Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1971, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1971, Qupperneq 13
liirgfir 1. vélstjóri og Magnús 2. vélstjOn. Alltaf var skipstjórinn jafn- hress og sprækur hvort heldur ég heiansótti hann að morgni eða kvöldi og alltaf jafnvak- andi fyrir siglingunni og skipi sínu. Það er sannarlega ekki sofið á verðinum á Mánafossi. 1. stýrimaður er Finnbogi Gislason frá Akureyri. Hann er sonur Gísla Magnússonar, sem látinn er fyrir nokkrum ár- um og var þekktur og mjög vinsæll borgari á Akureyri. Hann starfaði í marga áratugi hjá Eimskip á Akureyri. Gisli var mikiil húmoristi og sjór af sögum og þjóðlegum fróðleik, enda safnaði hann bókum af því tagi — og las þær. Hann var mikil afkastamaður við störf og snaggaralegur í tilsvör um og gat verið gustmikill, þegar í mörgu var að snúast en alltaf hlýr og hjálpsamur ef leyisa þurfti einhver meiri hátt ar vandræði manna. Finnbogi virðist hæglátari maður er faðir hans, en samt fannst mér af stuttum kynnum, að margt væri lifet með þeim feðgum. Það virtist að minnsta kosti stutt i glettnina i augum Finnboga ekki síður en föður hans. Finnbogi réðst til Eim- skip 1950, þá á Goðafossi, og hefur síðan verið samfellt hjá félaginu, nema þá vetur, sem hann var i skólanum, en þaðan 'lauk hann prófi 1956. 1. vélstjóri á Mánafossi er Þór Birgir Þórðarson (alltaf nefndur Birgir) fæddur og uppalinn á ísafirði en Inn- Djúpsmaður að föðurætt. Þórð ur Þórðarson, faðir hans, rak vélsmiðju á Ísafirði. Þórður lézt áður en ég þekkti til á Isafirði, en mér er sagt, að hann hafí verið hinn mætasti smaður og góður vélsmiður. Sonum hans þremur kippir í kynið. Þeir eru allir þekktir vélstjórar í flöíanum. Sigurjón er þeirra etetur. Hann er 1. vél Útgefandl; H.f. Árvakur, Rcykjavik Framkv.stJ,: llaraldur Svelnsson Rltstjórar: Mitdifu Johanncsscn Eyjölfur Konráð Jónsson ASstoSarritstJ.: Styrmir Gunnarsson RltstJ.fltr.: GUU Sifnrflsson Auglýsingar: Arnl GarSar Krlstlnsson Kltstjórn: ASalstrætl 6. Síml 1010« stjóri á togaranum Vík- ingi. Jens er næstur og var lengi vélstjóri hjá Rifeis- skip en nú farinn í land — rétt einn í Straumsvíik — og þriðji er Birgir. Allir eru þeir bræð- ur mifeilsmetnir vélstjórar. Þeir eru með hæstu mönnum á vöxt og þeir Sigurjón og Jens voru alþekkt hraustmenni, þeg ar ég var til sjós, og sjálfsagt er Birgir það lika, en til hans þefeki ég minna á því sviði. Þeir voru margir sterk- ir Inn-Djúpsmennirnir, sem ól- ust baiði upp við árina og mik- inn burð og langan gang með sjófang fram í dalina, og kraft ar hafa gengið í ættir þar sem vxðar. Birgir lauk prófi frá Vélskól- anum 1950 og var þá eitt og háíft ár á togurum, en hefur verið hjá Eimskip síðan. Ekki má gleyma brytanum, ÁrsasLi, síbrosandi og elskuleg um og svo næmum fyrir mann- legum þjáningum, að hann sá það langleiðis, ef eitthvað þjáði mann. Ársæli er Norð- firðingur og kann ég ekki nein deili á hans fólki, þar sem það er að austan en það hiýtur að hafa verið gott fólk. Ársæll er sístarfandi um borð en alftaf jafn rólegur og reiðubúinn til að gera að gamni sínu, þó að í mörgu væri að snúast. Yfirmatsveinninn á Mána- fossi er Þórarinn Friðjónsson, en hann þekkti ég frá ungfflngs árum hans á Akureyri. Það þóttiu mikiJ tíðindi á Akureyri, þegar sýslumannssonurinn lýsti því yfir, að hann ætlaði að vera matsveinn því að Ak- ureyrimgar telja eðlilegt að höfðiingjasynir feti i fótspor feðra sinna, þar sem Þórarin skorti heldur ekki hæfileika til bóknáms, ef hann vildi. En hann tók nú þetta í sig og í báðum ættum hans er fölk. sem ógjarnan lætur stjórnas: af öðrum. Ég hef oft spurzt fyr ir um Þórarinn, því að mér var farvitni á að vita, hvernig hon um reiddS af með þetta tiltfeki sitt. Það vill nefnilega oft mis- lukkast fyrir ungum mönnum, að hundsa umhverfi siitt og fara eigin götur. Þórami hef- ur hvarvetna, það ég veit til, verið borið háð bezta orð og er mjög vel látinn um barð i Mánafossi og ekki verr settur í iifinu, en þó að hann liefði gerzt athafnamaður svo sem móðurfrændur hans eða emb- RABB I FYRIR nokkm átti ég orðrœður við eina ágœtis móður, sem viðraði meðal annars þá skoðun sína, að hún vildi láta leggja niður kristindómsfrœðslu í skólum í þeirri mynd sem hún vœri nú. Og ekki nóg með það, þessi unga nútíma móðir kvaðst einnig vera ákaflega andvíg því að fræðsla um kynferðismál vœri tekin upp í framhaldsskólum. Þar sem hvor tveggja málin hafa verið tálsvert á dag- skrá er ekki úr vegi að kynnast örlítið nánar þessu mati konunnar og íhuga, hvaða forsendur liggja til afstöðu henn- ar. Hún hélt því fram að þessi frœðsla œtti ekki að fara fram í skólunum, ein- faldlega vegna þess að það vœri í verka- hring heimilanna að fjalla um þau við börnin. Kristinfrœðikennslu vildi hún ekki láta leggja í hendur meira eða minna misviturra og mistrúaðra kennara, hversu gagnmerkir sem þeir væru að öðru leyti. Trúarbragðafræðsla lilyti að vera það mikið og viðkvœmt einkamál hverjum foreldrum, sem á annað borð tækju krist- in frœði hátíðlega að í rauninni hlyti for- eldrum að óa við því að geta ekki í friði og upp á eigin spýtur frætt börn sín um þau. Sama máli gegndi í raun og veru um frœðslu í kynferðismálum; slíkar hópleið- beiningar gætu brugðið til beggja vona og hugsanlega orðið til þess að börnin fengju meira og minna öfug- snúnar hugmyndir í stað raunhœfrar vitneskju. Ég minnist á þetta hér, vegna þess að mér þótti afstaða hennar verð athygli, ekki vegna þess að ég sé henni sammála að öllu leyti. Að vísu get ég — og ég efa ekki að svo sé um fleiri foreldra — fall- izt á að kristinfrœðikennsla í barnaskól- um að minnsta kosti er ákaflega yfirborðs- kennd og alls ekki að mínum dómi fallin til þess að glœða með baminu þann skiln- ing og þá tilfinningu fyrir kristinni trú, sem foreldrar hljóta að óska eftir, ef trú- aðir eru í hjarta sínu. Það er ákaflega vafasamt, hversu þroskandi það er trúarkennd ungs bams að lœra utan að dœmisögur, sem það botnar takmarkað í, eða lœra að þylja boðorðin tíu upp eins og páfagaukar án þess að nókkrar viðhlítandi skýringar fylgi. 1 þeirri kristinfrœði, sem börn læra á barnaskólastigi er siðfrœði kristinnar trú- ar nánast afskipt; þar gildir lögmál utan- bókarlœrdómsins út í œsar. En kristin frœði eiga elcki að vera undir sama hatti og önnur „kjaftafög“, til þess eins að hækka aðaleinkunnina, vegna þess að biblíusög- ur eru svo auðvelt fag, vegna þess hvern- ig þær eru matreiddar og bornar á borð fyrir hina ungu nemendur. Því get ég að öllu samanlögðu veriö sammála kon- unni um það, að annað tveggja verður að gera gangskör að því að gerbylta því fyrirkomulagi sem hefur ríkt í kristin- frœðikennslu í barnaskólum, fela hana í hendur sérfróðum mönnum eða leggja hana hreinlega niður og taka þess í stað upp almenna trúarbragðafrœðslu — rétt eins og mannkynssaga er kennd. Því er þó ekki að leyna að ég vantreysti heimilun- um ákaflega mikið til að taka að sér hlut- verk uppfrœðarans um kristinfræði, vegna hins almenna doða, sem um þau mál ríkir og e.t.v. líka þekkingarskorts. Og raunar gegnir þar sama máli um frœðslu í kynferðismálum. Það er vitað að foreldrar hafa ekki fram að þessu treyst sér til að ræða þau mál við börn sín. Slík feimni hefur ríkt að nánast er með ólíkindum. En feimni dugir ekki lengur. Nútíma böm telja sig eiga heimt- ingu á að fá skýr og skilrnerkileg svör við spurningum sínum og þau eiga rétt á þeim. En þá er komið að hliðstœðu vanda- máli, þar sem er þekkingarskorturinn. Jónas Bjarnason læknir, sem hvað ötul- legast hefur unnið að því á síðustu árum að frœðsla um þessi mál verði tekin upp í framhaldsskólum, hefur látið hafa eftir sér, að foreldrar, sem komnir eru um og yfir 35 ára aldur, séu margir það fá- fróðir sjálfir, að ekki sé við því að bú- ast, að þeir geti veitt afkvœmum sínum frœðslu, hvort sem bundið væri við kyn- fœrafrœðslu eða álmennar leiðbeiningar um kynferðismál. Meðan svo er hlýtur að vera óhugsandi að búast við að foreldrar geti leitt börn sín í nokkurn sannleika. Sjálfsagt er þetta að breytast og ætti að vera komið í sœmilegt horf með næstu kynslóð. En meðan svo er ekki, fæ ég ekki séð annað en fela veröi þetta hlutverk sérfróðum mönnum í skólunum, og þá vœri auðvitað langæskilegast að lœknar fengjust til að taka það að sér. Að þessu öllu samanlögðu lilýtur svo hugurinn að hvarfla að einu atriði til við- bótar og ýmsar spurningar að vakna um ábyrgð heimilisins í samfélaginu. Við fjöllum um stöðu konunnar í nútíma- þjóðfélagi. Venjulega fylgir slíkri fyrir- sögn meira og minna djúphyglisleg könn- un á fyrirbœrinu. Venjulega finnst mér þar aðallega vera vikið að þeim kröfum sem nútímakonan telur sig geta gert á hendur þjóðfélaginu — sem oftast reynist vera í karlmannslíki — hún er beitt slíku misrétti að það nær' engri átt og verður úr að bœta. Allar slíkar jafnréttisraddir eiga fullan rétt á sér, en í framlialdi af þeim vœri kannski ekki úr vegi að taka fyrir og gera úttekt á ábyrgðartilfinning- unni í nútímaþjóðfélagi. Segja mœtti mér að þá gœti ýmislegt forvitni- legt komið upp úr kafinu. Jóhanna Kristjónsdóttir. Þvi er ekki að neita, að ég er snobbaður fyrir skipstiórn- armönnum, kannski af því að mig langaði eitt sinn til að verða skips'jóri, það var reyndar draumur allra ungra manna i sjávarþorpinu, sem ég ólst upp í — en það er þó ekki vegna snobbs, að ég umgekkst fáa nema skipstjórn- armennina á Mánafossi, heldur voru þeir oftast í færi. ættis- og lærdómsmaður svo sem föðurfrændur hans. Öðrum og þriðja stýrimanni kynntist ég Mtið. Þetta eru ungir menn, Magnús Sigurðs- son, 2. stýrimaður er ættaður frá Stykkishólmi og l'auk prófi úr skólanum 1962 en 3. stýrimaður, Ingvi Friðriksson, sem er Reykvíkingur að upp- runa, lauk prófi 1967. Þetta eru hvort tveggja mjög geð- felldir ungir menn og eiga von andi fyrir sér aukinn frama hjá Eimskip. 2. vélstjóri er Þorsteinn Pét- ursson frá Hellisandi. Honum kynnitist ég efekert, af því að ég hætti mér sjaldan, eins sjaldan og ég get, niður i vél- arrúrn skipa sem ég er á. Þar hringsnýst allt fyrir augunum á mér og ég kann engin deili á neinu á þeim stað. 21. nóvember 1971 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.