Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1971, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1971, Page 14
spyrnu, eöa leikið ekki — alveg eins og hann óskar, en í nautaati á skepnan ekki um neitt að velja. Og hún er drepin. S: Ef þér viljið harma dauða nautsins og gleyma dauða ungra manna, þá er það yð- ar mál. Við gætum sagt, að niðurstaðan væri sú, að nautaat sé tiltölulega ör- ugg, gróf íþrótt, sem Spán- verjar hafa ánægju af. Knattspyrna er tiltöiulega hættuleg, gróf íþrótt, sem Ameríkanar haí'a ánægju af. A: Já, en nautaat er á ein- hvern hátt niðurlægjandi. S: Ef þér viljið hafa það svo. 14. Þótt ég hafi þekkt flest stór- mennin meðal nautabana, su ;:ia allvel, hefur aðaláhugi minn ætíð beinzt að nautinu, því mér þykir þetta göfuga dýr eitt hið lofsverðasta allra dýra. Þegar það er látið vera innan um sína, er það spakt og auðsveipt. Sé það skilið frá hópnum ræðst það á allt, sem hreyfist. Hinn ósveigjanlegi hetjuhugur þess á sér engan samanburð, því það hefur ráðizt á og stundum borið sigurorð af bifreiðum, járnbrautarlestum, flugvél- um, vörubílum. I skipulögðum bardaga við ljón, tígrisdýr, fíla, birni og hunda er sjaldgæft að það hopi á hæl. Það hefur seiglu og einbeitni, sem á sér engan samjöfnuð í dýraríkinu. 10. júlí 1966 var nauti, sem ræktað hafði verið af César Moreno, att á móti nautaban anum Tinín á leiksvæðinu í Pamplona í þriðju umferð. Það sýndi eftirtektarverðan bar- daga, var eins hraust og naut gat verið, og var drepið með góðu sverðslagi. Ég segi drep- ið, því nautið var tæknilega dautt, en meðan líf þess fjar- aði út síðustu augnablikin, gekk það rólega næstum tvo hringi á sviðinu og leitaði að stað, þar sem það gæti varizt á þessum vígvelli, þar sem það hafði sýnt af sér svo mikinn sóma. Miklar klaufirnar hreyfð ust upp og niður, hraustlegt höfuðið reyndi fyrir sér hér og þar. Ef menn angruðu það, hrakti það þá burt og sparaði krafta sína, en afgreiddi þá eins og þeir væru nærgöngul- ar flugur. Áfram hélt það og neitaði að deyja, marséraði eins og rómversk hersveit, sem hefur orðið fyrir árás í norð- urhluta Spánar, einbeitt, sigr- að og mikilúðlegt. Menn, sem stóðu við hliðina á mér, voru með tárin í augunum, og ótta- sleginn Englendingur hvíslaði, „Guð minn góður, þetta er Winston Churchill nautanna.“ Þegar nautið fann ekkert vígi til að verjast úr lokastundina, sneri það bakhlutanum að veggnum, fæturnir stóðu gleitt, hornin ennþá hættuleg. Giæsi- legt höfuðið drúpti lægra og tægra unz yfir lauk. Múlasnar drógu nautið inn í hringinn svo að menn gætu látið blóm- um og lofsyrðum rigna yfir það, en þessi dauða sigurför var ekkert í samanburði við þær tvær sem það fór lifandi. Það eru svona dýr, sem sjást stöku sinnum í hringnum, og það minnir okkur á þann eig- inleika, sem býr með ölium skepnum. 15. Bardaganautið er af sér- stöku kyni, og meðal minna hamingjusömustu daga á Spáni og i Mexíkó voru þess- ar löngu og kyrrlátu siðdegis- stundir, sem ég notaði til að fylgjast með nautunum í þeirra upprunalegu heimkynnum. Þau eru eins og dökkir hópar minn- isvarða, sem ber við brúnar lendur, óraskanlega sama um menn og menn á stangli, sem nálgast þau. Ógleymanleg endurminning um slika daga er flokkur Concha y Sierra nauta í Las Marismas, sem lyftu höfðum þegar ég nálgað- ist, horfðu á mig nokkur and- artök og héldu svo áfram að bita. Mér hefur alltaf þótt vænt um dýr og hef eytt mörg- um stundum í að bera þau sam- an: Fíllinn er tignarlegri en nautið; ljónið er líflegra; tígris- dýrið er vissulega hræðilegra; en vegna hinnar meðsköpuðu göfgi dýraríkisins, göfgi, sem ég hef tekið eftir hjá hundum, hestum, fálkum, maurum, múr- meldýrum, antilópum og hjá hinum áðurnefndu þrem kon- unglegu dýrum, te'k ég nautið framyfir, eins og heimspeki- lega sinnaðir menn hafa gert frá alda öðli. Það er ekki af neinni tilviljun að naut mar- séra yfir kletta Aitamira og Lasceux; hinn ungi aðall á Krít hefði getað reynt hæfni sína móti ljónum og björnum, en andstæðingurinn, sem hann kaus, var nautið; og hægt hefði verið að sníða hina leyndar- dómsfullu helgisiði 1 Mithras utan um hvaða velskapað dýr sem var, en það var aðeins nautið, sem gaf þeim kraft og meiningu. Viðbrögð mín gagn- vart bardaganautinu frá Anda lúsíu eru nákvæmlega eins og viðbrögð forfeðra minna gagn- vart forfeðrum þess í Altamira og á Krít. 16. Hvað hef ég fundið í spánsku nautaati? Fegurðar- glampa, hraða rás hins óvænta, rökkvaða endurminningu um frumstæðan tíma þegar menn mættu nautum í trúarlegri at- höfn. Ég hef fundið tákn um afl og tign í nautunum; hjá mönnunum hef ég séð kunn- áttu, sem yenjulega er heiðvirð þótt ekki sé alLtaÆ hrósað sigri. Ég hef aldrei séð „corrida", sem kenndi mér ekki eitthvað eða fékk einhvers staðar óvænta framrás, og ég er fús til að láta mér þessa takmörk- uðu reynsiu nægja. Það gildir einu hversu ógæfuleg viður- eignin er, og snmar þeirra geta verið óhugnanlegar, þetta er hin forna saga hins vonglaða manns og hins villta dýrs og hins dularfulla bands, sem tengir þau. Af hverjum þúsund drengj- um, sem byrja að læra nauta- atshandbrögðin við tólf ára aldur, komast ef til vil'l hundr- að svo langt að beriast við gamlan bo'a á „capea"; miklu frerri munu nokki-u sinni fást við kvígu á nautabúi. Af hverj um hundrað, sem í raun og veru ná þvi markí að hafa bar- izt við naut sem byrjendur, verða aðeins fjórir eða fimm fuilgildir nautaibanar. Og af hverjum hundrað fullgildum nautabönum vei’ða aðeins fjór- ir eða fimm stórar stjörnur. Hinir óhagstæðu möguleikar í þessari grein eru yfirþyrm- andi. Bezta einstök heildai’viður- eign, sem ég hef séð hingað til, vsir það, sem E1 Viti fram- kvæmdi með nautabanaklæð- inu dag einn i Madrid. Heppn in hafði fært honum illan bola, dálítið verri en þá, sem hinir nautabanarnir höfðu gengið burt frá með fyrirlitningu eft- ir að haifa slátrað þeim blygð- unarlaust. E1 Viti tók við ön- ugum bolanum og byrjaði að gefa honum bæði stefnu og ör- yggi með snilldarlegum lágum höggum. Bolin þurfti aldrei að gera árás af meira en fárra feta færi og horn hans voru alltaf þannig staðsett, að ekki þurfti nema slæma sveiflu til hægri eða vinstri til að reka E1 Viti í gegn. Hægt og rólega og með óendanlegri nákvæmni hélt viðureignin áfram, og smátt og smátt gerði nautaban inn göfugt dýr úr þessum bola, sem gerði árásir í bræði og fylgdi klæðinu eins og til var ætlazt. Leikurinn stóð lengi, og E1 Viti framkvæmdi öll þau handbrögð, sem nautabani á að gera með klæðinu og hélt óstýrilátum bolanum eins ná- lægt sér og ég hafði manninn, sem sat við hliðina á mér. Þetta var íþrótt svo af bar, svo dá- samleg, að áhorfendur voru farnir að öskra af aðdáun á þessari hreinræktuðu snilld. Loks tók E1 Viti sér stöðu fyrir framan bolann, sem áður var hættulegastur allra bola, og lyfti sverði sínu til bana- lagsins. Hann beið. Bolinn vildi ekki gera árás. Hann beið enn um stund, sem aldrei virt- ist ætla að líða. Loksins gerði bolinn árás, og það var hættu- legasta aiugnablik atsins, þvi maðurinn þurfti að færa sig fram á við, komast fyrir horn- ið og komast einhvern veginn undan um leið og sverðinu var lagt. En í þetta sinn hreyfði E1 Viti sig ekki. Hann stóð teinréttur og Íeyfði nautinu að komast að sér; um leið og skepnan geystist fram með öll- um þunga, stóð maðurinn föst- um fótum, lokkaði bolann til hægri með klæðinu og beindi sverðsoddinum að hinum ban- væna bletti, þar sem sverðið stakkst á kaf fyrir þunga bol- ans við árásina. E1 Viti hafði drepið með „recibiendo", það er, tekið á móti nautinu meðan hann stóð föstum fótum, og maður getur verið viðstaddur hundrað viðureignir án þess að sjá þetta gert vel eða gert yfirleitt eða jafnvel reynt. En að hafa beitt þessu með fullum árangri við slíkt naut nálgað- ist kraftaverk. Á þessu timabili kom fram ungur fuHhugi, sem átti eftir að setja svip á samtíð sína. Það var E1 Cordobés, ólæs götustrákur frá borg nálægt Córdoba, sem raifmagnaði nautaatsheiminn með dýrsleg- um hfskrafti, sem hann sýndi á nautaatsvöllunum. Hann bar í senn einkenni fjöliistamanns- ins, skógarguðs og innblásins túlkanda og seldi gífurlegan fjölda aðgöngumiða og heillaði fólk í rikum mæli, en þó ekki mig. 1 afiskekktustu borgum Mexíkó, þar sem umboðsmenn höfðu lent í erfiðleiikum og ekki fengið nema hálfa aðsókn einu sinni á ári, var nú hægt að halda þrjár sýningar á þremur dögum og fylla áhorf endastúkurnar með því einu að auglýsa nafn E'l Cordobés. Hann blés nýjum lifskrafti i nautaatið með sinn óstýrláta hárliubba, rokk-háttalag og sín ar óvenjufallegu tennur, en ég er eklki viss um að það hafi lengur verið list. Það var eitt- hvað annað. 17. Hin nýja lögskipan, sem leyf ir frelsi að vissu marki til handa þeim, sem ekki eru kaþölskir, er þýðingarmeiri en virðist við fyrstu sýn, og satt að segja bjóst ég ekki við slíku frjálsræði svo skjótt. Fyrir aðeins fáum árum var mótmælendaprestur við amer- íska herstöð 1;ekinn fastur þeg- ar hann stóð fyrir skógarferð sunnudagaskóla í almennings- garði nokkrum, því þetta var talið brot á löguim þeim, sem banna öllum trúarstefnum nema kaþólskum að halda messur eða trúariegar samkom- ur opinberlega. Reyndar hef ég sagt frá því þegar ég kom til Santiago de Compostela, sem er sjálft hjarta kirkjunn- ar á Spáni, að kirkjan sjálf bauðst til að greiða fyrir þvi að ég gæti sótt guðsþjónustu í mótmælendakirkju. Og þeg- ar ég var síðast í Madrid birtu blöðin langar mynd- skreyttar greinar um skipan innLends mótmælendabiskups, að vísu með tilvitnuninni „Kvæntur með tvö börn.“ Spánn mun halda áfram að vera kaþólskur og það í rífc- ari mæli. en bæði Frakkland og ítalía; blöðin munu halda áfram að skrifa um þróunar- mál kirkjunnar í aðalfréttum sínum; og kirkjan mun halda áfram að vera meginafl í land- inu. En liíllegar kappræður innan kirkjunnar munu ákvarða þá félaigslegu og póli- tisku stefnu, sem hún tekur. í síðustu ferð minni til Spánar veittu blöðin til dæmis óhóf- lega mikið rúm fyrir umræður í ítalska þinginu um takmörk- uð hj'ónaskilnaðarlög. Ég spurði, „Hvað veldur þessum skyndilega áhuga á ítölskum stjórnmálum?" og blaðamaður svaraði mér, „Okkur stendur hjartanlega á sama um Ítalíu. En við höfum mikinn áhuga á tilraunum kaþó'sks lands til að eigna:st framkvæmanLeg skilnað arlög. Okkur er bannað að ræða spánsk lög. Þess vegna ski’ifum við u,m Ítalíu eins og hún væri Spánn og allir skilja hvað átt er við.“ Smásagan Frainhald af bls. 15. ílg gekk kviðafullur að smá matarklefa aftast i vagninum. Þar var snyrtilega lagt á borð en Elsa svörunum rigndi yfir mig — en ég varð að visa þeim á bug. Elsa hsfði aldrei farið augnablik frá vélinni. Ekki gat henni hafa dvalizt við nágrannarabb þeir voru engir. Þá heyrði ég skyndilega veikan andardrátt bak við lok rekkjuhengið. „Elsa!“ Ég snerist á hæli og þreif hengið frá. Þar lá hún föl og hljóð. Ég kraup vdð rúmstokkinn hún dró naumast andann. „Elsa,“ hvíslaði ég. Hún svaraði engu, og bærði ekki á sér, þó heyrði ég að hún andaði Ég neri gagnaugu hennar og úlnliði, ýtti varlega við henni — og hristi hana síð- an til i ofsahræðslu. Þá hreyfði hún sig lítið eitt. Það var að mér komið að hlaupa eftir lækni, en ég þorði ekki að yfirgefa hana. Þá mundi ég eftir koníakinu. Ég fálmaði skjálfandi höndum inn í skáp- inn, helti í glas og dreypti smá sopa milli vara hennar. Það hreif að lokum. Hún bærði var irnar, yfirbragðið breyttist — smá hóstakjöltur, síðan hálf- opnaði hún augun. Þau voru starandi. Er ég hafði haldið um hendur henn- ar langa stund, virtist hún komast til meðvitundar, augun fylltust af ótta, og hún stundi. Þegar ég tók hana í faðm minn, féll sængin, og ég sá að hún var nakin. Líkami hennar var þakinn áverkum, hrottaleg fingraför á herðunum, og blettir eft-ir barsmíðar. Mér er ekki léttbært að rifja upp þessi þögulu augnablik við hlið konu minnar. Ég þrýsti henni að mér, og leit undan þeg- ar hún hreyfði sig að lokum, til þess að hún sæi ekki þjáning- una, sem brann í augum mín- um. Hún nötraði langa stund, síðan brast hún í örvæntingar fullan grát. Um siðir færðist yf ir hana ró, og hún sagði í svo eðlilegum rómi að það skelfdi mig: „Hann drap mig. . . liann drap inig.“ Ég man ekki lengur hvernig ég rakti flækju þessarar skelfi legu stundar. Ég gældi lengi við EIsu og huggaði hana eins og barn. Seint og síðar meir færðist yfir hana ró, en þegar hún fór að skjálfa á nýjan leik, óx bræði mín um allan helming, ég missti alla sjálfsstjórn og jós yfir hana ofstopafulLum spurn- ingum. „Hver var það? Hver, og hvenær? Hvernig vildi það til ?“ Og þanni-g áfram, þar til öll smánarsagan var rakin. Hvernig farandsalinn laust. . . „Farand,sali?“ „Já.“ „Ertu alveg viss? Var hann með þessa venjulegu tösku og sýnishorn?" „Já.“ Hún lýsti því er hann drap á dyr og ónáðaði hana við verk in, vatt sér brosandi inn um dyrnar, glápti dólgslega á hana meðan hann blaðraði um matar áhöld, þreif til hennar og hélt henni fastri. . . hvernig hún veitti mólspyrnu þangað til hún missti meðvitund. . . Meðan hún sagði frá var hún gripin ótta, sem gjörði hana einkennilega æðrulausa — eða svo var að sjá. Hún Útgefandl: H.f. Arvakur, Reykjavik Framkv.stJ.: Haraldur Svelnsson llltstjórar: Matthfas Johannessen Eyjólfur Konr&ð Jónsson AóstoftarrltstJ.: Styrmlr Ounnarsson RitstJ.fltr.: Glsli Sigurösson Auglýslngar: Árnl Garftar Krlstlnsson Ritstjórn: ASalstræti 6. Slmi 10100 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. nóvember 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.