Lesbók Morgunblaðsins - 30.06.1974, Qupperneq 16
Rætt við
Ingigerði
Framhald af bls. 3
greindri upphæö um kr. 6.000.00,
sem þurft hafa aö nægja þá
mánuði til fæöis og klæðis. Það
hlýtur að teljast mjög hófleg
upphæð, þó að miðað sé við
verðlag á þeim tíma, þegar þessar
tölur voru í gildi.
Tekið skal fram, að í áður-
nefndum bæklingi um Almanna-
tryggingar segir, að heimilt sé að
greiða uppbót á lifeyri ef lífeyris-
þegi kemst ekki af með tekjur
sínar vegna sérstaks kostnaðar.
Sækja verður sérstaklega um
þessa viðbót lífeyris og gera grein
fyrir þeim óvenjulega kostnaði,
sem um er að ræða. Þar er enn-
fremur vakin athygli á því, að um
allar bætur Almannatrygginga
gildi það sama: Um þær verður að
sækja. Upplýsingar í þessum
bæklingi varða aldraða sérstak-
lega.
Við spyrjum Ingigerði, hvort
hún hafi kynnt sér þær. En svo er
ekki. Ef til yill hafa þær farið
fram hjá fleiri. Auðvelt væri og
BRIDGE
í eftirfarandi spili sjáum við mikla baráttu milli sagnhafa og
varnarspilaranna og kemur þar fram, hve mikilvægt það er, að
varnarspilarar fylgist vel með og séu ávallt á verði gagnvart
fyrirætlunum sagnhafa.
S: 8-6
H: Á-K-6-4-2
T: Á-8-6-5-3-2
L: —
S: K-G-1 0-9-5-4
H: 10-5
T: K-7-4
L: Á-4
S: Á-D-7-3-2
H: G-9
T: D-G
L: K-D-5-3
S: —
H: D-8-7-3
T: 10-9
L: G-10-9-8-7-6-2
Sagnir gengur þannig:
SUÐUR
Pass
Pass
Pass
Pass
Pass
VESTUR
1 spaði
2 grönd
3 grönd
5 tíglar
Redobl.
NORÐUR
Pass
Pass
Pass
Dobl.
Allir Pass
AUSTUR
2 tiglar
3 hjörtu
4 hjörtu
Pass
Suður lét úr laufa gosa, drepið var i borði með drottningu,
norður drap með ási og sagnhafi trompaði. IMú lét sagnhafi út
spaða 6, suður trompaði, lét út laufa 10, sem drepin var með
kóngi, en sagnhafi lét hjarta 2. Tigul drottning var látin út,
norður gaf, sama gerði sagnhafi, næst var tigul gosi látinn út,
norður drap með kóngi, sagnhafi drap með ási og tók síðan slag
á tígul 8 og þá var staðan þessi:
S: K-G-1 0-9-4
H: 10-5
T: —
L: —
S: Á-D-7
H: G-9
T: —
L: 5-3
S: —
H: D-8-7-3
T: —
L: 9-8-7
Sagnhafi tók nú einn slag til viðbótar á tromp, suður lét lauf,
lauf var látið úr borði og norður lét spaða 9. Næst tók sagnhafi
ás og kóng i hjarta og lét siðan út siðasta trompið. Norður var
ekki nægilega vel á verði og lét spaða 4 og átti þá eftir K-G-1 0 i
spaða. Sagnhafi lét næst út spaða 8 og gaf i borði, norður fékk
slaginn, en varð að láta út spaða og sagnhafi fékk 2 siðustu
slagina á ás og drottningu i borði og vann þar með spilið. —
Láti norður spaða 10 i stað fjarkans, þá getur liann gefið spaða
8 og sagnhafi verður að gefa 2 siðustu slagina á hjarta til
suðurs.
S: 8
H: Á-K-6-4
T: 6-5
L: —
ástæða til að birta þessar
upplýsingar í heild, t.d. í blöðum,
fyrir þá sem ekki hafa náð að
kynna sér það, sem þar er fram
tekið, en eiga hlut að þessum
málum. Vegna hinna öru
verðlagsbreytinga nær ekki til-
gangi að birta þær hér og nú,
enda mun vera von á breyttum
ákvæðum stjórnvalda, sem miða
að bættri aðstöðu í fjárhags-
málum aldraðra.
Það er orðið áliðið dags og farið
að skyggja. Borgarljósin gefa
útsýninu nýtt gildi, þegar litið er
út um gluggana. Um leið og við
kveðjum Ingigeröi og þökkum
henni spjallið spyrjum við: Hefur
þú 'eitthvað í huga, sem þú vildir
koma á framfæri?
— Það væri þá helzt nokkrar
ljóðlínur, sem oft leita á huga
minn. Þær mega gjarnan fylgja
hér sem lokaorð:
Hvað er ég á meðal
miljónanna
af mönnum, sem að byggja
jarðarskaut?
Hvað er ég í kífi
kynslóðanna,
sem koma, lifa, fara svo
á braut?
Ekkert, ekkert, utan
skuggamynd
utan bóla, dauða háð og synd.
ALHLIÐA
TRYGGINGAÞJÓNUSTA
YFIR 50 ÁRA REYNZLA
TRYGGIR ÖRUGGA ÞJÓNUSTU
Suðurlandsbraut 4 'Jí 82500.
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT