Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1983, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1983, Síða 3
 Helgi Sœmundsson Mynd í stein — / minníngu Asmundar Sveinssonar Ég þóttist staddur undir háu fjalli þarsem heitir í Miðdölum. Blóm oggrös brugðu þekkum svip á völl og tún, fugl kvakaði í mó og runni, blátær lækur rann hjalandi skammt undan, oggæfur búsmali dreifð- ist um loðna haga. Fjær bar mjallhvítan jökul við bláan himin, og sumarsól stafaði lygnan Breiðafjörð heitum geislum. Ég naut veðurblíðu og sveitasælu. Þá gekk maður ofan fjallshlíðina í veg fyrir mig. Hann var álútur og þúngstígur og bar hellubjarg í fángi. Steinn sá virtist slíkur að fjórir garpar myndu naumast bifa honum. Maður þessi kom til mín og lagði byrði sína á götuna. Hvert ætlar þú að færa þetta hellubjarg? spurði ég. í mannabyggð, svaraði hann. Hvað hyggst þú fyrir með þvílíkan stein ? Klappa í hann mynd. Hvaða mynd ? spurði ég forviða. Hann leit við mér og sagði: Mynd af lífi og draumi kynslóðanna í þessu sofandi framtíðarlandi. 1 garðinum. Menn Kolbeins vildu þá rannsaka hverjir væru í kirkjunni en í því bili kom Kol- beinn sjálfur og ámælti þeim fyrir að tefja eftirreiðina, því að Þórð bæri undan og alla þá, sem eitthvert mannsmót væri að. En menn voru nú líka teknir að þreytast í liði Kolbeins og skildi hann eftir þá menn í Álftár- tungu sem ófærir voru. Síðan tóku þeir eftirreið sem ákafast, en er þeir komu að Álftá varð stanz á eftirreiðinni, því að Þórður hafði látið draga brúna af ánni. Varð þeim Kolbeini að þessu mikil dvöl. Þórður hafði snúið úteftir Mýrum. Þegar hann og menn hans voru komnir yfir Hítará, þá sté af baki Teitur Styrmisson og Kolbeinn grön og enn fleiri menn og vötnuðu hestum sínum en vatn féll á ísinn. Þá riðu Kolbeinsmenn sunnan að ánni. Þá sneri Þórður aftur, en Kol- beinsmenn voru þá fáir komnir og sneru þessir undan, sem komnir voru að Hítará. En það var skammt í meginflokk Kol- beins og þeir Þórður stigu aftur á bak og reið þá hver sem hann mátti, en jafnan reið Þórður síð- astur og vildi aldrei svo mikið ríða sem alþýðunni var í hug. Töluðu þá sumir við hann en aðrir keyrðu undir honum. Bar þá enn undan, en Kolbeinsmenn tóku drjúgum menn Þórðar, þá sem hestana þraut undir. Voru þeir allir flettir en á sumum unnið. En er Þórður reið útá vaðiana (Löngufjörur), þá sáu þeir Kolbeinsmenn, að undan myndi bera og hurfu þá aftur. Kolbeinn leggur ekki í Vaðlana með sinn stóra flokk, auk þess sem Þórður er að komast á þær slóðir, að hann á sér liðs von. Þórður reið í Miklholt en þar bjó mikill vinur Sturlunga, Guð- mundur Ólafsson. Þórður dvald- ist um hríð í Miklholti en reið síðan vestur Kerlingarskarð og vestur til Helgafells. Þar fékk hann sér skip og fór útí Fagurey en lét reka hestana með strönd- inni áfram vestur. Þórður og menn hans komu í Fagurey fyrir hádegi á laugardegi og var það næsti dagur fyrir Andrésar- messu (30. nóvember). Það þótti mönnum mikil furða og varla dæmi til finnast, að menn riðu hinum sömu hestum í einni reið af Þingvelli til Helga- fells í svo mikilli ófærð sem þá var. Þórður reið um hádegi á fimmtudag af Þingfelli en kom til Helgafells á föstudagsnótt er stjarna var í austri. Þóttust þá allir þegar vita, að Þórður myndi til nokkurra stórra hluta undan hafa rekið. ... handhjó ekki nema tvo Af Kolbeini er það að segja, að hann sneri aftur með flokk sinn til Álftártungu og var þar um nóttina en tók til strax um morguninn að leiða menn úr kirkju og taka af þeim vopn og fletta klæðum, en handhjó ekki nema tvo og var annar þeirra Norðlendingur sem hafði riðið að norðan með Teiti Styrmis- syni; hefur Kolbeinn verið þeim manni reiðari en öðrum af þeim Þórðarmönnum sem í kirkjuna höfðu flúið. Það er af þeim köppunum, Svarthöfða og Þórði Bjarnar- syni, að segja, að þeir lágu í fönninni, þar til Kolbeinsmenn voru riðnir hjá. Þá stóðu þeir upp og gengu til bæjar og fengu sér hesta og riðu í Stafholt og drápu á kirkjudyr. Dufgus karl, faðir Svarthöfða, kom til dyra og fagnaði syni sínum en spurði, hvort hann vissi að ólafur cha- im væri þar með þrjátigu manna. Þeir Svarthöfði hlupu þá þeg- ar á hesta sína og riðu brott. Þórður sagði þá skyldi ríða til Skóga, því að sá bær væri af- skekktur. En er þeir félagar komu þar fóru þeir í baðstofu og afklæddust. En er þeir höfðu sofið litla hrið, þá var þeim sagt, að menn Kolbeins riðu að garði. Þeir Svarthöfði hlupu þá upp og skutu inn brynjum sínum og stálhúfum í ofninn og hlupu út og hljóp Þórður í skóg en Svarthöfði til hestanna. Kol- beinsmenn urðu hans varir og riðu á eftir honum sem ákafast og kviuðu hann af framá hamri nokkrum. Svarthöfði hratt þar hestinum framaf og stökk sjálf- ur a eftir. Hamarinn var hár en þó sakaði hvorki Svarthöfða né hestinn, því að mikill lausa snjór var undir hamrinum. Eng- inn af Kolbeinsmönnum vildi fara á eftir Svarthöfða og sneru þeir við. Svarthöfði fór aftur heim í Skóga að sækja verjur sínar og reið þaðan til Sauða- fells en síðan útí Fagurey og er ekki að efa að Þórður hefur orð- ið þessum mikla kappa sínum feginn. Þórður Bjarnarson leyndist í skóginum og fór heim í Eskiholti. Þegar Kolbeinn ungi hafði starfað að mönnum Þórðar sem honum líkaði í Álftártungu reið hann útí Hítardal og var sagt þar allt hið sanna um ferðir Þórðar, þá reið hann til baka og norður Holtavörðuheiði og svo heim á Flugumýri. Kolbeinn setti niður menn til njósnar þar sem honum þótti bezt til fallið. Einn þessara njósnarmanna var Þórarinn balti, sem Kolbeinn setti til njósnar í Miðfirði, Þór- arinn var hinn versti maður og dró að sér marga illhreysinga og hafði setu á Osi. Gerðist hann óvinsæll og rænti hvern mann, þann er honum var í nánd. Framhald síöar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.