Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1982, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1982, Qupperneq 6
SifCrf'IOAJi Ná ttúruspjöll viö Geysi Forkastanlegt fordæmi Þórarinsson jaröfr*Aingu Hnykkti ónotalega við! segir formaóur Gevsisnefndar gosvirkni Geysis og endurgerdur er skurdurinn hvorki betri né verri en hann var og ekkert óbætanlegt tjón hefur verid unnið. Þetta verk Þóris bónda í Haukadal er náttúruverndar- mönnum afskaplega mikill þyrnir í augum og ég get fallizt á, aö fordæm- ið sé ekki gott. Einhver kvikmynda- garpur gæti næst sett dynamít í Al- mannagjá til aö kvikmynda, þegar bergveggurinn hrynur. Ég tel mig hafa fullan áhuga á nátt- úruvernd, en mér finnst hreinlega engu spillt, þótt borað heföi verið lá- rétt gat inn í gosskálina í þeirri hæö, sem botn skuröarins er nú. Á því hef- ur margsinnis veriö ympraö, en veriö talaö fyrir daufum eyrum. Nú gæti hinsvegar fariö svo, aö hin æruverö- uga nefnd léti leggja pípu í raufina, en fyllti hana síðan með kísilhrúöri, sem nóg er af í grenndinni, og yrðu þá næsta lítil verksummerki þegar fram líða stundir. Ef og þegar slíkt gat dugar ekki lengur til aö stuöla aö gosi, veröa menn aö sætta sig við, aö Geysir sé burtsofnaöur um óákveðinn tíma; flestir náttúruverndarmenn og vísindamenn eru á einu máli um aö bora alls ekki niöur í botn hversins. Allt vekur þetta hinsvegar upp grundvallarspurningu um náttúru- vernd, — nefnilega þá, hvort þaö sé ekki náttúruvernd einnig að stuðla að því, aö náttúrufyrirbæri njóti sín og haldi áfram aö lifa, þegar eitthvaö gerist í sjálfri náttúrunni í kring, sem hindrar þaö. Samkvæmt íslenzku náttúruverndarlögunum ætti aö veita Öxará aftur í sinn upprunalega farveg og þá sæum viö ekki Öxarárfoss oftar og ekki heldur Drekkingarhyl. For- maður Geysisnefndar sagöi þó í sjón- varpinu á dögunum, að okkur brygöi líklega í brún, ef Öxarárfoss yröi horf- inn einn daginn og þar er ég honum alveg sammála. Gísli Sigurösson. eiga að liggja kyrr Af íslenzkum náttúrufyrirbærum er Geysir í Haukadal óefað langsamlega frægastur. Svo rækilega hefur hann komizt á blaö, að frægö hans íitir ennþá meðal erlendra þjóða, enda þótt alvöru Geysisgos hafi ekki sést, þar til nú, frá því á fjóröa áratugnum. Þá varö þaö Ijóst Trausta Einarssyni jarðfræðingi, að hverinn var að kæfa sjálfan sig, vegna þess aö kísill úr vatninu hleðst í sífellu upp í kringum hveraskálina. Þeir Trausti og Jón yngri frá Laug brutu þá Kólumbusar- eggiö — að vísu meö nokkuð frum- stæöum hætti: afrennslisskurði, sem lækkaöi yfirborö hversins. Geysir tók þá aö gjósa á nýjan leik eftir aö hafa legið í dvala, en ég man eftir því, ung- ur drengur í næsta nágrenni, aö Geysir var dyntóttur og lét hátignir og fyrirmenn bíða langtímum eftir gosi. En tíminn og kísillinn lögöust á eitt um að hlaöa í þessa rauf og síöustu áratugina hefur mátt segja, aö Geysir væri búinn að kæfa sjálfan sig á nýjan leik án þess aö nokkuö væri gert í málinu. Geysir var nár. Eftir að hafa séð Strokk skvetta úr sér taktföstum og snortum skvettum, gátu lands- menn og túristar labbað upp á hólinn til að sjá líkið. Þetta þótti meö ein- dæmum fallegt lík, svona líka slétt. Ríkið hafði eignast Geysi meö gjöf Siguröar Jónassonar 1935 og 1953 var Geysisnefnd skipuð og hefur hún síö- an átt að líta til með líkinu. í nefndinni hafa verið gegnir menn, sumir úr Kanselíinu og þeir hafa gætt þess aö gera ekki neitt til aö raska ró hins látna, en girt dulitla giröingu í kring. Minnisvaröa hafði þó enn ekki veriö komiö upp: Hér hvílir, o.s.frv... Þá skeði þessi voöalegi hlutur. Heimamenn laumuöust aö líkinu í húmi síösumarnæturinnar og blésu lífsanda í nasir þess. Gamalkunnir dynkir heyröust, djúpt úr jörö og enn á ný bar þessa makalausu gossúlu við efstu eggjar Bjarnarfellsins. Á umliðnum mánuðum hefur Geys- ir margsinnis gosiö af sjálfsdáöum og stórgos eru framkölluö meö sápu, líkt og gert var hér áður fyrr. En fregnin um að líkiö væri komiö á lappir, var lengi aö berast í Kansellíiö. Fyrst í janúarmánuði hrukku gæzlumennirn- ir upp með andfælum og hrópuðu: Náttúruspjöll, náttúruspjöll, heims- hneyksli. Kansellíið kærði til sýslu- manns og rannsóknarlögregla Stóra bróöur var send á staðinn. Síðan er glæpnum aö sjálfsögðu vísaö til sak- sóknara; annaðhvort væri nú. Allt var þetta fjaðrafok dálítið bros- legt; rúmlega þrír mánuöir liönir frá aðgerðinni og þar til kerfiö fór í gang. Nú töluðu menn eins og sá sem valdið hefur: Jú, viö höfum alltaf vitaö þaö, að auðvelt væri að fá hverinn til Lík aö gjósa meö því aö dýpka raufina; seiseijú, mikil ósköp — En þaö var aldrei á dagskrá, ekki heldur aö bora lárétt meö nútíma bortækni og heföi ekkert „heimshneyksli“ oröiö af því. Þótt Geysir gamli væri búinn aö kæfa sig með kísilmyndun, þá áttu menn bara aö bíöa eftir næsta stóra Suðurlandsskjálfta og höföu þá loforð frá Siguröi Þórarinssyni um, aö Geysir sprytti á fætur af sjálfsdáðum. En þesskonar loforö eru nú frekar ódýr og gæti hvaða spekingur sem væri haldið fram því gagnstæöa, nefnilega því aö eftir næsta stór- skjálfta á svæðinu veröi ekki volgra eftir, þar sem Geysir var. Vonandi dregst þessi tilvonandi Suðurlandsskjálfti sem lengst, og fyrr fæst víst ekki með neinni viasu skorið úr um þaö, hver áhrif hans veröa á frægasta goshver í heimi. Skurðurinn frá 1935 var heldur ruddaleg lausn til aö endurvekja Jl éfófSfr vakfe heimshney ksli“ I r BCftr Brtlr

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.