Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1973, Qupperneq 14
1L
t RÆÐU Geirs Hallgrímssonar, þáverandi.
borgarstjóra, á áttrœðisafmœli Kjarvals 14.
okt. 1965 segir hann að þá um daginn hafi
„borgarráð samþykkt samhljóða á fundi sín-
um“ ályktun sem fœrð var til bókunar. Sé þessi
ályktun í samrœmi við fyrri ákvaðanir borg-
arstjórnar. í ályktuninni er lýst tillöguupp-
drœtti að myndlistarhúsi á Miklatúni
„og verði byggingarnar tengdar nafni hans
(þ. e. Kjarvals)“. Síðan segir þáverandi borg-■
arstjóri að ályktunin sé gerð listamanninum
til heiðurs. Enginn myndlistarmaður haföi
sýnt málefninu jafnmikinn áhuga og sjálfur
oddviti íslenzkrar myndlistar, J. S. Kjarval,
enda var það honum einkar hjartfólgið eins og
kunnugt er. Aftur á móti hafði hann fremur
lítinn áhuga á svonefndu Kjarvalshúsi á Sel-
tjarnarnesi, þótt það sé vafalaust ágœtt hús, og
mœtti vel breyta nafni þess að skaðlausu. En
án lífsstarfs Kjarvals hefði myndlistarhúsið á
Klambratúni (ég er alinn upp við það nafn)
ekki risið, a.m.k. ekki með þeim hœtti sem
raun varð á. Hitt er annað mál aö þáverandi
borgarstjórn undir forystu Geirs Hallgríms-
sonar á heiður skilið fyrir áhuga sem breytti
draumi Ustamanns í veruleika.
fslendingar eru nánast sérfrœðingar í að
daufheyrast við óskum listamanna sinna, en
hafa venjulega dýrkað þá dauða, kannski af
einhverri duldri gleði yfir því að þeir séu hætt-
ir að flœkjast fyrir „venjulegu fólki“ og láta
að sér kveða, svo að notaður sé minningagreina-
stíll. Kjarval haföi þó þá sérstöðu að hann
naut hylli í lifanda lífi. Rn þá gerist það, að
honum látnum, að reynt er að svíkja gefin lof-
orð við hann og minningu hans — og ekki sízt
fólkið i landinu sem ann honum og list hans:
í stað þess að standa við gefin loforð og tengja
sýningarhúsið nafni hans, eins og greinilega er
komizt að orði i fyrrnefndri ályktun borgar-
ráðs, er gengiö á gefin loforð og reynt að klína
hlutlausri innanbúðarkurteisi á húsið: „Mynd-
listarhúsið á Miklatúni“ er það nefnt í nýut-
gefnum bœklingi í tilefni af opnun þess 24.
marz s.l., en þess þó getið á titilsíðu að húsið
sé „reist i tilefni af áttræðisafmœli Jóhannes-
ar S. Kjarvals". enda tók hann fyrstu skóflu-
stunguna.
Hver leyfir sér að ganga svo á gefin loforð
og samþykktir borgarráðs? Mér er sagt að
deilur eða óskiljanlegt stapp hafi orðið af
nafni hússins og œttu einhverjir menn úti i bœ
sem aldrei hafa verið bendlaðir við listir að-
ild að þeim, auðvitað vegna „pólitískra áhrifa“.
Kjarval kunni betri skil á slíkum leikbrúðum
en ég og mega þœr þakka sínum sœla fyrir að
hann er ekki lengur ofar moldu. En síðan
hvenœr hefur það þótt gott siðgœði á landi
voru að brjóta gefin loforö, jafnvel loforð sem
gefin eru í opinberum ályktunum og íilkynnt
hátíðlega á afmœlisdögum? Er enginn hlutur
svo mikils verður á voru landi lengur að ekki
þyki sjálfsagt að drepa hugsjónina að baki
honum með þeim andlega þurrafúa sem ein-
kennir flesta framtóninga íslenzka ijnú um
stundir? Svik við listamenn œttu jafnvel að
vera fordæmanlegt athœfi. En um það er víst
ekki „þjóðareining“!
Á þetta hef ég viljað benda. Og sannarlega
er ástœða til að varpa fyrrnefndum spurning-
um fram. íslendingar gætu eignazt víðfrægan
listmálara, ef rétt vœri á spilum haldið og úr-
val verka meistara Kjarvals (óviðeigandi er að
nota þennan heiðurstitil urr\ aðra listamenn en
þá Þórberg) vœru sýnd á skipulegan og vel
undirbúinn hátt í 10—15 stórborgum víðs veg-
ar um heim. Þá mundi gengi hans ekki lengur
vera fljótandi eins og þeir virðast keppa að
sem þora ekhi eða vilja ekki gefa Kjarvals-
stöðum nafn við hœfi — og samkvæmt gefnu
loforði. Sem einhvers konar málamiðlun hef-
ur verið klínt nafni á einn sal Kjarvalsstaða og
stendur yfir dyrum hans: Kjarvalssalur, að
mig minnir. Þetta nafn má að skaðlausu falla
niður eins og nafnið á Kjarválshúsinu, enda
óþarfi þar sem Kjarvalsstaðir munu nœgja.
En á Kjarvalsstöðum eiga myndir meistarans
auðvitað heima, ásamt verkum annarra ís-
lenzkra myndlistarmanna. (Getur verið rétt að
einhverjir þeirra þoli ekki Kjarvalsnafnið á
húsinu?)
Ég heiti á alþýðu manna sem lœtur yfirleitt
ekki bjóða sér allt að nefna Kjarvalsstaöi áfram
aldrei annað en segir í ályktun borgarráðs:
„og veröi byggingarnar (bœði eystri og vest-
ari byggingar sýningarhússins) tengdar nafni
hans“. KJARVALSSTAÐIR skal sýningarhúsið
heita, en allra sízt hlutlausri málamiðlun eins
og „myndlistarhúsið“. Málamiðlun á kannski
rétt á sér í stjórnmálum, en ekki í list. Ef al-
menningur tekur af skarið og nefnir húsið
aldrei annað en Kjarvalsstaði, mun það nafn
verða ofan á og þá þurfum viö ekki að bera
kinnroða fyrir að svíkja minningu eins fremsta
sonar þjóðarinhar. Eins og hann umgekkst
lyng og rjúpu, þannig skulum við einnig um-
gangast nafn hans og minningu. Að öðrum
kosti munu huldar vœttir landsins kalla okk-
ur til ábyrgðar. Það verður áldrei fljótandi
gengi á list, lífsstarfi og minningu Jóhannes-
ar S. Kjarvals.
Matthías Johannessen.
Andlitsmyndin
Framh. af bls. 13
skapaðan hlut! Hann gat 'haft tón
listina sína og alla marmaramol-
ana! Hún kreppti höndina um
töskuna undir kápunni. Mikið
gat þetta leyndarmál hennar ver-
ið skemmtilegt og æsandi!
Hr. Bigger spennti greipar og
hélt höndunum fast að brjóstinu
eins og leikari á sviði. Hann
skemmti sér ágætlega. Hann
beindi langa, íbyggna nefinu að
gósseigandanum og torosti vin-
gjarntlega. En gósseigandino, fyr-
ir sitt leyti, var ekkert nema at-
hyglin.
— Og hvað svo? spurði hann.
Hr. Bigger rétti úr 'höndunum
og lét þær falla ofan á bnén.
— Jæja, gondólinn lendir oú
við dyrnar hjá Giangolini, lá-
varðurinn bjálpar 'konu sinni
upp úr honum, 'leiðir hana að dyr
um málarans á fyrstu hæð, felur
hana honum á hendur með venju
legum kurteisisorðum, og leggur
síðan af stað áleiðis á morgun-
hljómleikana hjá Galuppi í Mis-
ericordia. Nú 'hafa elskendurnir
tvo klukkutíma til að búa sig til
ferðarinnar.
— Þegar gamla fíflið er horfiö
sjónum, skýtur þarna upp vini
málarans, grímuklæddum eins og
öflum öðrum. Allt hefur gengið
eftir áætlun, enginn grunur vakn
að. Frúin tekur skartgripaskrínið
undan kápunni. Hún opnar það
og herrarnir reka upp undrunar
óp. Elskendurnir fallast í faðma.
En þá toendir viourinn þeim á,
að enn sé ýmislegt smávegis
ógert. Þau verði að undirrita
vegatoréfin sín hjá lögreglustjór-
anum. Þetta sé bara formsatriði,
en þurfi að gerast. Um !eið ætlar
hann að fara og sölja einhverja
skartgripi fyrir ferðakostnaðin-
um.
Hr. Bigger gerði ofurlítið hlé
tiH Iþess að kveikja sér 5 sígar-
ettu. Svo tolés hann út úr sér
reykjarstrók og hélt áfram sög-
unni.
— Svo fóru þau Iþá út, öll
grímuklædd, vinurinn í eina ótt
og elskendurnir í aðra. Já, þessi
Feneyjaást! Hr. Bigger leit upp í
loftið með hrifningarsvip. — Haf-
ið þér nokkurn tíma verið í Fen-
eyjum og ástfangin? spurði hann
igósseigandann.
— Aldrei komið lengra en til
Dieppe, svaraði hinn og hristi
höfuðið.
— Þá ihafið þér misst af miklu.
Það þarf að koma á staðinn til
þess að geta gert sér í tougar-
lund tilfinningar ilafði Hurtmore
og listamannsins, þegar þau liöu
eftir skipaskurðinum og störðu
hvort á annað gegn um augnagöt
in á grímunum. Kanns'ki hafa
þau kysstst öðru hverju, enda
þótt það 'hefði nú orðið erfitt
nema taka af sér grímuroar og
svo hefði ilíka eirthver getað
þekkt þau. Nei, Ifklega hafa þau
látið sér nægja að horfa bara
hvort á annað. En í Feneyjum get
ur iþað nægt að ihorfa bara —
bara horfa.
Hann pataði út höndunum og
llækkaði röddina og iþagnaði. Svo
saug hann sígarettuna þrisvar án
þess að mæla orð. En þegar hann
tók aftur ti'l rnáls, var röddin lág
og róleg.
— Eitthvað hálftíma eftir að
þau fóru, lenti gondóli við dyrn
ar hjá Giangolini, og maður með
pappírsgrimu, svelpaður svartri
skikkju og með þríhyrndan hatt á
höfði, steig út og gekk áfeiðis til
herbergis málarans. Þar var aflt
autt og tómt. Málverkið brosti
sætlega oig dálítið ástleitið frá
trönunni. En þarna stóð enpínri
málari fyrir framan Iþað og ryrir-
sætustóllinn stóð auður. Lang-
nefjaða gríman leit um allt her-
bergið með sviplausri forvitni.
Loksins stöðvuðust augun við
skrínið, sem hafði verið skilið eft
ir á borðinu — galtómt. Hann
horfði 'lengi á þetta, og virtist í
þungum þönkum.
— Skömmu seinna beyrðist
fótatak í stiganum og svo tvær
hlæjandi raddir. Grlímumaðurinn
sneri sér og Ihorfði út um glugg-
ann. Að báki bonum opnaðist
Ihurðin með harki, og elskendurn-
ir komu þjótandi inn, hlæjandi og
skríkjandi.
— Haha, igóði vinur! Þú ert
bara kominn aftur. Hvernig gekk
með demantana?