Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1977, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1977, Qupperneq 10
Til hngri: Gugga og verkfœriS. Ætimynd eft- it Kjartan Ótason. Fall- ega unnin mynd — en virðist full greinilega sótt I smiðju til annars listamanns, sem Lesend- ur Lesbókar þekkja vel. Til vinstri: Ein af mynd- um Braga Ásgeirssonar 6 sýningu hans i Nor- rœna húsinu. Að neSan: Frá graflksýningunni; akvatinta eftir Richard Valtingojer Jóhannsson. Eftir myndlistarvertíðina heldur minna spunnið I vatnslita- myndir en þær, sem unnar voru í olíulit. Ekki þarf þó að kenna lélegri arfleifð um þetta viðhorf og nægir að benda á sumar teikningar Kjarvals og vatnslitamyndir Asgríms. Að mlnu mati er gerður alltof mikill verðmunur á myndverkum eftir því, hverskonar liti, eða hverskonar efm listamaðurinn kaus að nota. Góð vatnslitamynd kynni að kosta 80 þúsund krónur, en mynd unnin i oliulit eftir sama mann gæti ef til vill kostað þrefalt meira án þess að nokkrar likur séu á, að þar sé betra listaverk á ferðinni. I annan stað gætir þess um of, að verðlagning fari að því er virðist einvörðungu eftir stærð. Vestmannaeyingurinn Guðni Hermannsen er eina undantekningm, sem ég man eftir í svipinn. Sumar dýrustu myndirnar á sýnmgu hans að Kjarvalsstöðum í fyrrahaust voru ein- mitt frekar litlar. í þessu sambandi mætti minna á, að margar dýrustu og eftirsóknarverðustu myndir listsög- unnar eru fremur litlar; þar á meðal allar þær fáu myndir, sem varðveittar eru eftir Vermeer og snilldarverk Rembrandts eru sum næsta lítil. Verðlagning er emlægt það, sem stendur i mönnum að ákveða og flestir sýnendur skjóta henm á frest unz enginn frestur er eftir. Þá er stærðm látin ráða: Hálfur fermeter kostar 100 þúsund, heill kostar hann 200 þúsund ’og svo framvegis. í þessu efni eins og öðrum taka menn mið hver af öðrum og hæpnar venjur geta skapast. Sem betur fer hefur ýmislegt sést i vetur og vor, sem minmsstætt getur talizt og skal hér hlaupiðá nokkrum atriðum: Norræna vefjarsýningin á Kjarvalsstöðum opnaði rækilega augu áhorfenda fyrir því, að vefnaður og hverskonar notkun á textíl er full- gilt efm í myndlist. Að minnsta kosti hef ég ekki fyrr gert mér Ijóst, hvað textílkúnst er viðfeðm. Kannski hent- ar hún yfirleitt betur til abstrakt út- færslu, en aungvu að siður hægt að vinna á hlutlægan hátt eins og dæm- in sönnuðu. Margbreytileiki efniviðar- ins er í ætt við náttúruna sjálfa, allt frá grófasta hrosshári til silkis. Hringur Jóhannesson hefur venð vaxandi málari frá því er hann byrjaði að sýna og sem stendur skipar hann nokkuð sérstak- an bás. Hann vinnur í anda ný- raunsæisstefnunnar, sem komið hef- ur í kjölfar popplistarinnar úti i heimi. Innan þeirrar stefnu rúmast þó tölu- verð breidd, allt frá Ijósmyndaáferð eða ..hyperrealisma" til aðeins grófari og stílfærðara raunsæis, líkt og séð verður hjá Hring. Nýja raunsæið er ekki hvað sizt fólgið i að sjá hlutina og umhverfið frá nýjum sjónarhornum og nú verður það myndefni, sem hefði þótt næsta fjarstæðukennt fyrir svo sem tveimur áratugum. Hjá er- lendum ný-realistum er umhverfi borgarinnar oftast viðfangsefnið, en Hringur sækir sinar fyrirmyndir í ís- lenzka sveit; gjarnan norður í Aðal- dal. Hann sér myndefni í sólarglætu, sem fellur inn um þakglugga á hlöðu; i þotu, sem klýfur heiðan himinn yfir grænni húsarúst, —; eða landinu séðu úr glugga þotunnar. Sýning Hrings var mjög ánægjulegur listvið- burður. Baltasar sýndi á Kjarvalsstöðum í mars og voru liðin rétt þrjú ár frá siðustu sýningu hans þar. I þetta sinn komu að minnsta kosti fimm þúsund manns á sýningu Baltasars og gefur það vissulega hugmynd um vinsældir hans. í teikmngu er Baltasar ..virtuos" eins og lesendur Lesbókar ættu að þekkja og tækni hans við oliumálverk er mikil. í þetta sinn sýndi Baltasar miklu lausmálaðri myndir en áður og litaskalinn var bæði Ijósari og hástemmdari. Margir létu í Ijós nokk- ur vonbrigði og töldu, að listamaður- inn hefði ekki gefið sér nægilegan tíma. En það er nú einu sinni svo þegar leitað er að nýrri fótfestu, að þá er við búið að eitthvað rmstakist. En eru ekki dálítil mistök endrum og sinnum betri en kyrrstaða? Vissulega hefði verið ákjósanlegt að öll verkin hefðu jafnast á við portrettin, sem báru af hvað vinnubrögð áhrærir. I þeirri grein þýðir tæpast neinum hér- lendum málara að etja kappi við Baltasar og hann hefur átt mikinn þátt i að hefja portrettmálverkið til þess vegs og virðingar, sem því ber. Haukur Dór Sturluson hefur svo að segja einbeitt orku sinni að keramik og náð markverðum árangri þar. Hann fór þó á sinum tima utan til Edinborgar með það fyrir augum að nema myndlist og hefur á seinni árum gert myndlistina að gild- ar. þætti i starfi sínu. Sýning Hauks Dórs á Kjarvalsstöðum bar með sér staðfastan vilja hans til alvarlegrar myndsköpunar, þar sem engin mála- miðlun við stofulist og smekk góð- borgara kemur til grema. Þetta er heiðarleg og aðdáunarverð afstaða; einskonar lúxus, sem þeir einir geta veitt sér er byggja afkomu sina á einhverju öðru. Það var hressilegt og karlmannlegt tak i myndum Hauks Dórs, en notkun hans á gleri yfir olíumyndir virtist mér vafasöm og drap alveg niður áhrifin af þykkri áferð litarins í sumum myndunum. Þorbjörg Höskuldsdóttir sýndi um leið og Haukur Dór að Kjarvalsstöðum og var sú sýning hin athyglisverðasta. Eins og fram kom þar er Þorbjörg afbragðs teiknari og notfærir sér þann styrkleika með réttu. Hún hefur haslað sér völl í súrrealiskum farvegi, sem gefur henni verulegt svigrúm — jafnvel til að koma skoðunum á framfæri. At- hyglisverðar voru frumgerðir mynd- anna en því miður tókst ekki alltaf að ná sömu áhrifum i hinni máluðu útfærslu. í lit hættir Þorbjörg sér ekki út í nein vafasöm ævintýri, en allt um það hefur hún náð því eftirsóknar- verða marki að ávinna sér persónuleg einkenni i myndum sinum, sem eru auðþekkt. Gunnlaugur Stefán Gíslason sýndi i Norræna húsinu i apríl og var þetta fyrsta sýmng frá hans hendi. Vakti þessi sýning verðskuld- aða athygli og var mál manna, að svo jafngóð vinnubrögð væru næsta fátíð ef ekki óþekkt hér á fyrstu sýningu. Hins ber þó að geta, að Gunnlaugur Stefán erengmn byrjandi þótt dregizt hafi á langinn að koma upp sýningu. Gunnlaugur Stefán hefur kosið að einbeita sér að vatnslitum og er búinn að ná góðu valdi á þeirri vandasömu tækni. Hann skipar sér undir merki nýrealismans og fer út í nákvæmni i útfærslu, sem ég man ekki eftir að hafi sézt hér áður. Hitt er svo annað mál, að hægt er að ganga ennþá lengra i þvi efni eins og hægt væri að sanna með dæmum. Myndefmð og sjálf útfærslan minnir óneitanlega á þann frábæra realista Andrew Wieth, en ekkert er athugavert við það. Allir verða fyrir áhrifum sem ekki eru steingeldir og það er sannarlega hægt að velja sér lakari lærifeður en Andrew Wieth. Gunnlaugur Stefán hefur þó valið sér nokkuð aðra lita- notkun en þessi frægi Bandarikja- maður og nær á þann hátt að höndla þá tæru birtu, sem svo mjög einkenn- ir ísland og önnur norðlæg lönd.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.