Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1976, Side 8
Gerhard Schneider: Akrfi á
pappír 1975.
Gerhard Schneider:
Gouache 1972.
Gerhard Schneider: Gouache 1972.
FRANSKI málarinn Gerhard
Schneider, sem ásamt Hund-
ertwasser telst fulltrúi alþjóð-
legra strauma innan myndlistar
á lístahátíð er tiltölulega litt
þekkturá íslandi þóttáhrifa
listar hans megi sjá stað i verk-
um ýmsra kunnra hérlendra
málara. Hins vegar eru ýmsir
félagar hans og skoðanabræð-
urá listasviðinu miklu betur
kunnir svo sem Hans Hartung
og Pierre Soulages og raunar
margir aðrir. Strangt tekið er
réttara að tala hér um sviss-
neska málarann en ekki
franska, því að Schneider er
svissneskur að uppruna, en
hann telst til franska skólans
líkt og Hartung, sem er þýzkur,
eða t.d. Erró, sem er islenzkur.
Upprunalega var það ætlun-
in að félagi hans, Hans
Hartung, yrði kynnturá listahá-
tíð en af ókunnum ástæðum
varð ekki úr því en í þess stað
fáum við að kynnast umbúða-
lausum, kröftugum og litræn-
um vinnubrögðum Gerhards
Schneiders. Hann er fæddur í
Svisslandi 1896, nam við
Ecole des Beaux arts í Paris
undir handleiðslu málarans
Cormon og settist að í París
fyrir fullt og allt 1 924
Schneider er góður fulltrúi
þeirra málara ersettu hvað
mestan svipá nýlist Parísar-
skólans á árunum eftir styrjöld-
ina en hann hafði þegar árið
1 944 mótað sér þann stil sem
hann er þekktastur fyrir, frjálsa
og Ijóðræna formsköpun og
sterka, samstillta liti með
dökku ivafi. Hann hikar t.d.
ekki við að nota fjólubláa liti og
myndir hans virka einatt mun-
aðar- og dularfullar á skoðend-
ur og hafa yfir sér svip austur-
lenzkrar kalligafík. Forsendur
myndstils hans eru nokkúð
skreytikenndar, vinnubrögðin
hröð og markviss, en á bak við
þessi vinnubrögð liggur mikil
og vægðarlaus skólun manns
sem hefur vígt allt sitt lif mál-
Gerhard Schneider:
Gouache 1972.
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON