Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1982, Side 7
HÚSGÖGN
Nýttá
húsgagna-
markaðnum
Sú var tíö, aö svokallaöar
„prikamublur" þóttu einar í hús-
um hafandi og átti sá stíll upp-
runa sinn á Noröurlöndum. Bretar
héldu samt sínu striki í hús-
gagnagerö og gera þaö raunar
enn. Þar er áherzlan umfram allt
lögö á mýkt og þægindi, en einn-
ig hitt, að hlutirnir sóu slitsterkir
og lausir viö viökvæmni. Þetta
sófasett er kallað Tigris og er nýtt
frá Bretlandi. Fyrir utan mjóa
kanta úr póleruöu mahogny að
framan, er ekkert sjáanlegt úr
viöi. En settið er á hjólum og því
vel hreyfanlegt. Völ er á ýmiss
konar áklæöi, en allt er þaö 100%
bómullarefni, mjög slitsterkt og
„scotsguarded“ eins og þeir kalla
þaö, eða meðhöndlað til aö
hrinda frá sér vökva og hrekkur
kaffi eða vín á því sem vatn á
gæs. Áklæöiö er stangaö meö
dacron-fylli á milli laga, en stung-
iö í mynstrin, svo þau verða upp-
hleypt. Bólstrunin er svampur og
dacron-fylliefni og er þetta
dúnmjúkt ásetu.
Settiö fæst í Húsgagnahöllinni,
Bíldshöfða 20. Það samanstendur
af tveggja sæta sófa, þriggja
sæta sófa, stól og skammeli —
og kosta.r 40.980,-.
Nokkur
dúnmjúk
hægindi
Enda þótt stólarnir á myndinni til vinstri sverji sig nokkuð í ætt viö sólstóla,
eru þeir ekki fyrst og fremst til þeirrar notkunar, en mundu þó geta gegnt því
hlutverki einnig. Þetta eru framúrstefnuhægindi, dúnmjúk ásetu og enginn ætti
að þreytast í meiri háttar setum, því hægt er aö stiila bakhallann mjög mikiö og
nánast liggja útaf. Fótaskemillinn er hluti af sjálfum stólnum, en hægt er aö
brjóta hann inn undir stólinn, ef maður vill vera laus viö hann. Þetta undur í
stólslíki hefur veriö upphugsaö og teiknað austur í Japan og heitir höfundurinn
Toshiyuki Kita og er arkitekt.
Stóllinn er eiginlega færöur í föt; hann er fáanlegur með allskonar utanyfirtaui
og aðallega er það strigaefni í fjörlegum litum. En líka er hægt aö fá hann
leðurklæddan. Þaö er Casa í Borgartúni 29, sem selur gripinn, og hann kostar
meö tauáklæði kr. 7 þúsund, en 12 þúsund meö leðri.
Húsgagnaverzlunin Casa í
Borgartúni 29 er sér á parti í
þeirri viöleitni aö gefa ís-
lenzkum kaupendum kost á
margskonar gripum, sem
heimsfrægir hönnuðir og
arkitektar úti í heimi hafa
teiknað. Sumir stólar af þeim
uppruna eru meira fyrir aug-
aö en þægindin, en þannig er
því ekki varið með þann
frumlega stól, sem sést á
myndinni. Hann er auö-
kenndur meö AEO, er frá
Cassina á Ítalíu, en teiknað
hefur Paolo Deganello 1973.
Fótstykkiö er steypt úr
plasti, grind uppúr því er úr
stálblööum og rörum. Setan
er bólstruö, klædd canvas-
áklæöi og samskonar dúkur
er í bakinu, en það er ekki
bólstrað aö ööru leyti. Stóll-
inn er mjúkur og þægilegur
að sitja í og ætti að geta
komiö til álita hjá þeim sem
hneigjast aö framúrstefnu í
húsbúnaöi. Veröiö er kr.
6.100,-.