Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1975, Síða 9
Þessi smá-
grein birtist
í Lesbók Morg-
unblaðsins
fyrir 44 ár-
um. Brezku kon-
ungshjónunum
hafði þá fæðzt
dóttir og þótti
að vonum frá-
sagnarvert á
kreppuárunum,
hvað ein barns-
fæðing gat
kostað.
Mikið kosta
kóngabömin
Fyrir nokkru eignuðust her-
togahjónin af York dóttur.
Fæddist hún i Glamiskastala,
ættaróðali hertogaynjunnar.
— Fluttist hún þangað nokkru
áður en hún ól barnió.En þetta
hafði talsverð útgjöld í för
með sjer eins og nú skal nánar
frá skýrt.
Sir Henry Simson, sem er
lfflæknir konungsf jölskyld-
unnar, er vanur að taka 210
sterlingspund fyrir að taka á
móti barni og Ifta eftir móður
og barni f þrjár vikur. En
vegna þess, að hann þurfti nú
að fara frá Lundúnum til Skot-
lands, horfði málið öðru vfsi
við. Honum eru greidd 52‘A
Sterlingspund fyrir hvern
dag,sem hann dvelur á Glamis,
en þar verður hann áreiöan-
lega 60 daga, og fær þvf rúm-
lega 3000 Sterlingspund auk
ferðakostnaðar og þóknunar
fyrir að taka á móti barninu.
Annar læknir er með honum,
Frank Reynolds að nafni.
Hann er sjerfræðingur f kven-
sjúkdómum, og dvelur jafn-
lengi á Glamis og Sir Henry.
Hann fær ekki eins hátt kaup,
en þó verða það 2000 Sterlings-
pund. -Læknishjálpin verður
þvf rúmlega 5000 Sterlings-
pund ( um 111 þús. krónur).
Þegar hertogaynjan af York
átti fyrsta barn sitt, Elfsabet
prinsessu, kostaði læknis-
hjálpin ekki nema 315
Sterlingspund, en hún átti það
barn I Lundúnum.
En nú koma ýmis önnur út-
gjöld lfka til sögunnar. Innan-
rfkisráðherrann, Mr. Clynes
dvaldi f þrjár vikur hjá lafði
Airlie, sem á heima skamt frá
kastalanum.Með honum var Mr
Boyd, skrifstofustjóri f innan-
rfkisráðuneytinu. Þeir voru að
bfða eftir þvf að hertogaynjan
yrði ljettari. Að vfsu þurfti
ekki- að greiða þeim sjerstakt
kaup, en lafði Airlie varð að
greiða 60 gineur fyrir fæði
þéirra, þennan tfma. Þegar
barnið fæddist, var öllum
landstjórum Bretlands send
skeyti um það. Þau skeyti kost-
uðu um 300 Sterlingspund, en
þann kostnað greiddi nýlendu-
ráðuneytið en ekki hertoginn
af York.
önnur útgjöld eru talin:
Sjerstök sfmalfna milli
Glamis og bústaðar hertogans f
Lundúnum 100 Stpd. Barn-
fóstra í 12 vikur 120 Stpd.
Tvær aðstoðarbarnfóstrur f .12
vikur 144 Stpd. Konungs-
kveðjan, 21 fallbyssuskot
á þrem stöðum kostuðu rúm
600 Stpd. Til erkibiskupsins af
Kantaraborg fyrir að skfra
barnið 500 Stpd. Til skrá-
setningarstjóra sem fór til
Glamis til þess að gefa út
fæðingarvottorð 105 Stpd.
Alls nemur þessi kostnaður
um 7000 Sterlingspundum eða
155 þús. krónum. Mestur hluti
kostnaðarins hefði sparast, ef
hertogaynjan hefði viljað ala
barnið f London, en hún hjelt
að það mundi verða drengur,
og þess vegna var henni það
metnaðarmál að hann fæddist
á ættaróðali sfnu.