöðu sína og skýrir þar, hversu gagnger og af- drifarík hún varð fyrir hann persónu- lega og ritferil hans. Evrópskt þjóð- skipulag va-r í auigum hans úrelt o-g úr- kynjað: aðalinntak þess steinrunnin form og viðhorf sem varð aðeins hald- ið uppi með aga og valdi, og sífelld- lega í andstöðu við ung og fersk öfl nýsköpunar. í rauninni hafði hann þeg- ar gert upp við úr-eLt o-g stirð'nuð lífs- form í Póllandi með skáldsögunni „Ferdydurke", sem kom út ári áður en hann tók sér SuðurAmeríkuferðina á hendur. „Ferdydurke" vakti strax óhemjuathygli, þegar hún kom út. Aðal- persónan er þrítugur maður, Jónzio að nafni. Hann stendur á mörkum æsku og, fullorðinsára, og enn óráðinn hvoru megin markanna hann á heima: í heimi hinna fullorðnu eða meðal hinna ungu og ómótuðu. Skáldsagan er full af furð- um og kostulegum tiltækjum og borin uppi af taumlausu skopi. í bókinni yng- ist Józio upp, þroskaárin hrynja af honum hvert af öðru og hvert skref WITOLD GOMBROWICZ Steinn Steinarr: Hallberg Hallniundsson sneri á ensku. Within your dream í draumi sérhvers manns í draumi sérhvers manns er fall hans falið. Þú ferðast gegnum dimman kynjaskóg af blekkingum, sem br jóst þitt hefur alið á bak við veruleikans köldu ró. Þinn draumur býr þeim mikla mætti yfir að mynda sjálfstætt líf sem ógnar þér. Hann vex á milli þín og þess, sem lifir, og þó er engum ljóst, hvað milli ber. Gegn þinni líkamsorku og andans mætti og öndvert þinni skoðun, reynsilu og trú, í dimmri þögn, með dularfullum hætti rís draumsins bákn og jafnframt minnkar þú. Og sjá, þú fellur fyrir draumi þínum í fullkominni uppgjöf sigraðs manns. Hann lykur um þig löngum armi sínum, og loksins ert þú sjálfur draumur hans. Within your dream your finai fall is hidden. You wander through the dark, enchanted trees of fantasies by which your breast is ridden behind the coldly calm realities. Your dream’s endowed with faculty of giving birth to a separate life which threatens you. It grows between yourself and all that’s living, and yet the rift is never known for true. Against your muscle strength and mental power opposing all you see, believe. and think, in dark and cryptic silence, hour by hour, your dream expands, and as it does, you shrink. Behold: you fall before your dream, surrender, a vanquished man; your downfall is extreme. And locked within its arms, so long and slender, at last you are the dream of your own dream. faerir hann nær barnaskapnum í leið að hinum upprunalega kjarna. Á þessum afþroskunarferli Józios fellir Gombro- wicz hvert samfélagsformið af öðru með háði sín-u og ádeilu, en kemst hiins veg- ar næst þeirri úrlausn í verki sínu, að „upprunalegur“ maður sé ekki til. En nú, með því að brenna allar brýr að baki, neita að hverfa aftur heim og setjast að í ókunnu landi, sem var að mörgu i-eyti í mótun og markað af s-kipu- lagsleysi, gafst Gombrowicz tækifæri að reyna örlög Józios á sjálfum sér. I fyrstu fann hann til léttis. Loksins var hann frjáls, laus við öll bönd og það því fremur sem hann taldi sig enga sam- leið eiga með löndum sínum í Argen- tínu. Nýlendan pólska lifði í þeirri barnalegu og bjartsýnu von, að styrj- . öldin mundi leiða í ljós yfirburði Pól- lands og manindóm: þeir trúðu því, að skammt mundi að bíða þess, að hið frækna, pólska riddaralið héldi innreið sína í Berlín og gersigraði Þjóðverja. Gombrowicz sneri baki við þessum lönd- um sínum, meðfram vegna þess að hann reis öndverður gegn því að láta skipa sér í flokk eftir þjóðerni: þjóðernishug- myndin var honum aðeins enn eitt „form- ið“ í mannlífinu, sem bindur manninn og kúgar hann til vissrar hegðunar á kositnað einsta-kling-sfrelsáis. Þó uppgötv- aði hann, að frelsið var dýru verði keypt: honum ógnaði það tóm sem af- staða hans varpaði honu-m í. Togstreit- an milli frelsisþrár mannsins og ótta hans við frelsi er einatt áleitið yrkis- efni í verkum Gombrowicz. Um þetta tímabil ævi sinnar segir Gombrowicz í dagbók sinni: „Utan við mig og örþrota, arflaus og rótlaus, þjáð- ur af blindum ástríðum, sem leystust úr viðjum, þegar tilvera mín hrundi og líf mitt varð gjaldþrota — eftir hverju var ég eiginlega að sækjast?“ Þessari spurn- ingu leitast hann við að svara í skáld- sögunni Trans-atlantyk, sem fyrr er get- ið. Söguna byggir hann á eigin reynslu, aðalpersóna hennar heitir jafnvel Wit- old Gombrowicz og er kallaður WG í sögu-nn-i. WG verður vitni að vialdabar- áttu milli frumstæðs argentísks kynvill- ings og pólsks majórs af „gamla skól- anum“ um son hins síðarnefnda. Sjálfur tekur WG enga afstöðu, og hvorugur sigrar, því að báðir leitast eftir yfir- ráðum — um frelsi unga manninum til handa er engan veginn að ræða. Full- trúar beggja — hins unga og frum- stæða og hins gamla — eru jafnmiklir harðstjórar: eitt form leiðir af sér ann- að, þessi öfl verða ekki sett upp sem algerar andstæður, því að í samskiptum sín á milli skapa þau hvert annað, lifa hvort á öðru. Um frelsi er ekki að ræða. Einn er maðurinn enginn. Og hér er komið að -uindirstöðuatriði í manmsik-ilningi Gom- browicz. Persónuleiki mannsins er ekki stöðugur, óbreytanlegur, einstaklingur- inn hefur hvorki yfirsýn yfir örlög sín né áhrif á þau. Atburðarásin, aðstaða mannsins býr yfir innri lögmálum forms sem ráða gerðum hans og það er af við- brögðum sínum sem hann þekkir sjálfan sig jafnframt því sem viðbrögð hanS sjálfs og viðbrögð annarra „skapa1* hann. Frjálst val mannsins er blekking, atburðarásin ræður valinu. f grein um pólska leikritun nútímans orðar And- rzej Wdrith þetta svo: Síbireytileiiki atburðarásarinnar er driffjöðurin sem ákvarðar hva-ða stefnu gerðir manna taka. Þetta er alls óskylt sálfræðilegri leikritun — þar sem persónuleiki manns ins ræður hegðun hans — og jafn- framt óskylt epískri leikritun — þar sem hegðun mannsins ræður persónu- leikanum. Hjá Gomrowicz er hegðun mannsins ekki aðalatriði í samanburði við atburðarásina, heldur undirorpið Framh. á bls. 13 3. nóvember 1MB LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.