Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1977, Page 8
Ekki fœkka ferðir
í Fljötsdalinn enn
það sér ö að þar búa þrifnaðarmenn
Hulda Valtýsdóttir
segir frö heimsókn til
hjönanna í Geita-
gerði í Fljötsdal,
Þuríðar Skeggja-
döttur og Guttorms
Þormars
Hjónin í Geitagerði, Þurfður
Skeggjadóttir og Guttormur
Þormar.
„Ekki fækka ferðir f
Fljótsdalinn enn
það sér á að þar búa
þrifnaðarmenn..
Fyrirsögnin er úr Grýlukvæð-
inu góða eftir Stefán Ólafsson,
sem uppi var á fyrri hluta 17.
aldar. Þá hefur sjálfsagt þótt bú-
sældarlegt í Fljótsdalnum og svo
er vissulega enn að sjá, þegar ekið
er þar um.
Það er síðsumarskvöld. Við ök-
um í suður frá Hallormsstað —
sól er enn á lofti — kyrrt og hiýtt
— gróðurangan. Or skógivöxnum
slakkanum ofanvert við veginn
kemur — ekki ein önd með stálp-
aða unga sina eins og stundum
sést á götum Reykjavfkur, heldur
heilt samfélag anda, sem verða þó
ekki nafngreindar sakir ókunnug-
leika. Við stöðvum bflinn á meðan
hópurinn sem sjálfsagt fyllir
hundraðið, kjagar yfir veginn og
tekur strikið út á Löginn. Eftir-
minnileg sjón fyrir borgarbúa og
táknræn fyrir velsæld héraðsins.
Við brúna yfir Jökulsá i Fljóts-
dal sér heim að Valþjófsstað, en
þaðan er kominn einn mesti dýr-
gripur á Þjóðminjasafni okkar,
kirkjuhurðin fræga frá þvi um
1200. Bæjarstæðið er fagurt og
afar sérkennilegar berglaga-
myndanir I fjallinu fyrir ofan.
Áfram er ekið með Leginum
vestanverðum, framhjá myndar-
legum býlum, þar sem stæðilegur
trjágróður við húsin setur hlýleg-
an blæ á umhverfið. Vegurinn
liggur ofan við hið forna stórbýli
Skriðuklaustur þar sem nú er rek-
ið tilraunabú fyrir sauðfjárrækt
og jarðrækt á vegum rfkisins. Við
ökum þar hjá garði og látum ekki
staðar numið fyrr en í Geitagerði,
þar sem búa hreppstjórinn i
Fljótsdalshreppi, Guttormur
Þormar og kona hans Þurlður
Skeggjadóttir.
Guttormur er enginn nýgræðl-
ingur f Fljótsdalnum. Hann á þar
djúpar rætur þvf forfeður hans
hafa búið þar frá því um 1800, að
séra Vigfús Ormsson, fyrrum
prestur á Valþjófsstað, settist þar
að. Afkomendur hans og bændur f
Geitagerði hafa borið nafnið Vig-
fús og Guttormur til skiptis fram
á þennan dag.
(Jr stofuglugganum í Geitagerði
blasa við skógivaxnar hlfðarnar
umhverfis Hallormsstað handan
við Löginn. Fólkið f Geitagerði
hefur verið við heyskap um dag-
inn og heyið er komið f snyrtilega
ferhyrnda bagga á túninu. Nú er
bara eftir að koma þeim f hús.
Tíöin hefur verið með afbrigðum
góð...
....eins og oftast hjá okkur“,
segir Guttormur. „Sé nokkurs
staðar meginlandsloftslag á Is-
landi, þá er það sennilega hér, og
einn veðursælasti staður á land-
inu er vafalaust umhverfis Hall-
ormsstað. Þar liggur landið svo
vel við norðanáttinni".
Engir bátar eða annar skipa-
kostur sést á þessu lygna og
breiða vatni, sem Lögurinn er og
við spurjum Guttorm hvort aldrei
hafi verið bátaútgerð á Lagar-
fljóti.
„Upphaf bátaútgerðar á Lagar-
fljóti var að nokkrir bændur á
Héraði stofnuðu hlutafélag og
keyptu bát sem hét Lagarfljóts-
ormurinn. Þetta var allstór bátur
og var hér f förum um árabil, þar
til hann strandaði f stórgrýti hér
fyrir neðan bæinn og brotnaði þar
niður. Mannbjörg varð. Þetta var
um 1920. Skömmu sfðar leystist
félagið upp. Nokkrir smábátar
höfðu þá verið hér f einkaeign
áður.
Næst var það að Kaupfélag Hér-
aðsbúa var hér með tvo báta ann-
an til vöru en hinn til fólksflutn-
inga fram til 1934, en þá var kom-
ið akvegasamband beggja vegna
Fljóts. Sfðan er ekki hægt að
segja að nokkur farkostur hafi
verið hér á Fljótinu. Þó að vega-
samband sé nú auðvitað orðið
sæmilegt, þá gæti það oft komið
sér vel að hafa hraðbát í ferðum á
milli“.
„Vel á minnst, ert þú ekki viss
um það eins og aðrir hér í sveit-
inni að hinn eini sanni Lagar-
fljótsormur lifi hér enn góðu lífi í
vatninu?".
„Annað væri blátt áfram
óþjóðlegt, það er t.d. ekki langt
síðan tveir menn frá Hreiöars-
stöðum sáu eitthvað undarlegt
fyrirbæri í vatnsskorpunni en
slíkt er ekki einsdæmi.
Fljótið er vfða mjög djúpt, allt
að 112 metrar og mun reyndar
vera lægsti punktur á íslandi eða
90 m undir sjávarmáli. A vetrum
myndast oft þykkur ís á Fljótinu
og notfærðu menn sér það oft fyrr
á árum til ferðalaga og flutninga.
Þó hafa ævinlega verið varasamar
J® g
Trjístofnarnir eru orönir gildari en meSalmaSur. Hér eru hjónin I GeitagerSi ésamt barnabarni og
gesti I lundinum góSa.
Trjðreiturinn I túninu f GeitagerSi undirstrikar, aS skilyrSi til skógrnktar ð Fljótsdal eru betri en
vlSast hvar ð íslandi.