Lesbók Morgunblaðsins - 16.02.1969, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 16.02.1969, Blaðsíða 16
mm Lausn á síðustu krossgáfu h m (k h cr z •" u VA A- <r Z. cc u u. <y -3 U ct A- <2T. — -J J ■z. dr X. £ cr Oi d-tx „O k h n 3 — <X — kT) s) qr ■ O Z. Z 3 I «=> > nr — tv. <r •z £ h M Ul o -j 1 a z <r * P k (X Íí fu. i Q O U) jO J v-^ Od v> cr 1:3 ú. U A |l 0L a: VJ -j w .ó «:-33 oc 3 1.4! k U. O v> V) % U- u. cr -j ct 'Z A :í S ? z. — íft íiis •z UJ > z: m 'rj T CV 3 5'* § g ~Z- JZ V, % £ 51 LU 'Z — Z1 5 \% h■ 0* 1 k cr -j "Z- ct <x CE m )| slí — -J || 'í h | I ví o % 5t U. » — wlj e> <0 3 E £ ar q: •A & tr CQ CD ct (X Or CX k 11 * -J- Z. Í.VÍ — I: • ,7 — 3 -J <r S'l C* vO 1 4) — s: cr Z z. % O cr V cr (X Ct I É F>í Ctr vjf ct % “í* cc % o yi U •4 — h — -j -J E-ur^- —> cr zr (X 1 —> 4j J' C* p y> '<c (X cr -J <3 Ui Z. cx 3 1 1 ai < h cr QX § : UJ (X cc £5= <5 b 3 1 cc u v> UJ <5 — (X <5 O £ V\ ttf V 3 (X B Qd- u->f ?!ll 1 ■ I •J O, % II g* -t ií? J V-i ■h ** Sjónvarpið hejur án eja opnað augu margra jyrir nauðsyn inn- lendrar kvikmyndagerðar. Hlutverk sjónvarpsins vœri bœði meira og merkilegra, ef til vill álitlegur fjöldi vel gerðra kvikmynda. Þá á ég sízt af öllu við einhverskonar Holly- woodframleiðslu á Njálu, heldur stuttar heimildarkvikmyndir um staði, atburði, atvinnulíf og persón- ur. Af nógu er að taka. Furðulegt má það kallast með af- komendur hinna ötulu annálaritara, sem urðu þó að notast við skinn, að við höfum gersamlega vanrœkt þá annálaritun, sem nútímanum œtti að vera eðlilegust og tiltækust. Kvik myndin hefur svo augljósa yfir- burði yfir alla aðra skráningu, en aldrei þessu vant eru íslendingar seinir að átta sig. Ríkið, þessi rnikla allsherjarforsjón, hefur staðið sig álíka illa og við mátti búast. Senni- lega er það vegna þess, að alþingis- menn og ráðamenn hafa mjög óljósa hugmynd um kvikmyndagerð. Að undanförnu hefur virzt svo sem útlendingar œttu von á mun skárri fyrirgreiðslu og styrkjum en þeir einstaklingar íslenzkir, sem vildu feta í fótspor þeirra og táka svokallaðar landkynningarmyndir. Það virtist vera nóg að hafa skegg, kvikmyndavél og útlent þjóðerni til að fá ókeypis filmur, hótel- herbergi og jafnvel bíl hjá Ferða- skrifstofu ríkisins. Þetta varð að gamanmáli í hópum þessara manna erlendis og þótti athyglisvert frjáls- lyndi hjá þessari ríkisstofnun á Is- landi, að ekki þurfti nein skilríki um kunnáttu. Þótt vel fœrir inn- lendir aðilar hefðu farið framá við- líka hjálp, hefðu þeir einungis orðið að ganga bónleiðir til búðar. Þœr fáu heimildarkvikmyndir, sem við eigum, eru að þakka brenn- andi áhuga nokkurra einstáklinga. Frœgust íslenzkra heimildarmynda og ef til vill sú merkasta, er Björg- unarafrekið við Látrabjarg, sem Óskar Gíslason tók. Ósvaldur Knud sen hefur unnið stórvirki og ekki fengið neina styrki af opinberu fé eftir því sem ég veit bezt. Nokkrar mynda hans hafa verið sýndar í sjónvarpinu og minnisstœðust er mér Hornstrandamyndin. Þar var beinlínis bjargað frá glötun mynd- um af sérstœðu mannlífi við frum- stæð skilyrði í harðbýlu héraði, sem nú hefur mjög lagzt í eyði. Þegar slíkar myndir eru sýndar, finnum við sárt til þess að hafa gert kvik- myndagerð að hornreku. Sjónvarpið hefur sýnt stóra myndaflokka frá stríðsárunum fyrri og árunum milli styrjaldanna. Þar virðist hafa verið af nógu að taka. Við eigum ekkert samsvarandi, sem sýnt gœti Ijóslif- andi ástandið á kreppuárunum og þau margvíslegu vinnubrögð, sem lögðust niður á stríðsárunum. Kvik- mynd Reynis Oddssonar um Her- námsárin er stœrri í sniðum en myndir Ósvalds. Hún er að vísu ófullkomin heimildarkvikmynd, en stórkostlegur fengur að henni samt, sem ef til vill verður betur metinn að verðleikum síðar. Nú mun œtlunin, að Frœðslu- myndasafn ríkisins verði sá aðili, sem uppörvar, styrkir og lyftir undir íslenzka kvikmyndagerð. Auð vitað á öll fyrirgreiðsla á þessum vettvangi að vera undir einum hatti. 1 fyrra var Frœðslumyndasafninu veitt ein milljón króna til kaupa á kvikmyndum. Kunnáttumenn töldu þá, að gera mœtti þrjár sœmilegar kvikmyndir fyrir það fé. Eins og verðlagi er háttað nú hrykki það naumlega fyrir tveim. Frœðslu- myndasafnið verður að fá ríflega fjárveitingu, ef kvikmyndagerð á að vera annað en olbogabarn. Við eigum nokkra reynda og vel mennt- aða kvikmyndatökumenn og það œtti að vera hœgt að láta þá hafa nóg verkefni. Breytingarnar í þjóð- lífinu eru svo örar, að það er œrið myndefni, að fylgjast með því. Auk þess vœri gott að geta aukið inn- lent efni í sjónvarpinu og sent eitt- hvað af þessu rusli tvítugra, amerískra kvikmynda heim til föð- urhúsanna. Það liggur í hlutarins eðli, að verksvið sjónvarpsins er meðal annars það að láta gera íslenzkar kvikmyndir. Af fátœktarásrtœðum hefur það mikið til farizt fyrir. Þó má nefna ágœta mynd af trillu- karlinum Andrési, myndir úr Öræfasveit og frá Akureyri. En það segir sig sjálft, að meðan þess- konar starfsemi er bundin við eina eða tvær ferðir á sumri hverju, verða ekki gerðar neinar stórar rispur. Tekjuöflun til innlendrar kvik- myndagerðar gœti verið með ýms- um hœtti og liggur beint við að taka Dani til fyrirmyndar. Þar eru þau gjöld á aðgöngumiðum kvikmynda- húsa, sem hér samsvara sœtagjaldi, skemmtanaskatti og söluskatti, tek- in óskipt til kvikmyndagerðar. Ef stjórnvöld, sem þarna eiga hlut að máli sýndu þessu þann skilning sem vert er, œtti að vera vel fram- kvœmanlegt fyrir Frœðslumynda- safnið og Sjónvarpið í sameiningu að standa að gerð 10—20 heimildar- kvikmynda á ári. Hvílík náma vœri það, ef við œttum slikt safn mynda frá síðustu áratugum. Það er sann- arlega af nógu að táka fyrir hug- myndarika menn, sem þykja mun ómetanlegt, þegar fram líða stund- ir. Gjarnan vildi ég sjá slíkar mynd ir um veiðiferð á togara að vetrar- lagi, um beztu veiðistaðina í ánum, um vertíðina í Vestmannaeyjum, um göngur og réttir, um slóðir Stefáns G. Stefánssonar í Vestur- heimi eða dagleg störf á dagblaði svo eitthvað sé nefnt. En fyrir alla lifandi muni; látum Njálu-lcvik- myndina bíða um stund. Gísli Sigurðsson.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.