Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1982, Blaðsíða 10
A
AthntfS OceHfi
N{*wp#rt
James fímr
Nortölk
PoitS!«du!h
Shesðþéáké
3=2 Hamton Roads
Borgirnar við sundin
Syðst í Virginiafylki við strönd Atl-
antshafsins fljóta sjö borgir á sund-
um, víkum og flóum og hafa sam-
heitið Hampton Roads. Norðan
James-árinnar eru Newport News og
Hampton en að sunnan Norfolk,
Virginía Beach, Portsmouth, Ches-
apeake og Suffolk. Nöfnin bera upp-
runa sínum vitni enda var þetta
svæði fyrsta landnám breskra í nýja
heiminum. Þetta sams'æða byggö-
arlag, bútað niöur í mörg lögsagnar-
umdæmi, telur um eina milljón íbúa
og er nú tonnahæsta útflutningshöfn
Bandaríkjanna.
íslendingar í skemmtiferöum leggja
sjaldan leiö sína hingaö, sækja frekar suö-
ur til Flórida eöa vestur til Kaliforníu. Samt
er vafasamt aö önnur landsvæöi hórlendis
hafi meiri og almennari tengsl viö ísland og
er þar margt sem veldur. Þaö er ekki ótítt
aö maður rekist inn til t.a.m. rakara eöa
skóara sem í eina tíð dvöldu á Islandi og
minnast tæra loftsins en þó kannski öllu
frekar roks og rigningar á Reykjanesskaga.
Þaö eru ör mannaskipti í Keflavík og
obbinn af hermönnum og starfsliöi við
mannvirki varnarliösins er úr þessari sveit.
Það er því fyrst og fremst hingað sem ís-
lenska þjóðin hefir misst stóran hóp fríöra
og föngulegra kvenna, sem hafa gifst
Bandaríkjamönnum. Ekki veit ég til aö
neinn hafi kastað tölu á þann skara, en hér
og í nágrenni Washington er aö vaxa upp
kynslóð Vestur-íslendinga af nýrri sam-
setningu — faöirinn bandarískur, móðirin
íslensk.
Skrifari þessa pistils fluttist hingað suöur
fyrir tæpum áratug eftir langa dvöl í New
York. Meö fullri virðingu fyrir þeim stóra
potti í noröri sem bræöir saman ólíkustu
þjóöarbrot, þá finnst þaö fljótt aö hér er
viðmót fólks Ijúfmannlegra og umgengnis-
venjur meö frjálslegra móti. Þó fyrirfinnst
hér fólk af öllum landshornum og eins og
annars staðar í Suðurríkjunum er stór pró-
senttala af svertingjum. Hlutskipti þessa
eölisglaða fólks hefir breyst mjög til batn-
aðar á síöasta mannsaldri.
í eina tið var svörtum markaöur bás í
almenningsfarartækjum og þeim meinaður
aögangur aö veitingahúsum hvítra manna.
Nú er slík sundurgreining bönnuð meö lög-
um. Svertingjar sitja nú í dómarasætum,
gegna embættum fylkis- og borgarstjóra,
sumir aka bleikum kadiljákum.
Þótt hér starfi óperufélag og leikflokkar
hafi hér gestaspil, þá er skemmtana- og
næturlíf fáskrúöugt. Helst er rokkaö og
rallaö um hásumarið þegar baögestir eru
flestir. Brennivín er selt í opinberum útsöl-
Kort af Chesapeake-flóanum og ó myndinni
að ofan: Brúin yfir flóann er svo löng, að varla
sést yfir hana úr lofti, en þar sem hún slitnar,
eru undirgöng. Til hægri: Minnismerki um
stríðshetjuna McArthur og frægt hús frá
miðri 17. öld. Neðst: Sól, sandur og urmull af
baðstrandargestum á Virginíuströnd.
um fylkisins en bjór og borövín í hverri
búðarholu. Þó sér aldrei vín á nokkrum
manni — eöa svo til.
En hugmyndin var nú aö láta þess getiö
sem telja má sérstætt fyrir þetta pláss en
sneiða hjá hinu sem segja má um ótal aör-
ar borgir. Skal þá fyrst talið aö Norfolk er
höfuöbækistöö bandaríska flotans og
flotadeildar NATO. Islenski fáninn blaktir
jafnan við hún ásamt öörum fánum NATO-
ríkja og er dreginn upp með viöhafnarser-
imóníum 17. júni ár hvert.
Það eru ófáir íslenskir farmenn sem gist
hafa Norfolk og Portsmouth á undanförn-
um árum en þetta eru aöalhleösluhafnir ís-
lenskra skipa vestan hafs. Kom þar tvennt
til: minni kostnaöur en veriö haföi í New
York og þá einnig, aö héðan koma aö
mestu vistir til varnarliösins í Keflavík. Af
sömu ástæöum fluttu íslenskir aöalverk-
takar skrifstofur sínar hingaö suður. Og hér
er árlega þingað um framkvæmdir á Mið-
nesheiöi.
Þess var áöur getiö aö Hampton Roads
væri oröin mesta útflutningshöfn landsins.
Ekki er þaö þó aö verömæti heldur magnl.
Kol geröu herslumuninn. Feröamaöur sem
kemur aö noröan um hiö mikla mannvirki,
Chesapeakeflóabrúna, rekur augun i flota
10