Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1981, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1981, Blaðsíða 11
„Það land sem tapast gagnvart sögu og minningu verður ekki bætt,“ segir greinar- höfundur og vissulega er það fullgilt sjón- armið. En sízt af öllu er það ný plága á íslandi, eða hvað um það land, sem tapast hefur fyrir ágang jök- ulfljóta, hraunrennslis og uppblásturs? Og hvað um allt þaö land, sem horfið hefur undir byggingar og allskon- ar mannvirki, götur og vegi? BARATTAN VIÐ EYÐINGARÖFLIN rafmagnslínur þarna er nokkuö nýleg- ar. Ég set hlutina saman og einfalda þá. Ég vil ekki sýna hluti sem draga ekki fram aðalatriðin. Ef ég væri í skapi til þess, hefði ég jarnbrautartein- ana með. Ég hef ekkert á móti þeim. Mér finnst bara að stundum tímasetji slíkt málverkið hræöilega.“ Hádegisveröar var neytt á Chadds Ford-kránni, sem er skreytt með eftirlíkingum af myndum eftir Wyeth og full af endurminningum. Bretar brenndu hana tii grunna eftir orrust- una í Brandywine sem háð var um- hverfis mylluna, mylluhúsiö og korn- hlöðuna sem nú eru aðalbækistöðvar Wyeths í Chadds Ford. Það voru 75 myllur hérna í dalriúm; þetta er sú síðasta sem enn er nothæf. Ég þekkti þessa myllu þegar ég var ungur drengur, faöir minn kom með mig hingað og málaöi hana, og Howard Pyle kenndi hérna. Inni í myllunni, á gólfinu fyrir ofan gamla myiluverkið, eru geymd mörg fleiri málverk. Karl Kuerner með riffil- inn sinn, í einkennisbúningnum sínum, húsiö hans Kuerners aö nóttu til, og Christina Olson (fyrirmyndin í „Heimur Christinu") á efri árum í hnipri innan dyra. Bestu verk Wyeths eru ekki bara einhver æðri viðfangsefni. „Ég held ég sé eiginlega ekki „realisti". Margir segja: „Wyeth tekur hvert grasstrá með“, en í rauninni þekki ég 50 aöra sem gera þaö í miklu ríkari mæli en ég. En þaö eru til staöir sem búa yfir tilfinningakrafti, og til þess aö ná þeim krafti verður maður aö þekkja staðinn náið og alla hans leyndardóma. Maður getur dregið eitt pensilstrik og ef maður þekkir allt þetta náið, gefur það strikinu dýpt. Ég á viö aö Rembrandt gat búið til mylluvæng með einu pennastriki og gert hann eölilegan því að hann gjörþekkti það.“ Wyeth notar aöallega temperaliti og þurrpensil (þ.e.a.s. hann nuddar ör- smáum ögnum af óútþynntum vatnslit- um á pappírinn) og þaö er erfiö og seinleg aðferð viö aö mála. „Það fær mig til að kafa djúpt. Temperalitir eru mjög erfiöir viðureign- ar. Eg hef mætur á því efni. Ég kann vel viö seinaganginn og hina algeru andstæðu við hraöann og ákafann samfara því aö mála með vatnslitum. Þetta byggist hægt upp, en ef við- fangsefnið er þess virði get ég veriö í marga mánuöi að mála t.d. eina brekku. Þaö er ekki gott að mála hratt og laust meö eggja-tempera því að það flagnar, eggið festist ekki við. Þaö verður að byggja áferðina upp alit að því eins og í vefnaði. Maöur situr í herberginu sínu í ró og næöi, mann dreymir um þaö og maður hugsar um það meðan maður vinnur.“ í verkum Wyeths speglast innileg hrifning á því hvernig sólargeisli fellur á tré, hvernig náttúran er og hvernig fólk hegöar sér. Oft þvælist nafniö eöa aöalviðfangsefniö fyrir. Hann gerir sér grein fyrir þessu, en er klemmdur á milli hins augljósa og hins einfalda. „Sérhvert viöfangsefni er væmið — það veltur á því hvernig það er gert. Geti maður bara náð töfrunum í því! Þess vegna segi ég aö því minna sem þarf að skilja, því betur tekur almenn- ingur því. Því minna sem er á myndinni, því betra. Ég held ekki aö „Heimur Christinu“ sé svo stórkostleg. Þaö hefur veriö mikið um hana talað, en fjandinn hafi þaö, um góða mynd á ekki að þurfa að segja neitt. Ef ég hefði getaö fengiö tilfinningu fyrir Christinu með hæðinni einni saman, hefði myndin oröiö betri í mínum augum.“ Við könnun hnattanna í sólkerfi okkar hefur það komlð í Ijós, aó hvergi finnst vottur af lífi nema á jörðinni einni. Það er því jafnvel hugsanlegt, að líf sé eitt af sjaldgæf- ustu fyrirbærum tilverunnar, þó ekk- ert veröi fullyrt um það til né frá á þessu stigi. Svo erfitt á lífiö upp- dráttar hér á jörðinni, aö svo má heita að dauðinn sé alltaf förunautur þess, tilbúinn að beita sigð sinni í tíma og ótíma, ef nokkuð ber út af. En lífið er ótrúlega seigt og því hefur tekist að halda hlut sínum eftir að það fyrst hóf göngu sína á jörö, sem var upprunalega „eyðileg og tóm“. Þótt leið þess hafi legiö gegnum óendanlegar hættur og hamfarir til þessa dags, hefur það þó sennilega aldrei staðið tæpar en nú. Engin dýrategund gat haft áhrifá viðburða- rás náttúrunnar fyrr en maðurinn kom til sögunnar, og þá sérstaklega á síðustu eitt hundraö árum. Þessi hætta er aðallega fólgin í eyðingu lands og gróðurs og mengun sjávar, lofts og vatna. Okkur hættir til að skoða lífslindir vatns og lofts óend- anlegar og óforgengilegar, en því fer fjarri að svo sé. Þótt við höfum verið blessunarlega laus við að þurfa að hafa áhyggjur af þeim hættum hér á landi til þessa, getur það breytzt fyrr en varir. Eiturloft sunnan úr Evrópu- löndum hefur borist yfir hafið og það er þegar orðið minniháttar plága í Skandinavíu þegar vindar blása þannig. Súrefni loftsins getur einnig rýrnað á margvíslegan hátt og veldur því einkum spilling gróðurs og gífur- leg eyðing skóga í Brazilíu, Síberíu og Ameríku. Skógunum er einkum eytt til iðnaöar, en til eru þó þau lönd þar sem skylt er að gróðursetja tré fyrir hvert það sem fellt er, en víðast er þvíþó enginn gaumur gefinn. Kynstur af eitri frá margvíslegum iðnaöi berast sífellt í hafið með fallvötnum eöa eru flutt þangað með skipum sem úrgangsefni. Með þessu móti eyðist gífurlegt magn af smá- dýralífi og flotgróðri hafsins sem eru önnur höfuð uppspretta lífgefandi súrefnis, næst grænum jurtum. íbúar jaröarinnar eru þó ekki í bráðri hættu af súrefnisskorti, en þó er farið að bera á honum í sumum stórborgum eins og t.d. í Tókýó í Japan, en þar eru súrefnissjálfsalar á fjölförnustu götum sem menn geta gripið til, ef þeim finnst þeir vera aöþrengdir. Gróður á íslandi á stöðugt í baráttu við margskonar eyðingaröfl. Illvígast þeirra er veðráttan, sem við höfum eftirminnilega orðið fyrir barðinu á þennan vetur, sem nú er að líða, enda er hnattstaða landsins slík, að við því má jafnan búast. Við þurfum því að umgangast allan gróður af mikilli gát og eyöa ekki landi né gróóri, nema algera nauð- syn beri til. Manni verður því hugsaö með mikilli hryggð til heiðanna norðan jökla, sem nú virðist næstum óhjákvæmilegt að fórna í þágu orku og iðnaðar. Það hefur verið talað um greiðslu fyrir þetta land, en það er raunar óvitahjal. Þaö er ekki hægt að greiöa fyrir eyðingarrétt á gróð- urlendi eins og söluvarning úr búð, né heldur selja. Og hver ætti aö taka gjald fyrir líkt? Eignarréttur á landi er raunar aðeins varðveizlueign meðan hann varir, en veitir ekki rétt til eyðingar nema að fengnu samþykki samfélagsins. Reynslan hefur sýnt að nauðsynlegt er að hafa ákveðnari lög um meðferð lands. Eyðing gróó- urlendis undir miðlunarlón í byggö- um þarf algjörlega að banna fari þau yfir einn ferkílómetra að stærð, og eyðing gróöurlendis á heiðum og afréttum því aðeins að bætt sér fyrir þau landspjöll með ræktun gróður- lauss lands af sömu stærð. Þetta þarf að gera l sambandi við hina margumtöluðu Blönduvirkjun og þá ætti ekki lengur aö vera um neitt að deila. Ef samtíðin heimtar þessa fórn sín vegna, veröur hún líka að greiða bæturnar. Þær verða greiddar land- inu í heild og kynslóðunum, sem á eftir okkur koma, með því að skila þeim í hendur jafn góóu landi því sem við tókum frá þeim og eyddum. Það land sem tapast gagnvart sögu og minningu verður hinsvegar ekki bætt. Það fer svo eftir smekk manna, hvort þeim finnast staðir, sem á liðinni tíð urðu aflvaki eða uppspretta dýrðlegra Ijóða, einhvers viröi eða ekki. Sama er að segja um örnefni og fornar vegaleiðir. Þó fyndist mér að helst þyrfti að bjarga áningarstaðnum ! Galtarárdrögum þar sem Jónas greiddi lokkana forðum og orkti um þaó síðar eitt fegursta ástarljóð íslenzkrar tungu. Þórir Baldvinsson 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.