Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1976, Síða 12
Efst: Hér hafði komið fyrir smá óhapp og að þarlendum sið þyrptust menn á vettvang, gáfu skipanir út og
suður og enginn framkvæmdi þær fyrr en seint og um sfðir. 1 miðju: Fiskmarkaður f Portimaxo og lff í
tuskunum. Neðst: Aðalgatan áFaro.
Jöhanna Kristjónsdöttir
Punktar
frö
Portúgal
I FERÐAMANNAPÉSUM um
Algarve — sólarströnd Portúgals
— segir að þar sé samfelldur ald-
ingarður árið um kring. Ekki mun
þetta vera alls kostar rétt frekar
en gerist og gengur I sllkum bók-
menntum. En frá þvl I mal og
fram til loka október er veðráttan
á þessum slóðum yfirleitt einkar
þægileg og hiti mikill I júllmán-
uði sérstaklega.
Ekki er ýkja langt slðaniAlgarve
varð ferðamannastaður. Áóur
voru bara íbúarnir I litlu fiski-
mannaþorpunum meðfram allri
ströndinni. Þeir veiða sardínur og
ýmsa smáfiska og þarna er fiskur-
inn unninn, m.a. eru nokkrar full-
komnar niðursuðuverksmiðjur.
Loftslagið er mildara en norðar I
landinu og ræðst það af nálægð-
inni við Miðjarðarhafið.
Þegar talað er um Algarve er
átt við strandlengjuna syðst I
landinu — frá Tavira skammt frá
landamærum Spánar til vestur
oddans Sagres.
Landbúnaður er nokkuð stund-
aður þarna og uppi I fjöllunum en
meginatvinnan I þorpunum sem
kúra með ströndinni er enn fisk-
iðnaður enda þótt ferðamenn geri
sér æ tíðförulla á þessar slóðir og
það setji sitt svipmót á hálft árið.
Algarve er sömuleiðis sumarleyf-
ísstaður Portúgala sjálfra og
þangað leita þeir I leyfum slnum,
leigja sér smáhýsi við ströndina
fyrir skikkanlegan pening og
dvelja þar I ró og kyrrð.
Portúgalar ferðast ekki ýkja
mikið til útlanda er mér sagt. Þar
kemur ýmislegt til: þeir kjósa að
nota leyfi sitt til kyrrlátra dvala
við sínar eigin strendur, sem
gnótt er af. I öðru lagi er gjaldeyr-
isskammtur sá sem þeir mega
taka með sér úr landi takmarkað-
ur. Ekki nema 6—7 þúsund eskút-
ur. Það jafngildir um 36—42 þús.
fsl. krónum. Fyrir þá upphæð
treysta þeir sé ekki til að eiga
langar stundir I öðrum löndum.
Þó er þetta ámóta skammtur og
Islenzkir ferðamenn fá með lög-
legu móti og láta þeir margir
hverjir sig þó ekki muna um að
þeysa til sólarlanda einu sinni á
ári og jafnvel tvígang.
ALGARVE hefur sem sumar-
leyfisstaður upp á ýmislegt að
bjóða. Hótelmenning þar fer ár-
batnandi og byggð eru hótel sem
fullnægja flestum kröfum og
verðflokkum. A því var framan af
nokkur misbrestur: fjöldinn allur
af fimm stjörnu hótelum og síðan
var svo um hríð að ekkert var
hægt að fá þar á milli og tveggja
stjörnu hótel, sem er töluvert fyr-
ir neðan það mark, sem að
minnsta kosti Islendingar vilja.
En þetta er að breytast, því að
Portúgalir telja að Algarve sé
fullb' ðlegur staður fyrir fólk sem
vill leita sér hvlldar og afslöppun-
ar og telja að I Algarve gefist
einnig kostur á skoðunarferðum
um litlu fiskiþorpin og upp I fjöll-
in.
PORTtJGALAR eru ekki eins
kátir og Spánverjar. Þeir eru við-
mótsþýðir og kippa sér ekki upp
við smámuni. Sveiflast ekki jafn
ótt og tltt milli sorgar og gleði
eins og ýmsum öðrum" þjóðum
Suðurlanda er tltt. Þeir eru traust
fólk og umgengnisgott, þekkilegt
og sérdeilis hjálpfúst. Drykkju-
peningar skipta litlu máli. Fyrir