Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1982, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1982, Blaðsíða 6
Inga Dóra Björnsdóttir í MINNINGU RAGNHILDAR ÁSGEIRSDÓTTUR Andlit hennar var vefur örfínna þráöa sem örlögin spunnu Oft reyndi ég að rekja þá sundur þráö fyrir þráð í leit sorga sem þögnin ein geymdi En það var sama um hvern ég greip þeir enduöu allir i brosi sem tjáði að Ragnhildur var kona sem óttaðist ekkert (Ragnhildur Ásgeirsdóttir fæddist 16. júlí 1910 að Hvammi í Dölum, en lést í Reykjavík 22. júlí 1981.) Áslaug Ólafsdóttir EYJAN GRÆNA Drýpur enn og drýpur dreiri í aldna slóð af sama kaleik sýpur enn sorgmædd þjóð. Mynnist sól við sæ svífa gullin ský yfir borg og bæ brátt dimmir á ný. Glugga gyllir sól og garð með krossa hvíta fallinna feðra ból fræknra og djarfra íta. Sína hildi há hetjur af snauðri þjóð. Járngreip blárri en blá blóð þarf í sinn sjóð. Heyriröu ekki harmaljóö hörpu vindsins frá. Eyjan græn, eyjan góö Sigrún Valgeirsdóttir á sér freisisþrá. TIL ÞÍN SEM TEFLIR MEÐ TÓNUM Við leitum að tárum í augnakrók hvors annars Við ýtum sálum okkar inn í hug hvors annars Síðan leggjumst við upp aö skjólvegg liðins tíma og reynum að stilla hjörtun í takt Ég tek tvær flöskur af White Bordeaux og helli hægt yfir riddarann hægt, hægt leka droparnir niður Djöfullinn af hverju látum vió ekki hvort annað í friði Erum við svona lélegir taflmenn? Ennþá hefur þó hvorugt tapað peði! Dagbók úr örvæntingu „Mér er að verða það Ijóst, að ég muni aldrei geta uppfgllt allarþœr kröfur, sem gerðar eru til „fullorðins“ einstakl- ings.“ Þannig skrifaði Mari Uddberg í dagbók sína 25. október 1978 — og 18. marz 1980 batt hún enda á líf sitt. Dagbók Mari Uddberg bregður athgglisverðu Ijétsi á sveiflur sálarlífsins, þegar ástandið er orðið sjúklegt og endar með voðaverki. i Sviþjóö kom nýlega út bók, sem ber heitiö „Til minningar um Mari“. Þar lýsir dagbók hennar þeim hugsunum og tilfinn- ingum, sem leiddu tl sjálfsmorðsins. Um tvö þúsund manns stytta sér aldur á ári hverju í Svíþjóö. Flestir þeirra eru ungir, margir aöeins á gelgjuskeiði. „Til minningar um Mari“ er byggö á dagbókum og bréfum Mariar Uddbergs frá síðustu árunum, sem hún liföi. Hún lýsir einnig viðbrögðum móður hennar eftir sjálfsmorð dótturinnar. „Mestu sektartilfinningu hef ég fyrir því, að ég skyldi ekki skynja nægilega vel og skilja svo margt, sem gat bent til þess, að eitthvað væri ekki sem skyldi hjá Mari,“ segir hún. Það sem hún lét ekki greinilega í Ijós út á við, fjallar hún um í dagbókum sínum og bréfum. Þau lýsa köflum í lífi hennar frá árinu 1975, þegar hún var 16 ára, til 18. marz 1980, þegar hún skrifaði síðasta kveðjubréf sitt. 13. maí 1975 skrifar hún ritgerð um efn- iö: „Þannig er ég — sjálfsmynd". „Alla tíð hef ég verið nokkurn veginn ánægð með lífið þangað til fyrir skömmu, að ég lagðist fyrst í mikið þunglyndi. Það kom ekki til af neinu sjáanlegu. Ég hafði enga beina ástæðu til að vera döpur, held- ur orsakaöist það af einhverju innra með mér. . . Ég hugleiddi sjálfsmorð, kannski ekki í alvöru, en mér var huggun að því að vita, aö ég gæti bundið enda á allt saman, þeg- ar ég vildi." Mari lauk grunnskólanámi með góðum vitnisbjrði. Henni þótti gaman að læra og veittist það auðvelt. í menntaskólanum varö hún aö leggja haröar að sér, og ein- kunnirnar fóru lækkandi. Hún fann til streitu og var ekki ánægð með frammi- stööu sína. Hún fékk magabólgu og skóla- læknirinn gaf henni lyf. Lágmarkseinkunnir Hinn 29. september 1977, síöasta ár hennar í menntaskóla, skrifar hún í dagbók sína: „Það hefur ríkt sjúklegur æsingur í bekknum, eftir að við fréttum, að lág- markseinkunnir til að komast í háskóla yrðu yfir 4,5. . . . Nú hefur það allt í einu runnið upp fyrir manni, að það eru þessar endemis ómerkilegu og marklausu tölur, sem ráða allri manns framtíö.“ Eftir menntaskólann tók Mari sér hvíld frá námi og byrjaði að vinna skrifstofustörf hjá Tryggingastofnun ríkisins. Hún fluttist að heiman, vildi standa á eigin fótum. Hún hafnaði skólavist í Tækniháskólanum í Stokkhólmi, þar sem henni bauðst nám í húsagerðarlist. Sumariö 1978 lýsir hún einmanakennd sinni. Henni finnst hún vera reikul í rásinni, stundum er hún lífsglöð, en svo allt í einu „verð ég gagntekin af þessari skelfilegu einmanakennd, sem ég á eftir að berjast gegn allt mitt líf“. Af hverju búa þessi eyð- ingaröfl í líkama mínum? spyr hún. Af hverju vil ég ekki neitt? Mariann, móðir hennar, skrifar um dagbók dóttur sinnar frá þessum tíma: „Ég tók víst ekkert mark á skorti hennar á sjálfstrausti, því henni gekk allt svo vel. Ég áttaði mig ekki á því, að sveiflurnar væru svona miklar í geðinu." Framh. á bls. 14.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.