Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1970, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1970, Qupperneq 10
„Þetta byggist á vinnu og skipulagningu með íslenzkt mannlíf í fyrirrúmiu Sighvatur kannar liráefnið í einum fiskbingnum hjá Vinnslustöðinni. w Sigfhvatur Bjarnason forstjóri Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum hefur í áratugi verið einn af kunnustu afla- mönnum og athafnamönnum í Eyjum, en hann var tæpa 4 áratugi aflasæll skipstjóri og aflakóngur og síðan forstjóri Vinnslustöðvarinnar í Eyjum, sem hefur að meðaltali 3—4 hundruð manns í vinnu. Sig- hvatur hefur um langt skeið ver ið einn af forystumönnum Sjálf stæðismanna í Eyjum og m.a. sat hann í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðismenn. Við heimsótt um Sighvat á heimili hans að Ási í Eyjum og spjölluðum stuttlega við þennan kunna at- hafnamann um æsku hans, sjó- mennsku og önnur störf. Fer viðtalið hér á eftir: — Þú ert Stokkseyringur að uppruna. Sighvatur. — Já, ég er fæddur 27. októ ber 1903 að Útgörðum á Stokks eyri. Þar ólst ég upp fram að fermingu og var á sumrum í sveit í Hreppum. Frá 14—16 ára aldri var ég í Hrunamanna hreppi í Birtingarholti og sinnti þar störfum eins og gengur og gerist í sveitinni. Út í Eyjar kom ég fyrst í janúar 1919 og varð þá vetr- armaður hjá Stefáni Gíslasyni í Ási. Lengst af ævinni hef ég verið í Ási. 1930 kvæntist ég konu minni Guðmundu Torfa- dóttur og höfum við eignazt 8 börn, 6 stráka og tvær stúlkur. Nú, fyrst eftir að ég kom tii Eyja var ég í aðigerð á vertíð- um, en alfluttur er ég til Eyja 10. janúar 1926. Þá fékk ég eld skírnina og fékk á móti mér suð austan stormveður eins og það gerist verst við Eyjar. Þá vor- um við á leið til Eyja frá Stokkseyri á bátnum Svölunni sem ég var með, en hann var 16 tonn að stærð. í þessari ferð var ég að saekja foreldra mína út eftir og þeirra búslóð auk vetrarfólks. Við vorum 22 tíma til Eyja frá Stokkseyri í þessu óveðri. Einn bátur, Goðafoss, fórst hér í þessu veðri. Eðlileg- ur siglingatími á Svöliunni var um 5 tímar, en þetita ferðalag var svona heldur erfitt þar sem um borð voru alls 27 manns. 1922 hóf ég róðra í Eyjum og var þá fyrst háseti á vélbátn- um Gústaf. Fyrst varð ég for- maður 1925 á 12 tonna bát, sem hét Enok. Þá var ég búinn að vera tvö sumur áður austur á Langanesd með áraskip, en þar vorum við fjórir á. Eftir þetta var ég stöðugt formaður í 34 vetrarvertíðir, eða til ársins 1959 og 33 sumarvertíðir var ég á síldveiðum. reknetum, snurpu og hringnót. Eg held að Þorgeir goði sem óg var með árið 1929 hafi verið fyrsti báturinn, sem fór héðan með snurpu til veiða fyrir norðan. — Hvernig var veiðum hátt að á vetrarvertíðum á þessurn árum? — Breytingarnar hafa náttúr lega orðið mjög mik'lar og marg þættar, en til dsemis árið 1925 var veiðum hagað ekki ósvipað og nú. Framan af vertíð var lína og síða.n voru lögð net, en þá var aðeins verið með 36 net í sjó miðað við um 150 til jafn- aðar nú. Línan var á 12—14 bjóð á móti 40—45 núna. Ef eitthvað gekk voru síldar sumrin skemmtilegust, en svo voru síldarl'eysisárin líka það drepleiðinlegasta sem hægt var að hugsa sér. Manni finnst nátt úrlega alltaf skemmtilegt á hvaða veiðum sem er ef fiskast, en alltaf þótti mér nú línan skemmtilegasta veiðarfærið. — Lentir þú oft í illviðrum á sjónum? — Ekki er hægt að neiita því, en við náðum alltaf landi hér í Eyjum nema eina nótt sem við lágum undir Eiðinu við Heimaklett vegna byls. Annars kom yfirleitt lítið fyrir, það meiddist aldrei maður hjá mér svo orð sé á gerandi og aldrei Sighvatur Bjarnason. Heimaklettur í baksýn. Spjallað við Sighvat Bjarnason athafnamann í Vestmannaeyjum Eftir Árna Johnsen missti ég mann fyrir borð. Þetta gekk alltaf eðlilega fyrir sig. — Hvað telur þú aflasæidina vera, heppni eða náttúrugáfu? — Það fer óneiltanl'ega mi'kið eftir krafti og dugnaði. Útsjóna semi og dugnaður hljóta að ráða milklu. Maður veit ekkert um heppnina og oft var það ó- ski'lj'anl'egt hvað maður setti stundum í fi®k fremuir en aðrir. En það var ekki eins haegt að finna fiskinn þá eiits og nú með öllum þessum taekjum nýju skip anna. — Réðu draumar nokkurn tíma ferðum þínum? — Ég veit það varla. Það var eins og stundum hefði lagzt svona eitthvað í mann. Ég man sérstaklega eftir tveim skiptum, er ég hreinlega svaf yfir mig, en i bæði skipt- in varð vitlaust veður. Svo veit maður ekki stund- um í þessu lífi hvað er tilvilj- un og hvað ekki þó að maður setji atvikin og atburðina í sam band við ýmislegt. Ég var yfirleitt búinn að á- kveða það kvöldið áður en lagt vat' í róður hvert halda skyldi, nema ef veður hamlaði. — Nú hefur oft verið sagt að menn finni veðrið á sér. Hver er þín reynsla í þvi efni? —• Maður varð að reyna að fara eftir sjálfum sér eins og maður gat. Það er alveg ábyggi legt að eftirtekt hefur hnignað mikið eftir því siem tækninni hefur fleygt fr.am. Gömlu karlarnir voru ári glöggir á veðurspárnar, eigin- lega svo að með ólíkindum var. Þeir sem stunda sjóinn nú af- þjálfast að nokkru í veðiurat- hugun sjálfir með aukinni taekni. En tæknin hefur líka aukið öryggið til mikiJla muna. Það var strax muniur að fá vit ann á Þrídranga, hvað þá þegar radarinn kom til sögunnar. — Hvenær hófst þú útgenð sjálfur, Sighvatur? — Ég fór í útgerð eftir fyrslu 10 LESBOK MORGUNBLAÐSINS 17. m/aií 1970

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.