Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.1977, Síða 8
Svonefnd Rakú-aðferð við leir-
munabrennslu. Þetta er eldgömul
japönsk aðferð. Hluturinn er lát-
inn ofan f 800 stiga hita f ofni, en
tekinn út eftir 10 mínútur, hvft-
gióandi, og settur í sag. Þá kvikn-
ar í saginu og kolefnið, sem við
það myndast, þrýstir súrefninu í
burtu. Við það koma málmgljái
og ótal litbrigði á glerunginn og
er vasinn sem hér sést, dæmi um
það.
Mikils virði að
breyta um umhverfi
Hjónin Sigrún Guðjónsdóttir
og Gestur Þorgrimsson eru
löngu þekkt hér á landi, hafa
enda komið víða við á mynd-
listasviðinu — við leirmuna-
gerð, postulínsmálun, teikning-
ar og höggmyndir. Þau' eru
samhent í starfi, njóta eflaust
stuðnings hvort af öðru og eru
bæði einlæg og heiðarleg i af-
stöðu sinni til verkefnanna.
Bæði luku þau námi við
Listaháskólann i Kaupmanna-
höfn skömmu eftir heimsstyrj
öldina siðari. Gestur starfar nú
sem myndlistakennari við
Kennaraháskólann en hefur
jafnframt fengist við högg-
myndir og leirmunagerð. Sig-
rún eða Rúna eins og flestir
kalla hana, hefur einkum
stundað leirmunagerð og
postulínsmálun og er þess
skemmst að minnast að hún
hlaut 1. verðlaun i samkeppni
um veggskildi, sem efnt var til í
tilefni 1100 ára afmælis bú-
setu i landinu 1974.
Hún hefur auk þess unnið að
postulínsmálun fyrir hins
heimsfrægu postulínsverk
smiðju Bing og Gröndal í Kaup-
mannahötn og það fyrirtæki
hefur sent á markað nokkuð af
framleiðslu hennar, en þrjú síð-
astliðin sumur hefur hún unnið
um tima á verkstæði fyrirtækis-
ins og lagt fram verk sin i
..hugmyndabanka" þess.
Um árabil hafa þau hjónin
rekið leirmunaverkstæði í húsi
sinu við Laugarásveg og hafa
haldið rómaðar sýningar bæði
þar og viðar Nú hafa þau kom-
ið sér upp annarri vinnustofu á
baklóðinni þar sem leirkera-
mótunin og brennslan fer fram
og þar vinnur Gestur einnig að
höggmyndum sínum. Rúna
hefur hins vegar komið sér fyrir
í gömlu vinnustofunni, þar sem
hún teiknar og málar á postu-
línsflisar. Þetta tvennt er betra
að hafa aðskilið, segjá þau,
vegna þess að mikil rykmynd-
un er samfara leirmunagerð-
inni, sem getur skaðað postu-
linsmálunina.
Við erum sem sé komin á
fund þeirra Gests og Rúnu til
að inna þau fregna af dvöl
þeirra siðastliðið ár i því góða
landi Danmörku. Við höfum
þegar litast um á vinnustofun-
Frá skólanum f Kaupmannahöfn, sem fi
verkanna, sem þau Rúna og Gestur skildu eft
um báðum, virt fyrir okkur
fagra gripi um borð og bekki og
andað að okkur þvi óskilgrein-
anlega, seiðandi lofti sem oft
rikir i slíkum stofum — Allt ber
þess merki að hér sé verið að
vinna af mikilli gleði — hér
njóti fólk þeirrar lífsfyllingar
sem er í þvó fólgin að fást
stöðugt við óskaverkefnið. . .
„Ég fékk ársfri frá störfum
við myndlistakennslu í Kenn-
araháskólanum", segir Gestur,
„og við ákváðum að dvelja
þann tíma í Kaupmannahöfn.
Rúna ætlaði að vinna við teikn-
ingar og postulínsmálun en ég
hugðist sækja námskeið við
Kennaraháskólann þar og
kynna mér m.a. gerð kennslu-
efnis fyrir skólasjónvarp. Við
tókum svo saman pjönkur okk-
ur og héldum utan í fyrrahaust
og allt fór eftir áætlun fyrri part
vetrar, en það var eiginlega
hending sem réði þvi að áætl-
unin breyttist síðari hlutann.
Frá sýningu þeirra Gests og Rúnu í Kaupmannahöfn.
Frá sýningunni í Þrándheimi.