Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.1983, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.1983, Qupperneq 4
Tölvustandið nú og horfurnar Fyrsta rafeindatölvan, og hún fékkst einvörðungu við tölur, var sköpuð í Bandaríkjunum í lok heimsstyrjaldarinnar síðari (1946) og það var við Pennsyl- vania-háskóla, sem rekið var smiðshöggið á þetta sköpunar- verk mannsins. Tölva þessi vó 30 tonn og í henni voru 18.000 loft- tæmd hylki, sem brunnu upp að meðaltali sjöundu hverja mín- útu. Með nýrri gerð af spenni (transistor) og smágerðu straumrásakerfi og kísilkubbum tókst að minnka þessar tölvur sem fyllt höfðu herbergi niður í baunarstærð. Og verðið féll nær því í sama hlutfalli. Eniac kostaði 487 þúsund doll- ara en heimilistölvurnar, sem IBM er nú farið að framleiða, kosta 4 þúsund dollara og það er hægt að fá einföldustu gerð af Timex-Sinclair 1000 fyrir tæpa 78 dollara. Sérfræðingur nokkur í tölvu- verzluninni hefur reiknað út að Rolls Royce ætti ekki að kosta nema 2 dollara og 75 cent, ef í bílasmíði hefði gerzt hið sama og í tölvusmíðinni, og ekki eyða nema 3,8 lítrum af olíu í 3ja milljóna mílna akstri (tæpar 5 milljónir km). Framtíðin virðist vera gulli- stráð fyrir tölvuiðnaðinn. Á 83 milljónum bandarískra heimila er sjónvarp og þessi heimili verða einnig markaður smátölv- unnar og að auki er um að ræða 54 milljónir skrifstofumanna og 26 milljónir ýmiskonar fag- manna og loks 4 milljónir smá- fyrirtækja. Tölvuframleiðendur og sölu- menn horfa soltnum augum á allt það fólk í starfi og öll þau heimili, sem þeir telja að þurfi nauðsynlega á tölvum þeirra að halda. Þeir telja að það verði ekki minna en 80 milljónir tölva komnar í gagnið í lok aldarinn- ar. Þá verður ekki minni þörfin fyrir framleiðslu þess, sem tölv- an þarf til sín; borð undir hana, kassa til að flytja hana í, ýmis- legt til að hreinsa hana og halda henni í góðu lagi og það sem mestu skiptir er allur hugbún- aðurinn (softvare) eða tölvuefn- ið. Prógrammamarkaðurinn fyrir þetta vinnufúsa en van- gefna tæki er talinn verða nán- ast ótakmarkaður. Prógrömm sem jafnvel veita læknisráð Tölvuplötur (sb. grammófón- plötur) eru kallaðar á enskunni discs og það mætti svo sem kalla þær tölvudiska á íslenzku. Tölvuplötur með prógrömm eru mjög dýrar eða allt frá 60 doll- urum og upp í 5 þúsund dollara og þó geta þær verið dýrari. Fjárfestirgarprógrömm eru til á 59 dollara og 95 cent en aftur á móti kostar prógramm, sem kennir spænsku og eðlisfræði, 45 dollara fyrsta kennslustundin og eftir það 35 dollara hver kennslustund. Þá eru það svim- andi upphæðir, sem þarf að greiða fyrir geimprógrömm eða fjársjóðsieitarprógrömm og yf- irleitt öll mjög flókin rafeinda- prógrömm. 4 Á þessum prógrammamark- aði er reyndar minnst um vert myndbanda-prógrömmin með leikjum fyrir börn og fullorðna en þó seldu 20 fyrirtæki 250 gerðir leikja — prógramma fyrir 2 milljónir dollara á síð- astliðnu ári, en það getur nú verið að þessi leikjaprógrömm fari sömu leiðina og húlahopp- gjörðin, krakkar hafi gaman af þessu meðan þetta er nýtt fyrir þeim, en missi svo áhugann eða fari að prógramma sjálf tölv- urnar með leikjum. Það er samt svo enn, að meira en helmingur þeirra heimilis- tölva, sem komnar eru í með- ferð, eru mataðar á allskonar leikjaprógrömmum, keyptum í búð. Tölvumenn halda því fram, að þessi leikjaprógrömm séu mörg hver menntandi með einum eða öðrum hætti. Sum þeirra æfi fólk í rökréttri hugsun, önnur bæti málfarið og auki orðaforð- ann og enn önnur hafi beint hagnýtt gildi, veiti til dæmis læknisráð. Ef til vill er þó mesta gagnið af þessum leikjapró- grömmum, að þau æfa fólk í notkun tölvu og gera því kleift að nota hana til fleiri hluta en beinnar skemmtunar. Auk hinna ýmsu leikja er tölvan nú mest notuð til að vinna úr tölum og talnadálkum. Tölvan getur á sekúndunni unn- ið úr tölum svo þúsundum skipt- ir og hún er sérlega góð geymsla, enda þegar mikið not- uð sem slík fyrir allskonar minnisatriði og upplýsingar, sem hún getur látið mönnum í té á augnablikinu. Kjörorðið virðist vera að minna sé betra. Nú eru komnar aimenningstölvur, sem sambærilegar eru við ferðaritvélina og hægt að flytja með sér án mikillar fyrirhafnar. Með þræJ í vinnu Fullur helmingur allra Bandaríkjamanna stundar alls- Almenningstölvan kemur að notum við hin sundurleitustu verkefni. Jafnvel stjórnmálamenn geta létt á sér álagið með tölvunotkun og meðal þeirra, sem það hafa reynt er hinn snjalli forsætisráðherra Breta, Margaret Thatcher. málinu, svo var fyrir að þakka þræli hans heima. Terry Howard, víxlari í San Francisco, þurfti að eyða tveim- ur tímum daglega í að komast að og frá skrifstofu sinni í borg- inni og þar sat hann og vann á tölvu, pumpaði hana um alls- konar upplýsingar og svo var starfið fólgið í að tala í síma við viðskiptavini og veita upplýs- ingar. Hann brá nú á það ráð að fá sér heimilistölvu sem gat skilað honum öllum þeim upplýsingum sem hann þurfti á að halda og í símann gat hann alveg eins tal- að að heiman frá sér eins og af skrifstofunni, svo að hann hefur nú losnað við að vakna kl. 6 á morgnana til að aka af stað í vinnuna og situr nú í rólegheit- um heima með sína einkatölvu og telur sig ekki eiga nógu góð orð um þennan nýja vin sinn. Heimavinnandi tölvumenn John Watkins, sem á að hafa eftirlit með vinnuöryggi í stórri spunaverksmiðju, er einn af 20 mikilvægum starfsmönnum verksmiðjunnar, sem fyrirtækið keypti tölvur fyrir til nota heima, en áður voru þeir allir sendir á tölvunámskeið. Þeir fengu síðan verkefni heim með sér og með þessu vildi fyrirtæk- ið spara þeim tíma í ferðir milli heimilis og vinnustaða. Þessar tilraunir fyrirtækja hafa ekki alltaf borið þann árangur, sem til var ætlazt, af því að ekki fellur öllum vel að vinna heima, en John Watkins er alsæll með þetta fyrirkomu- lag. Honum vinnst betur en áð- ur. Verkefni hans var að sund- urliða og greina öll slys og orsakir þeirra, sem orðið hafa Almeimmgstölvan — 2. hluti en var á stœrð við herbergi árið 1946 konar þjónustustörf, svo sem að miðla margskonar þekkingu og upplýsingum, og almennings- tölvan er fær um og reyndar bíður tilbúin þess verkefnis að létta þessu fólki störfin og breyta þeim um leið. Almenningstölvan breytir mestu á heimilunum og í einka- rekstri í viðskiptum og þjón- ustu, til dæmis hjá smákaup- mönnum, læknum, lögfræðing- um, rithöfundum og verkfræð- ingum, og þetta fólk allt kemur til með að nota sér mikið sam- bandið við tölvubankana. í Time er langur listi yfir nöfn manna, sem votta ágæti tölv- unnar og hafa sögu að segja af því, hvernig hún hefur breytt starfsháttum þeirra og létt þeim lífið. Frank Herring, einn af fram- kvæmdastjórum Transameric- an, lá á að gera sér ljóst um eina helgi, hver útkoman yrði af því, eða hverjar tillögur hann ætti að gera, ef Transamerican yfir- tæki fyrirtæki nokkurt og var þarna um 300 milljóna dala kaup að ræða. í stað þess að sitja alla helgina illa haldinn á skrifstofu sinni inni í borginni og þar við tölvu, fór Herring heim til sín út í sveit, því að hann átti sér Apple-heimilis- tölvu og hann spjallaði við hana í rólegheitunum um helgina, gaf henni allar upplýsingar um kaupin og hugsanlegar tillögur og tölvan tók svo að sér helgar- vinnuna fyrir húsbónda sinn, sem væiitanlega hefur sinnt konu sinni og börnum í staðinn. Herring framkvæmdastjóri kom hress og úthvíldur til skrifstofu sinnar á mánudagsmorgun, en þá þó orðinn vel heima í öllu hjá fyrirtækinu gegnum árin og hvar og hvenær þau hafi skeð. Watkins segir frá því, að í þess- ari skýrslugerð hans hafði kom- ið í ljós, að það hafi ekki komið fram nema sem svaraði V25 af slysum hjá verksmiðjunni á læknaskýrslum. Öll minni hátt- ar meiðsli voru ekki á skýrslum. (Þetta er dálítið athyglisverð niðurstaða fyrir okkur hérlend- is, því að það er vitað, að það er ekki nema lítill hluti af meiðsl- um á sjómönnum sem kemst á skýrslur, en hér er enginn John Watkins með tölvuna sína til að rannsaka þennan þátt íslenzkra vinnuslysa). Watkins notar svo tölvuna til ýmissa eigin nota, hefur til dæmis útbúið í hana stærð- fræðiprógramm fyrir strákinn sinn og orðaprógramm fyrir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.