Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1971, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1971, Síða 2
Elmborg Lárusdóttir, skáldkona, verður áttræð 12. nóvember. Hún er landsmönnum löngu kunn af verkum sínum og óþarft að kynna hana frekar. Um leið og skáld- konunni eru sendar hlýjar árnaðaróskir, birtir Lesbókin eftirfarandi grein í tilefni þessara tímamóta í lífi Elínborgar. i. Ég lá fyrir dauðanum á Vífil- stöðum árið 1914. Ég var á stofu með sex konum. Og ég sá að allir héldu, bæði læknar og aðrir, að ég mundi deyja. Stúlk urnar voru að biðja mig að koma til sín þegar ég væri dá- in og segja sér hvernig lifið væri fyrir handan. Þær gerðu allt fyrir mig sem þær gátu mér til þægðar. Eitt sinn er hjúkrunarkona var að fara út frá mér, kom ein konan af göngu og ætlaði inn, og í dyr- unum segir hún við hjúkrunar- konuna: — Er hún nú skilin við, blessunin? Þá segir hjúkrunarkonan: — Nei, ekki ennþá. Mér fannst þetta ákaflega undarlegt. Og ég fór að hugsa um það, hvað þetta væri frá- leitt, ef ég ætti að deyja svona ung án þess að hafa gert neitt. Mér fannst ekki að ég gæti komið fram fyrir Guð án þess að sýna honum vinnubrögð mín, og ég hafði ekkert unnið, ég gat ekki sýnt honum neitt, sem ég hafði gert . . . Eftir fjórtán mánaða legu komst ég á fætur, fór niður og lét hlusta mig. Prófessor Sigurður Magnússon kom á móti mér með útbreiddan faðminn og sagði: — Eruð þér ekki hissa, Elin- borg? Og ég sagði: — Hissa á hverju? — Hissa á því að þér skuluð vera komnar þetta, sagði hann. Nei, ég er ekki hissa, sagði ég. — Ég bjóst aldrei við að deyja. Já, það er satt, ég bjóst aldrei við að deyja. Þá sagði hann: — Þér væruð löngu dauðar, Elinborg, ef þér hefðuð ekki verið svona sterkbyggð og kjarkmikil. Þetta voru mikil vonbrigði fyrir herbergissystur mínar, en ég verð að segja þeim það til hróss, að þær létu míg á engan hátt gjalda þess. Þetta er i fyrsta sinn sem ég heyri frú Elínborgu segja írá. Frásögn hennar verður ósjálf- rátt að sögu. Skáldkonan mæl- ir hægum lágum rómi sem ber í sér styrkan undirtón. Ég er staddur á heimili þeirra hjóna, Elínborgar og Ingimars Jóns- sonar. Það er eitt af þessum gömlu virðulegu heimilum, þar sem virðuleikinn er sjálfur ein faldleikinn. Þessi hughrif streyma á móti mér strax og Ingimar lýkur upp fyrir mér. Við höfum ekki fyrr skipzt á kveðjum en frú Elínborg stend ur í stofudyrunum, beinvaxin, svipföst, en þó hýr í bragði. Mér finnst það vera miðaldra kona en ekki öldruð, sem býð- ur mig velkominn á heimili sitt. Um Ingimar má lika segja að hann hafi siður en svo dregið ellibelg yfir höfuð sér. Hann er skemmtilega gagnrýninn á menn og málefni, en inngróið þetta glaða góða skopskyn, sem ekkert á skylt við rætni. Eins og kunnugt er var Ingimar Jónsson um langt skeið mikil- hæfur menningarfrömuður og skólastjóri. Þessi hjón lifa engu deyfðar- lifi þrátt fyiir háan aldur. Þau lifa lífinu sér til uppbyggingar og gleði, — já, líka í sjálfri þögninni. Löng og margþætt lífsreynsla þeirra og náin kynni við fjölda ólíkra ein- staklinga, suma sterka og mikil hæfa, og þó kannski fleiri sem eiga í vök að verjast, hafa kennt þeim að erfiðustu lífs- stundirnar miðla ekki bara trega og sársauka, heldur að sársaukafull lífsreynsla kemur fyrr eða síðar inn í líf manns- ins í gagnstæðri mynd sem lífs- fylling . . . Þegar við höfum rabbað saman góða stund, gríp ég rissblokkina og pennann. Ég er jú kominn hér í þeim er- indum að skrifa smávegis um frú Elínborgu, lífsferil hennar og ritstörf. Og ég segi við skáldkonuna: — Frú Elínborg, segðu mér allra fyrst hvaða lífsatvik snart þig dýpst, eftir að þú komst til nokkurs þroska. Svar hennar er upphaf þessa þáttar. 2. Það verður stutt á milli heim sókna minna til skáldkonunn- ar, en þau hjón hafa siðan þau fluttu til Reykjavikur, búið á Vitastíg 8A. Að gamni sínu sér Ingimar um að færa okkur kaffi og meðlæti, dáindis kök- ur, sumar komnar allt norðan úr heimahögum ElLnborgar. En kaffidrykkjan tefur síður en svo fyrir okkur við ritstörfin. Frú Elínborg er verkmann- eskja mikil, kann betur vtð að eitthvað gangi og er fyrr en varir farin að segja frá: Faðir minn andaðist þegar ég var sjö ára. Hann var Þorsteins son, og sá Þorsteinn var fædd- ur á Kálfárvöllum á Snæfells- nesi. Þorsteinn á Kálfárvöllum var Jónsson, og sá Jón var fað- ir Stefaníu móður Jóhanns Sæmundssonar prófessors og þeirra mörgu systkina. Móðir mín hét Þórey Bjarnadóttir, sá Bjarni var sonur séra Hann- esar rímnaskálds á Ríp I Elinborg og Ingimar ásamt tveimur sonum þeirra, Lárusi og Jóni. afmæli Elínborgar 1951. Myndin var tekin á sextugs- * Oskar Aðalsteinn DAG SKAL AÐ KVELDI LOFA Skagafirði. Hún var tvígift en varð snemma ekkja. Alls vorum við niu systkin- in, og er ég ein á lífi af þessum systkinahóp. Ég er fædd á Tunguhálsi í Lýtings- staðarhreppi í Skagafirði 12. nóvember 1891. Ég ólst upp í Tunguhálsi, svo í Villinganesi. Við börnin vorum látin vinna, og uppeldið var miðað við það að við yrðum sem fyrst sjálf- bjarga. Þegar ég var níu ára, var ég látin vaka yfir túninu nótt eftir nótt með smalahund- inum mínum sem ég talaði við eins og lifandi veru, og hef ég ailtaf haft þann sið að tala upp hátt við skepnur, eins og mað- ur talar við mann. Ég tel það mikið happ fyrir mig í uppvext inum að hafa alizt upp með skepnum. Mér þótti þó serstak lega vænt um hunda, hesta og kýmar. Ég var mjög óglögg á fé, og tel ég að smalahundur- inn minn hafi þekkt það miklu betur en ég. Það kom alltaf í minn hlut að reka kýrnar á morgnana. En einu sinni var það að Hrefna snýr sér í móti mér og ætlar í mig. Ég hafði ekkert barefli, svo ég sneri heim, en beljan elti mig heim áð túhgarði. Sannleikurinn var sá, að hún var mannýg, vildi hnoða allt sem hún gat. Þetta atvik hefur orðið mér minnis- stætt, af þvi ég varð svo af- skaplega hrædd. Eftir þetta hafði ég ávallt svipu þegar ég rak kýrnar, en hef alla tíð síð- an verið hálf hrædd við ókunn ar beljur. — Fimmtán ára fór ég á kvenna skólann á Blönduósi og var þar í tvo vetur. Þá hélt ég norður og var einn vetur við barna- kennslu í Eyjafirði. Síðan lá leið mín suður á Kennaraskól- ann. Þar var ég næstu tvo vet- ur, en veiktist svo og var sett á heilsuhælið. Þar bar margt fyrir augu og eyru mér, og með al annars atburður sá sem frá- sögn mín hefst á. Ég hef skrif- að bók um hælið sem heitir Hvita höllin. Það er sannsögu- leg frásögn um veru mína á hælinu, og þau kynni sem ég hafði af sjúklingum og starfs- fólki. Sú bók hefur verið þýdd á ensku, af Vilhem Kristjáns- syni, sem er skólastjóri við her skólann í Winriipeg. Ég varð mjög glöð þegar mað urinn minn sótti um prests- embætti í sveit, Mosfell í Grims nesi. Ég kunni öll sveitastörf utan húss og innan. Og mér fannst það hæfa mér bezt að vera húsmóðir í sveit. Það var eina starfið sem mér fannst ég vera fær um að leysa sómasam- lega af hendi. Auk þess var ég sæmilega að mér í matreiðslu. Ég hafði verið á einu mat- reiðslunámskeiði á Akureyri, hjá Jónínu Sigurðardóttur frá Draflastöðum, en hún var eins og kunnugt er alsystir Sigurð- ar heitins búnaðarmálastjóra . . . Já, ég hlakkaði mikið til að gerast húsfreyja i sveit. En gleði mín hefði sennilega ekki orðið eins mikil, hefði ég vitað hvernig húsakynnin voru, þvi að segja má að þetta voru ekki mannabústaðir það var allt í falli, og mannhætta að ganga um bæinn. Sú saga verður ekki rakin nánar hér. En ég hlaklt- aði ákaflega mi'kið til þess að eignast skepnur, sérstaklega 7. nóvember 1971 mmmmm^^^m^m^mmm 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.