Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1977, Qupperneq 12

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1977, Qupperneq 12
Kantaraborgarklrkja ad innan Matthúis Johamiessen MEÐ KLOFINN HJÁLM.... II Karlamagnús ,Aachen Hér blasir við kirkjan í blárri móðu og bregður svip yfir ævaforn kynni þó var rómanskur kuldi af kórónu þinni, en kliðandi ljósbrotin flöktu og glóðu á steindum gluggum, þeir stöfuðu birtu á stórleik og lotning i vitund minni (en frankiskir hermenn hjuggu og myrtu þá hugmynd sem fóstraði annar en þú). Samt geymir kirkjan kórónu þina og kallar til fylgdar við skeggöld mína þá menn sem hugsa hingað og nú; hér krýp ég i huga i kórnum inni og kvíðinn er líkn í ranghverfu sinni og undrið mikla: vor eggsára trú. (1972/1977) ✓ IIII Niðarósdómkirkiu Hér var Ólafur helgi eitt sinn á ferð; svo: aldauða leifar, þó fengu þeir sýn við altári kórsins er eygðu það skrin; og undrið varð kirkjunnar beittasta sverð sem dáleiddi fjöldann og dró hann til sin, og leifarnar vóru sem líkn þessu fólki er laut þér i bæn á fornhelgum stað: með drúpandi höfði það dreymdi og bað við dóma og tákn að komast úr volki vors lánlausa jarðlífs og jartegn varð þá svo jökulhreint undur, að blindur fékk sýn og enn annar mál við það margnefnda skrin; og menn urðu gagnteknir eilifðarþrá við altári konungs vors Ólafs; hún var sú ósk og sú von er hvern fátækling bar til himneskrar dýrðar frá dauða og ljá: að dróttinn vór Kristur hann dæmir oss þar. (1972/1976) I Becket í Kantaraborgarkirkju Þessir gulu veggir þeir geyma þann tima er grunleysið átti undir högg að sækja og trúin var fóstra feigðar og klækja en freisting og metnaður álög og vima sem valdið kallar með köldu blóði að knésetja biskup, með höggormstungu, við múrana þar sem munkar sungu og mikil örlög réðust í ljóði, þar hittum vér Beckett og Hinrik; um stund var sem kirkjan fylltist af kuldahrolli og kankvísi þess sern glæpnum olli til að ávaxta betur sitt allskosta pund. En þá fann ég kliðinn frá kór og veggjum og kaleikinn tæmdi með gömlum dreggjum í afstæðum tíma við endurfund. (1975/1976) / IV I Chmtres, Frakldand En héðan slær bjarma af elleftu öld og iðandi sóldýrð í gluggum og hvelfing en Kristur fer eldi um kvíða og skelfing: með klofinn hjálm og rofinn skjöld vér stóðum hér agndofa andspænis því sem alhugur manns og list gátu skapað, og hvernig getur slik trúhneigð tapað sem tekur vorn huga þannig á ný? En tíminn rennur frá engu til alls, um æðar sem varðveita kraft þeirra mynda er spretta úr upptökum ókunnra linda: þeir undruðust mál hans i hlíð þessa fjalls. Ó, Chartres, hvernig ljós þitt það lék sér við skugga sem léttfleyga spörfugla bæri við glugga, þó að veröldin ringlist og riði til falls. (1976/1977)

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.