Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1976, Síða 3
Ggnnar Gunnarsson
•JÚFl
Reynir Sveinsson við nám.
Nemendur (12 ára bekkjadeildum HKðaskóla.
veröi lítiö hús viö skólann í sum-
ar, þar sem betri aöstaða verður
fyrir börnin að matast og sjúkra-
þjálfarinn fær þar einnig inni.
Á vegum menntamálaráðuneyt-
isins er starfandi sérstök stjórnar-
nefnd til aö fjalla um málefni
barna meö sérþarfir. í henni eiga
sæti Haukur Þórðarson yfirlækn-
ir á Reykjalundi, Sævar Halldórs-
son barnalæknir og Þorsteinn Sig-
urðsson, sérkennslufulltrúi
Reykjavíkurborgar. Nefndin
fjallar t.d. um, hvaða börn eigi að
sækja kennslu í Hlíðaskóla og
fylgist með þeim heilsufarslega.
Við hittum aö máli þá Hauk og
Þorstein og spurðum þá hver til-
drög heföu verið að stofnun þess-
arar deildar. Þeim fórust orð eitt-
hvað á þessa leið:
Forsöguna má rekja til skólans
fyrir hreyfihömluð börn, sem rek-
inn var í Reykjadal í Mosfells-
sveit á vegum Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra og var Kristbjörn
Tryggvason læknir helzti for-
göngumaðjar þess skóla. Starfsem-
in þar hóíst 1969 og var skólinn
rekinn I sex ár. Þetta var heima-
vistarskóli og þangað voru tekin
börn, sem gátu ekki vegna líkam-
legrar fötlunar sótt venjulegan
skóla eða vitað var að skólaganga
þeirra var í molum.
Eftir að hreyfihömluðu börnin
fengu námsaðstöðu í Kjarvalshúsi
á Seltjarnarnesi og deildin í
Hlíðaskóla tók til starfa lagðist
skólahald í Reykjadal niður. Þró-
unin hefur sem sé verið, eins og
oft er í slíkum málum, að áhuga-
mannasamtök eiga frumkvæðið
að framkvæmdum en sfðan koma
opinberir aðilar til.
Brýnasta verkefniö framundan
í þessum málum sögðu þeir vera
að komið yrði upp greiningar- og
ráðgjafarstöð fyrir þessi börn og
er nú að mótast vísir að slikri
stöð. Sömuleiðis væri aðkallandi
að gerð yrði vönduð spjaldskrá
yfir verulega þroskaheft börn
hvar sem er á landinu þannig að
hægt væri að koma þeim í nám og
uppeldi sem fyrst — löngu fyrir
venjulegan skólaaldur. Með þvi
einu móti væri hægt að tryggja að
þau fengju jafnan skólaaðstöðu.
sem hentar þeim bezt. En i slíkum
tilfellum þyrfti að vera um ýmsa
kosti að velja, bæði innan og utan
skólakerfisins.
Báðir sögðu þeir Haukur og
Þorsteinn að árangurinn af starf-
inu i Hliðarskóla væri mjög já-
kvæóur og samstarfið allt til fyrir
myndar. Takmark og tilgangur
með þessu væri að sem flestir
einstaklingar fengju að búa við
eðlilegar aðstæður varðandi
heimili, skóla og starf. Einstakl-
ingnum liður bezt ef lifi hans
hagar þannig til að það sé sem
likast því sem kallast eðlilegt og
honum tekst að öðlast nægilega
lífsfyllingu.
Þetta er liður i fyrirbyggjandi
starfi, því það er vissulega bæði
einstaklingnum og þjóðfélaginu
til bóta, ef hægt er að fækka
þeim, sem þurfa að dvelja á stofn-
unum við algera umönnun ann-
arra, sögðu þeir að lokum.
Við hittum að máli skólastjóra
Hlíóaskóla, Ásgeir Guðmunds-
son, og gefum honum orðið:
Oddný og Guðrún.
Skóladegi lokið.
Þessi þáttur skólastarfsins
hófst í fyrra i litlum mæli en
starfið hefur aukist í vetur. Á
döfinni er að gera enn betur,
þ.e.a.s. ekki fjölga nemendum —
við teljum 15 hæfilega einingu í
einn skóla — heldur er áætlað að
fjölga starfsfólki á næsta ári
vegna frekari dreifingar barn-
anna i almenna bekki, en það
veldur auknu álagi á kennarana
eins og gefur að skilja.
Starfið í vetur hefur gengið al-
veg ótrúlega vel og er það fyrst og
fremst að þakka samstöðu allra
starfsmanna skólans að leysa
þetta vandamál.
Hvað börnunum sjálfum viðvík-
ur, þá háfa báðir hópar haft geysi-
mikið gagn af samskiptunum.
Börnin í almennu bekkjunum
hafa ekki síður haft'gott af að
kynnast vandamálum hreyfihöml-
uðu barnanna. Og hvað hreyfi-
hömluðu börnin varðar, þá hef ég
tæpast séð þau öðruvísi en ánægð.
Um aðstöðuna hér í þessum
skóla má segja að hún sé erfið
vegna þess hve börnin þurfa oft
að fara á milli hæða og vildi ég i
því sambandi hvetja til þess að
skólar verði í framtíðinni þannig
hannaðir að þessu fólki sé ekki
gert of erfitt fyrir.
Skoðanir hafa verið skiptar um
það, hvort leyfa eigi hreyfihöml-
uðum börnum að vera í samfylgd
annarra nemenda og sumir hafa
talið mörg tormerki á því að hægt
væri að leysa þann vanda. En ég
er þeirrar skoðunar að þessi til-
raun hafi sýnt, að það er hægt að
gera mikið fyrir þennan nent-
endahóp. Krakkarnir tengjast
ekki bara við almenna kennslu
heldur einnig við aðra nemendur.
Sömuleiðis hef ég orðið var við að
foreldrar almennt bera starfsem-
ina hér mjög fyrir brjósti.
Mér finnst það segja sina sögu
um afstöðu barnanna til þeirra
hreyfihömluðu, að 12 ára börn í
skólanum efndu til tombólu i vet-
ur en ágóóinn skyldi renna til
þessarar deildar. Ágóðinn varð
86.000.00 krónur, sem þau hafa
afhent stjórnarnefnd deildarinn-
ar til ráðstöfunar. h.V.
Jóna keyrir Hildi út (frfmfnútur.