Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1977, Qupperneq 14
Stjórmeistarinn Peter Paul Rubens. Á þessari sjálfs-
mynd er hann klæddur samkvæmt tízku baroktímans og
trúlega hefur hann öllu fremur verið þannig klæddur á
hinum diplómatísku ferðum sínum en í vinnustofunni.
Rubens bjó við feykilegt annríki. Otto Sperling lýsir svo
heimsókn í vinnustofu Rubens árið 1621, að sjálfur var
Rubens önnum kafinn að vinna við málverk, en lesari las
upphátt fyrir hann úr verkum rómverska sagnaritarans
Tacitusar. Jafnframt las Rubens ritara fyrir sendibréf
og hlustaði á erindi gestsins. Svo halda menn að erill og
ónæði sé fyrst tilkomið á þotuöldinni.
stjórnmálamanna. Færni hans (
þeim 6 tungumálum sem hann
talaði reiprennandi, svo og gáf-
ur hans og glæsileiki, áttu
mestan þátt í að hann varð
meiri háttar diplómat á sínum
tíma; einskonar Kissinger, sem
fór með boð og friðarumleit-
anir.
1 slfkar sendiferðir fór
Rubens frá Italfu til Spánar,
frá Niðurlöndum til Spánar þar
sem hann samdi við Filippus
IV. og f Englandi sló Charles I
hann til riddara og heiðurs-
doktorsnafnbót við Cambridge
fékk hann við sama tækifæri.
Það var ekki fyrr en 1630, þá
orðinn liðlega sextugur, að
Rubens fékk lausn frá
diplómatfskum sendiferðum og
má skilja á því, sem hann hefur
látið eftir sig, að erfiðara hafi
verið að fá því framgengt en
flestu öðru.
Hinar diplómatfsku sendi-
ferðir voru Rubens lærdóms-
rfkur skóli. Þá voru ferðalög
milli landa tfmafrekt stórmál
og hann notaði tækifærin og
drakk í sig áhrif úr listasöfn-
um, tók að sér stórverk og mál-
aði portret af fyrirfólki. Italiu-
dvöl hans á unga aldri virðist
hafa verið einskonar opinber-
un; meistarar Endurrcisnar-
skeiðsins, Rafael og Michel-
angelo og sfðan Feneyjamálar-
arnir, umfram allt Titian, opn-
uðu augu hans fyrir möguleik-
unum. Sjálfur gat hann tiieink-
um sér það sem hann hafði
áhuga á og óhætt er að segja, að
hann lifði mjög öfundsverðu
lífi sem heimsborgari og fagur-
keri. Konur sfnar hefiir hann
Maður leiðir hest. Frumgerð á
Pappír.
gert ódauðlegar í myndum. Þá
fyrri, Isabellu Brandt, missti
hann eftir fremur stutta sam-
búð og seinni kona hans,
Helena Fourment, var aðeins
16 ára á því herrans ári 1630,
þegar Rubens kvæntist henni.
Hann var þá 53 ára og hafði
verið ekkjumaður um fjögurra
ára skeið. Þetta voru sællegar
konur og fallegar eins og
reyndar flestar konur f mynd-
um Rubens. A okkar öld, þegar
skinhoraðar og teygðar Ijós-
myndafyrirsætur eru helzta
fmynd kvenlegrar fegurðar,
hafa menn gjarnan afgreitt
hinar feitlögnu englapfur, goð-
sagnakonur og aðalsfrúr
Rubens sem óhugnanlega fitu-
keppi og gleymt að taka eftir
þvf, hvað þær eru vel málaðar.
Afköst Rubens voru með
ólíkindum. Hann starfrækti
stórt verkstæði og hafði
hjálparkokka í vinnu og marga
nemendur. Árið 1611 varð hann
að neita hvorki meira né minna
en hundrað umsækjendum,
sem vildu komast i læri hjá
stórmeistaranum. Skyssur hans
og uppköst þykja vitna eins vel
og hvað annað um frábæra
færni hans; verk, sem oft eru
unnin aðeins f svörtu og hvftu.
Hann notaði gjarnan þá aðferð
ítölsku renesansmálaranna, að
teikna uppköst með krft og
bleki og hann skildi vel þýð-
ingu þess að vinna í graffk og
ná á þann hátt að koma fyrir
augu annarra en fáeinna út-
valdra. Nú er talið, að mörg
þeirra verka, sem Rubens eru
eignuð, séu í raun eftir nem-
endur hans að einhverju eða
öllu leyti, en þeir reyndu að
sjálfsögðu að mála eins og
meistarinn. Sú tfzka nútfmans,
að allir eigi að vera persónuleg-
ir og eignast sinn eigin stfl, var
ekki komin til skjalanna á
baroktfmanum.
Peter Paul Rubens var
rómantfskur landslagstúlkari,
en rómantfk hefur ekki höfðað
ti) þeirrar grámusku- og ofbeld-
isaldar, sem við lifum á. Hann
var mikill unnandi ljóðlist-
ar, sem oft er svo skyld mynd-
list, þegar betur er að gáð. Eins
og fruínmyndirnar bera með
sér, sem hér fljóta með, var
hann „virtuos" í teikningu lit-
ur hans var ríkulegur og glóir
enn þann dag i dag. Og pensil-
tæknin var einstök, hvort held-
ur var í smærri verkum hans
eða þeim stóru, þar sem hann
lét gamminn geysa. Saga
margra mikilla listamanna er
þyrnum stráð og ýmist börðust
þeir við fátækt, skilningsleysi
eða heilsubrest. Rubens virðist
aftur á móti hafa verið uppi á
réttum stað á réttum tfma.
Glæsilegur maður, gáfum
gæddur, frægur og dáður, vel
efnum búinn. Hann myndar
skóla þegar í lifanda Iffi og lifir
enn í verkum sfnum eftir meira
en þrjár stormasamar aldir.
Slfkt hlutskipti er fáum gef-
ið.
f ■ (áf
^ *y
Maður fellur af hesti. Frumriss af smáatriði í málverki eftir Rubens.
Portret af seinni konu Rubens, Helenu Forment, unnið með svartkrít'
rauðkrít og brúnu bleki. Þetta er ekki frumgerð að málverki, heldur
sjálfstætt verk.