Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1977, Side 21

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1977, Side 21
dag? spurði gesturinn, þegar hann hafði litast um. —■ Sigurjón er frá í baki en Loð- mundur er afleitur af hósta. — Þú ert í verkunum þeirra? — Já. Svona eftir mætti. — Þeir fylgja þó fötum? — Oftast nær, reyna þeir það. Við Sigurjón erum alveg að gefast upp á þessu. Við viljum hætta. — Það er nýtt viðhorf hér á Stóli. Er ekki Loðmundur búinn að bæta við sig jörð? — Jú, Loðmundur. Ekki við. — En rafmagnið. Af hverju fá þeir sér ekki rafmagn eins og annað, mennirnir? — Það stóð nú lengi í brasi með það. Ráðamennirnir eru tregir að leiða það langt fyrir einn bæ. Staurarnir eru samt komnir og línan verður strengd í haust. — Það er bara svona, sagði gesturinn, áhugalaust. — En þetta er búið að kosta Loð- mund mikið vafstur og margar ferðir suður að ræða við þingmenn og ráð- herra, hélt Rebekka áfram, dálitið hróðug yfir þrautseigju bróður sins við höfðingja. — Seinast tókst honum svo að króa ráðherrann af út i horni í ráðu- neytinu, rétt fyrir lokun, og sleppti honum ekki úr króknum fyrr en hann stóð með skriflegt loforð fyrir línunni i haust. 3 Gesturinn bauð gott kvöld um leið og hann kom i eldhúsið og settist við ' matborðið. Bræðurnir sátu sinn við hvorn enda borðsins, en véla- mennirnir innan við það. Gesturinn á móti þeim. Koma hans vakti enga sérstaka athygli. Bræðurnir voru að gefa honum augu og ekki óvinsam- leg, fannst honum. Yngri bróðurinn, Loðmundur, beindi til hans orðum og leitaði álits hans á þvi sem bar á góma, — ölluainskisverðu að vísu, — en var þó talandi tákn um um- beranlegri afstöðu en hann hafði átt að venjast af þeim fram að þessu. þegar hann kom. Heit sviðin voru freistandi. Véla- mennirnir tóku hraustlega til matar en létu sig skipta minna máli, það sem bræðrunum var hugstæðast að hjala um, framkvæmdirnar á Stóli, brúargerðina, veginn að brúnni, raf- magnið og prestlausan kirkjustaðinn Þegar allir voru búnir að taka úr sér sárasta sultinn, eftir erfiði dagsins, Loðmundur að krækja sér i þriðja hausbeinið á diskinn, hóf Sigurjón máls við gröfumanninn og spurði: — Þú ert af Ósnum, karlinn. — Já, svaraði gröfumaðurinn. — Telurþú ekki lífvænt fyrir röska menn þarna í kauptúninu. Nú og nokkuð bjarglegt fyrir stúlkukindur líka, séu þærekki blóðlatar, sagði Sigurjón og leit til Rebekku. — Tvímælalaust. Sveitarstjórninni þykir gott að duglegt og stöndugt fólk, flytji inn i kauptúnið upp á gjöldin og vinnuaflið, svaraði gröfu- maðurinn og fékk sér kjálka og kart- öflu. Nú rak Sigurjón upp hátt og sker- andi neyðaróp, og greip um leið í bakið, likt og einhver hefði laumast aftan að honum og rekið hnif á kaf í hrygginn. Hann stökk á fætur og æddi stynjandi um gólfið og neri á sér bakið. Rebekku féllust hendur. Hún horfði hljóð á kvalagöngu bróður sins með ángist í augum og beið þess að til hennar yrði kallað. — Þarf ekki að hringja í lækni handa manninum, spurði vélamaður- inn með andagt. — Eða sjúkrabil? bætti ýtumaður- inn við. Loðmundur hélt áfram að borða svið- in, eins og ekkert hafði í skorist. Gesturinn beið rólegur eftir því, sem verða vildi. — Komdu með ópiumdropana mína, heldur en standa þarna eins og aða og horfa á mig kveljast, fullfrisk og óþreytt manneskjan. — Hvar er glasið? stundi Rebekka, — Uppi. Rebekka var fljót upp stigann og kom um hæl með glasið. Hún taldi nokkuð marga dropa i matskeið og barað munni bróðursins. Hann renndi meðalinu niður og virtist strax liða betur. Og nokkrum augnablikum siðar hallaði hann sér út af i divan skammt fram eldavélinni. Hann varð fyrstur til að rjúfa hina tvibentu þögn. ’— Við vorum að tala um mannlifið á Osnum, sagði hann við gröfumann- inn. Gröfumaðurinn kinkaði kolli. — Þarna hætta allir vinnu um miðjan dag á föstudögum með veskið fullt af peningum, er mér sagt. — Eg veit það ekki. Kannski sum- ir. — Þarna búa allir í einbýlishúsum kappkyntum með hveravatni og teppalagt út úr dyrum. Svo vinnur enginn handtak allan veturinn. Og ekki má gleyma sumarfriunum. — Það voru ekki min orð, sagði gröfumaðurinn. — Geturðu útvegað mér íbúð, kunningi, sagði Sigurjón og reis kvalalaust upp í divaninum. Ég hef ekki bakheilsu i þrældóminn hérna lengur. — Ég á íbúð sem ég þarf að selja. — Hvernig stendur á því? — Ég er að byggja einbýlishús. — Hvar er þessi ibúð. —1 Hún er í blokkinni. — Stór? — Fjögur herbergi og eldhús. — Við kaupum hana, Rebekka og ég Gesturinn hlustaði undarlega snort- inn á þessar umræður og horfði rann- sakandi augum á systkinin. Ekki var hægt að heyra annað en Sigurjóni væri fúlasta alvara. Loðmundur var hættur að kroppa utanaf hausbein- inu, en hélt á þvi hálfétnu milli handa sinna, og starði niður i klof sér. Rebekka þagði. En gesturinn fann augu hennar hvila á sér. Þarna hafði orðið mikil hugarfarsbreyting við undarlegar aðstæður. Nú, þegaröll þægindi heims, nálguðust staðinn, hægum öruggum skrefum, voru ábúendur að binda upp bagga sina og fara. Annarleg og lævi blandin þögnin, sem ríkt hafði um stund í eldhúsinu, var rofin með áköfum og vondum hósta. Loðmundur hafði sleppt haus- beininu á borðið, og hélt með annarri hendi um brjóstið og hóstaði. Varir hans reyndu að mynda einhver orð, sem ekki skyldust. En eitthvað sýnd- ist gestinum, að Rebekka hefði skynj- að. Hún þaut út úr eldhúsinu og kom aftur með glas af gulbrjóstsafti. — Á ég að hella i matskeið handa þér, spurði hún. — Hana, komdu með það, hvæsti hann vondur, þreif af henni glasið og saup drjúgan sopa af stútnum Brjóst- saftið sló fljótt á hóstann og Loð- mundur þurrkaði af sér svalan svit- ann. Dökkrauður litur kinnanna lýstist örlítið þegar áreynslan var liðin hjá. Hann sótti i sig veðrið, stóð á fætur, gekk fram að dyrunum og leit þaðan til gestsins. — Ég er farinn i háttinn, tilkynnti hann. Þú kemur kannski og spjallar við mig fáein orð áður en þú háttar. Nú horfa mál óvænlega fyrir Loð- mundi, hugsaði gesturinn, ef ég á nú allt í einu, á eftir það sem á undan er gengið, að verða trúnaðarmaður hans og ráðunautur, Sigurjón og gröfu- maðurinn héldu áfram að ræða um ibúðakaupin, en ýtumaðurinn kom- inn í rúmið. 4 Loðmundur var háttaður þegar gesturinn kom upp á loftið. Annar fóturinn ofan á sænginni og sá i mórauða prjónabrók með snúning neðst á skálminni. Koppur undir rúmi, brennivínsflaska við stokkinn. — Vildurðu eitthvað tala við mig, spurði gesturinn í herbergisdyrunum. — Komdu inn og fáðu þér sæti, hérna á rúmstokknum. Gesturinn tyllti sér. — Viltu ekki fá þér sopa úr flösk- unni? Gesturinn hristi höfuðið. Hún er of nálægt koppnum, hugsaði hann. Loð- mundur reis upp í rúminu, studdi hönd undir brjóstið, hóstaði svolítið og stundi við um leið. — Hér er ekki gott í efni. Loðmundur hafði flöskuna iskyggilega nærri koppnum — Jæja, ekki það nei, sagði gesturinn létturí bragði. Hvað kemur til? — Sigurjón og Rebekka eru að svikjast hér undan merkjum. Ég stend bráðum einn uppi með báðar jarðirnar. — Eru þau að fara? — Já, þau eru að fara. — Hvenær verður búið upp á lest- ina? — Þegar þeir Ijúka við brúna og nýja veginn. — Þau ætla sem sagt ekki að biða með það eftir rafmagninu? Hverju bera þau við? — Henni leiðist, segir hún. Sigur- Framhald á næstu sfðu J

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.