Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1974, Qupperneq 10
Jóhannes Kjarval á góðri stund.
KJARVAL
í Fljótshverfinu
Framhald af bls. 9
| Þegar rigning var og þó eitt-
hvert sýni, málaði hann Lóma-
fjnúp út um austurgluggann á
íbúðarhúsinu. Og þar var það,
ísem litla heimasætan hún Sigur
veig hellti rauðum lit ofan f lista-
ýerkið hjá meistaranum. En Kjar-
val bjó til rósir úr þessu og málaði
andlit dömunnar ofan í Núpinn.
Hann gaf foreldrunum síðan
myndina. En auðvitað mátti ekki
trufla meistarann. Það mátti ekki
sækja hann í matinn og hann borð
aði mest kvölds og morgna. Stund-
um var hann suður undir þjóð-
vegi að mála og þar var ekki alltaf
gott að vera. Því ferðafólkið var
að hnýsast f myndirnar. „Svona
áttu ekki að hafa þetta, þú átt að
mála þetta öðru vísi,“ hafði Kjar-
val eftir því og vár ekki hrifinn af
samfélaginu. En Sigurveig var að-
eins 4 ára gömul og það mátti alls
ekki banna henni að snigglast
kringum meistarann. „Hún trufl-
ar mig ekkert," sagði Kjarval. Og
sama var með nautkálfana tvo,
sem voru þarna í girðingu þar
sem Kjarval málaði oft. Þeir
komu stundum að þefa af meistar-
anum og listaverkunum. Eitt sinn
sleiktu þeir allan lit af málverk-
inu, er hann vék sér frá, og hafði
Kjarval gaman að. Var hann hinn
vinsamlegasti við kálfana og
bannaði, að þeir væru nokkuð
styggðir. Og eitt sinn er Kjarval
fór austur að Kálfafelli fann hann
dauðan lóuunga á veginum, hann
málaði hann. Það var hans erfi-
ljóð. Þessa mynd gaf hann Helga
Bergssyni bónda í uppbænum á
Kálfafelli. Helgi kom að Kálfa-
fellskoti og skoðaði málverkin hjá
Kjarval. Varð Helga starsýnt á
myndina af lóuunganum. Hefur
ef til vill fundist verkefnið nokk-
uð sérstakt. Kjarval hefur líklega
tekið eftir þessu og gaf Helga
myndina.
Svo leið að því, að Kjarval færi
frá Kálfafellskoti. Hann var far-
inn að mála fossinn þarna hjá
bænum. Róshildur hafði heyrt
það á honum, að hann ætlaði að
gefa henni myndina og Valgerður
á Kálfafelli átti líka að fá mynd,
en þar kom Kjarval oft, sem
fyrr er sagt.
Róshildur fór hjá sér að taka
við listaverkinu, þar sem Kjarval
var þá búinn að borga þeim fyrir
veruna þarna. Hún segir þvf við
Kjarval. „Viltu nú ekki láta Val-
gerði hafa þessa mynd, ég get
alltaf séð fossinn."
„Valgerður getur ekki átt þessa
mynd, hún er handa þér,“ sagði
Kjarval.
En Valgerður fékk auðvitað
mynd. Hún var af sama fossinum.
Kjarval fór þegar til að mála
hana, er hann hafði lokið við þá
fyrri en málaði þá frá öðrum stað.
Stefáni Þorvaldssyni pósti,
tengdaföóur Valgerðar, hafði
Kjarval áður sent mynd af Lóma-
gnúpi eftir sig og víðar hér í Vest-
ur-SkaftafellssýsIu prýða lista-
verk Kjarvals veggi heimilanna.
Ég hef ferðazt um Fljótshverfið
og reynt að safna minningum
fólksins um veru Kjarvals þar. Nú
er ég að síðustu staddur á Hörgs-
landi. Þar búa nú hjónin frá
Kálfafellskoti ásamt Ólafíu dóttur
sinni og Kristni Siggeirssyni
tendasyni. Þarna í borðstofunni
er listaverkið, myndin af fossin-
um í Laxá hjá Kálfafellskoti.
Myndin er í dökkum litum og það
hvílir feiknalegur svipur yfir
henni. Hamraveggirnir leysast í
sundur og verða lifandi, breytast í
myndir af mönnum og hulduver-
um. „Myndirnar voru f berginu,
en ég skýrði þær upp,“ sagði Kjar
val. Myndirnar eru þrjár, sem
þekkjanlegar eru. Yzt til hægri er
mynd af Jakobi og Kjarval er við
hliðina á honum, en fyrir miðju í
hinum gljúfurbarminum er Ste-
fán Þorvaldsson póstur á Kálfa-
felli og skfn á hvítan skallann.
Kjarval hafði mikinn áhuga á að
mála Stefán en gamli maðurinn
vildi ekkert með það hafa. Þarna
er hann nú samt kominn. í horn-
inu til vinstri er tröllaukið andlit
f berginu. Þarna gæti verið kom-
inn Járngrímur úr Lómagnúpi
með sitt lið.
Yfir mynd Valgerðar á Kálfa-
felli hvílir mýkri svipur. Þarna
eru andlitin ungleg og ekki eins
lífsreynd. Kjarval sagði henni, að
Stefán póstur tengdafaðir hennar
sæti þarna á kletti. Þarna er hann
ungur og bergbúinn hinum megin
við fossinn horfir á hana og er
tortryggni f svipnum. Kannski er
það dóttirin, sem er fyrir miðju á
myndinni og horfir á Stefán. Báð-
ar þessar myndir eru að mínu
mati f fremstu röð verka lista-
mannsins. Sama er með aðra eða
jafnvel báðar myndirnar á Núp-
um.
Eflaust er öll mikil list skyld. í
25. Passfusálminum „um útleiðslu
Krists úr þinghúsinu,“ þar sér
Hallgrimur sig kominn til Para-
dísar. Og þar í hópi englanna
syngur hann Kristi lofsöng sinn,
sem forsöngvari í Himnarfki.
En hér á myndinni er listamað-
urinn við hliðina á bóndanum á
bænum. Þeir eru þarna f samfé-
lagi við Stefán gamla póst og dul-
magn byggðarinnar. Það er heið-
rfkja yfir félagsskapnum; samfé-
lagi manna og vætta f stórbrotnu
umhverfi.
Þetta er list, tengd menningú
norðursins, tengd hugsjóninni um
vináttuna, sem enginn skyldi
verða fyrri til að rjúfa.
Það hallaðist ekki á í samskipt-
um bóndans og listamannsins.
Jakob tók að sér hlutverk liðlétt
ingsins við heybindinguna og er
hann kom með fjárrekstur aís
Klaustri um haustið, illa til reika í
vondu veðri, þá var Kjarval þar á
hótelinu, sem var yfirfullt. Þá
Iánaði hann Jakobi rúm sitt og
svaf sjálfur á gólfinu, annað kom
ekki til greina. En Jakob kom
ekki einn þarna að Klaustri. Snati
var með honum. Kjarval mætti
þessum ferfætta vini sfnum þarna
á hlaðinu og þekkti þar hvor annr
an. Kjarval fór þegar inn á gisti-
hús að fá kjöt handa Snata. Sá
Kjarval síðan fullkomlega um að
hann skorti ekki mat meðan hanp
var þarna.
í Fljótahverfinu er listamaður-
inn í sátt við lífið, börn, dýr og
blóm. Var ekki málverkið af lóu-
unganum samúðartákn, „lotning-
in fyrir lífinu". Listamaðurinn er
þarna mitt í stórbrotinni náttútu.
Hann er þarna inn á heimilum,
sem sjálfsagt hafa minnt hann á
hverju hann fórnaði listagyðj-
unni. Og listamaðurinn er kominn
í sátt við mennina. Eftir þetta átti
hann ekki á hættu að menn fyndu
að myndum hans. Það var liðin sú
tfð, er hann gat ekki selt mynd
þegar hann átti ekki málungi mat-
ar. Haustið 1945 hélt hann sýning-
una frægu, þegar allar myndirnar
seldust uppp á hálftfma og marg-
ar þær myndir voru úr Fljóts-
hverfinu. Eftir þetta gat hann selt
gagnrýnislaust, hvað sem hann
málaði. En heimilin þrjú, sém
hýstu Kjarval þegar hann málaði
í Fljótshverfinu, hafa sfðan verið
prýdd listaverkum hans. Lista-
verkum, sem eru hafin yfir alla
gagnrýni. Þar tjáir listamaðurinn
þakklæti sitt og af engum vanefn-
um.
Heimildamenn: Heimilisfólkið
á Núpum, Kálfafelli, báðum bæj-
um, Hörgalandi (áður í Kálfa-
fellskoti), Maríubakka og Selja-
landi.
landic—Canadian".
Dýrateiknarinn
KARLG.
frá Bryggju í Biskupstungum
Eftir Oddnýju Thorsteinson 'i
t 1 ;
SjónvarpiS hefur nýlokið við að
áýna tvær barnateiknimyndir (þann
6. og 20. október), sem teknar voru
eftir barnabókum eftir Charles
Thorson. Höfundurinn var kynntur
lítillega á undan lestrinum, en þar
sem barnamyndirnar fara fram hjá
flestum fullorðnum og þar sem ævi
höfundarins er jafn ævintýraleg og
myndirnar, er ástæða til þess að
kynna höfundinn nánar, sérstaklega
þar sem hann var af íslenzku bergi
brotinn og fáir hér munu vita margt
um þennan hæfileikamann, sem ól
allan aldur sinn I Kanada og Banda-
rlkjunum.
Charles var sklrður Karl Gustaf.
Hann fæddist I Winnipeg árið 1890
sonur hjónanna Stefáns Þórðarsonar
(Stephen Thorson) Jónssonar frá
Bryggju I Biskupstungum, sem flutt-
ist vestur um haf árið 1886, og konu
hans Sigrlðar Þórarinsdóttur frá Ása-
koti I Biskupstungum. Bróðir Charles
er Joseph Thorson, fyrrverandi dóm;
ari, forseti hæstaréttar og ráðherra I
Ottawa, sem enn er á Iffi og margir
munu kannast við.
Snemma sýndi Charles óvenjú
mikla hæfileika við það að teikna
dýramyndir. En það var ekki fyrr en
árið 1934, að hæfileikar hans fóru
að njóta sín til fulls, þegar hann hóf
teiknistörf hjá Walt Disney I Holly-
wood. Hann var ráðinn daginn eftir
að hann sótti um starf hjá þeim.
Hann vann að mörgum teiknimynd-
um, meðal annars teiknimyndinni
„Mjallhvlt og dvergarnir sjö". Hann
skapaði margar „dýra-persónur". Sú
frægasta þeirra varð „Bugs Bunny"
— kanlnan fræga. Walt Disney lét
Karl hafa persónulegt bréf, sem
hann undirskrifaði og tók þar fram
að „á meðan Charles Thorson var I
starfi hjá honum, skapaði hann dýra-
persónuna „Bugs Bunny"."
Charles vann fyrir fleiri en Walt