Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1981, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1981, Blaðsíða 2
Frá Hafnarfirði — hús Bjarna Sivertsen og pakkhúsið. Vatnslitamynd eftir Gunnlaug Stefán Gíslason. Predikun í Hafnarfjarðarkirkju á nýársdag 1981 Þorgeir Ibsen: Augu okkar eru haldin og efinn sœkir okkur heim Á miðnætti síðastliöna nótt kvöddu klukkur landsins „hiö gamla ár, áriö 1980, sem nú er horfið í aldanna skaut og inn hiö nýja“, áriö 1981, sem fáir eöa engir fá vitaö hvað bera mun í fangi sér til næstu áramóta. Svo sem að venju komu ættingjar og vinir saman á mótum þessara tveggja ára, til þess að þakka fyrir það gamla og liðna og fagna sameiginlega hinu nýja, fullir vonar, trúar og eftirvæntingar, sem ekki er aö öllu leyti laus viö nokkurn kvíöa og ugg um framtíðina. Á slíkri stund, sem áramótin eru, klökknar hjartaö og strengir þiöna í brjóstinu. — í hijóöri þögn minnast menn genginna stunda meö ættingjum og vinum í gleði og sorg, minnact sstvina, sem norínir eru yfir mærin mikiu og gengnir á fund feöra sinna og mæöra. — Á slíkri stund endurskoða menn einnig hug sinn, líta yfir farinn veg, vega þaö og meta sem vel var gert og þaö sem mistókst, og eru með heit í huga og áætlanir um framtíöina, áætlanir, sem meö tilliti til mannicnc veikleika oreySKleika, eru ýmist dæmd- ar til aö mistakast eöa takast aö miklu eöa öllu leyti, ef einaröur vilji og einlæg trú eru látin ráöa feröinni. — Þegar áform okkar mistakast, finnum viö sárt til þess, aö trú okkar var ekki nógu einlæg og viljinn veikari en reyr. Og orö postulans sannast á okkur: „Þaö góöa, sem ég vil, geri ég ekki, en þaö ílla sem ég vil ekki, geri ég.“ Þaö er mannlegt aö skjátlast, en enn mannlegra aö rísa á fætur, eftir aö hafa hrasaö, og leitast viö aö gera betur. Þegar verst gegnir er mest um vert aö missa ekki vonina, trúna. Sá sem hefur misst vonina hefur og einnig misst trúna. Því án trúar er engin YQP,. Nýársdagurinn er dagur vonarinnar og dagur andlegrar hreinsunar. Samkvæmt ævafornu tali er hann hjá okkur íslending- um áttundi dagur jóla og var tii forna kallaöur „átti dagur“ af þrettán, sem fornmenn héldu sem jól og eimir af því fram á okkar daga, þar eö enn köllum viö þrettándann síðasta dag ]ó!S, Cy í'iöídum jatnvel upp á hann meö ýmsu móti sem slíkan. Er þetta enn í dag eitt af sérein- kennum okkar íslendinga í hátíöarhaldi jóla. „Nýárssólin boöar náttúrunnar jól,“ segir Matthías Jochumsson í hinum undurfagra sálmi sínum „Hvaö boöar nýars blessuö sól“, sem sunginn er nú sem aö venju þennan dag, í öllum kirkjum landsins. Mér er til efs, aö nokkur ein þjóö okkur skyld í menningu, trú og siöum, eigi á sinni tungu jafn tilkomumikinn og þó um leiö einfaldan og þjóðlegan tímamótasálm og þennan nýárssálm Matthíasar, sem er mesta og áhrifaríkasta trúarskáld okkar íslendinga eítir daga Hallgríms Péturssonar. Matthías hefur ort allmarga nýárssálma, en þessi hans sálmur er þeirra mestur og beztur aö gæöum, stórbrotinn í sínum einfaldleik og barnslegu trú. Ef við lesum sálm þennan meö athygli, finnum viö sterkt fyrir þeim áhrifum, sem hann hefur á okkur. Þau streyma til hjartans og þföa hugann. í sálminum teflir Matthías andstæöunum saman, samanber 5. og 6. vers, hörpuslætti stormsins og andardrætti barnsins, hinu mikla djúpi og hinu litla tári. — í veraldlegum kveöskap Matthíasar er einnig oft hans háttur og aðferö aö láta andstæöurnar mætast og takast á. í kvæði sínu um Dettifoss, lætur hann andstæöurnar, hiö mikilfenglega og hiö smáa, takast á. í þriöju vísu þessa volduga kvæöis kveður hann: „Geisa, fossinn forni, finndu loks þitt haf, þó ei tárin þorni, þarftu ei betra traf. Þó af þínum skalia þessi dynji sjár, finnst mér meir, ef falla fáein ungbarns tár. “ í 7. versi í Nýárssálmi Matthíasar nær þjóðarkennd hans og einlæg guöstrú á okkur sterkum tökum. Hver les eöa syngur þetta áhrifaríka vers meö hreistur á augum eöa án þess aö komast viö? Skynjum viö ekki trúarstyrkinn sem birtist í þessu versi? Sjáum viö ekki sem í leiftursýn hag landsins, umhverfi þess og kjör allra landsins barna frá vöggu til grafar? Viö

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.