Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1981, Blaðsíða 8
ARKJTEKTÚR
Því hefur verið haldið fram hér áður og skal enn undirstrikað, að
Landsbankahúsið á Akranesi sé með athyglisverðustu byggingaverkum síðari
tíma á Islandi. Húsið teiknuðu arkitektarnir Ormar Þór Guðmundsson og
Örnólfur Hall. Veggskreytingar eru eftir Snorra Svein Friðriksson. Húsið var
byggt á árunum 1970—74.
Myndir og textar: GS
Með það fyrir augum að gefa
smávegis yfirlit yfir íslenzkan arki-
tektúr síðustu áratuga, hefur Lesbók-
in birt myndafrásagnir um hús á
Akureyri, Húsavík og oftar en
einu sinni um hús í Reykjavík. Nú
er röðin komin að Akranesí
emmg réFiÖ teknar myndir af
húsum á Selfossi, sem bíða þar til
síðar.
Þegar reynt er að gaumgæfa
hús á Skipaskaga, kemur í ljós, að
þar er margt, sem hefur verið vel og
snyrtilega af hendi leyst. Glæsi-
legasta hús bæjarins er efalítið
útibú Landsbankans — og þá er
ekki einvörðungu átt við stærð.
í því efni skákar sementsverk-
smiðjan öllum húsum í bænum.
En það eru að sjálfsögðu fleiri
athyglisverð hús á Akranesi, flest
þeirra í flokki íbúðarhúsa. Því miður
féll niður að taka mynd af Vestur-
götu 32, húsi Haraldar Böðvars-
sonar, sem er fallega teiknað hús og
hefur til að bera kiassískan virðuleik.
Þarna blasa við nokkur aðskilin
tímabil í byggingarsögunni: Báru-
járnshús frá kreppuárunum, stein-
hús sjötta áratugarins, oftast með
kvisti og bröttu þaki, og einbýlishús
síðustu ára, því miður oft með
flötu þaki. En þar getur þó að líta
tilraunir og tilþrif í þá veru að fá
fram listrænt útlit og tilbreytingu í
þetta húsform, sem vill annars
verða nokkuð sviplaust, þegar mörg
hús eru komin saman í langa röð.
Þessi húsaröð víð Vesturgötu er nokkuð dæmigerð fyrir þann byggingarstíl,
upp kom víða í bæjum — og einnig til sveita — á sjötta áratugnum. Yfírieitt eru
þetta góð hús, sem henta vel við íslenzkar veðurfarsaðstæður. Húsið næst á
myndinni teiknaði Guttormur Andrésson arkitekt, en það var byggt 1952—*54.
(T>