Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.1983, Blaðsíða 5
Viö höfum fengið smjörþefinn af leikfangi framtíðarinnar, tölvuspilum og leikjum hvers konar, þar sem stjórnandinn getur farið í kappakstur eða tekið þátt
í orrustum úti í himingeimnum.
konuna sína, sem er að skrifa
meistararitgerð í sálarfræði.
David Rose, fasteignasali í
New York, lætur tölvu sína hafa
reiðu á 4 þúsund binda í bóka-
safni sínu, skrifa fyrir sig bréf,
laga kaffi, vekja sig á morgnana
og taka af sér ýmis viðvik, svo
sem að kveikja og slökkva ljós
eða á sjónvarpinu, og þessi
vinnukona hans biður hvorki um
hærra kaup né meira frí.
Brúkunarhestur
hjá Brown
Þá er að segja frá Aaron
Brown, sem selur skristofuhús-
gögn í Kansas City. Brown var
vantrúaður á nytsemi tölvunn-
ar, en 15 ára sonur hans sneri
honum til tölvutrúar. Fyrir
þremur árum átti sér stað mik-
ilvæg atkvæðagreiðsla hjá
Brownfjölskyldunni: — átti fjöl-
skyldan að fara í sumarleyfi til
Kaliforníu eða kaupa sér tölvu?
Tölvan vann með þremur at-
kvæðum gegn einu. Strákurinn
prógrammaði tölvuna fyrir karl
föður sinn. Brown safnaði í tölv-
una nöfnum og heimilisföngum
og öðrum upplýsingum um alla
þá, sem hann hélt að til greina
kæmu að kaupa af honum skrif-
stofuhúsgögn, svo sem þeir, sem
væru að skipta um húsnæði eða
stofna fyrirtæki, og þetta allt
var geymt í tölvunni, sem síðan
reiknaði út allt um reksturinn
og sölumöguleikana. Brown hef-
ur eytt um 1500 dölum í pró-
grömm en hann hefur líka tvö-
faldað söluna og selur nú fyrir
meira en eina milljón dala ár-
lega. Og Brownfjölskyldan notar
tölvuna orðið til margra ann-
arra hluta en verzlunarvið-
skipta. Strákurinn, sem er enn
aðaltölvumaðurinn, hefur út-
búið frönskuprógramm í tölv-
una og hún segir hátíðlega „Vive
la France“ og syngur part af La
Marseillaise. Frú Brown notar
tölvuna til að geyma í henni
mataruppskriftir og dóttirin í
húsinu, en það var hún, sem
greiddi atkvæði á móti tölvunni,
langaði meira til Kaliforníu,
geymir í tölvunni ýmis skóla-
verkefni og lætur hana vinna úr
þeim fyrir sig.
„Nú er þetta orðið svo hjá
minni fjölskyldu," segir Brown,
„að það er með tölvuna eins og
baðherbergið, ef tölvan er upp-
tekin, þá bíður annar þangað til
hún losnar.“
En nú langar frú Brown til að
kaupa sér teppi, en herra Brown
til að kaupa sér fullkomnari
tölvu og herra Brown er klókur
karl, sem veit sínu viti og segir
það ólíkt viturlegra að kaupa
tölvuna, því að „hún skaffar
okkur peninga, en teppið er að-
eins til að ganga á því“. Og hann
sallar tölvuspeki á frú Brown og
segir, að það séu fimm atriði,
sem fólk eigi að eyða peningum
sínum í, og það er til lífsnauð-
synja, hagstæðrar fjárfestingar,
bættrar aðstöðu, aukinnar þekk-
ingar og til að vaxa í augum
þeirra, sem maðurinn umgengst.
„Tölvan gerir allt þetta,“ segir
Brown, „en teppið aðeins það
síðasta."
Það er hætt við að frú Brown
eigi ekkert svar við skotheldum
rökum, nema skilja við herra
Brown og það skyldi enginn lá
henni.
Eins og kom fram hjá Roger
Rosenblatt hér að framan, er
það bara tímaspursmál, hvenær
herra Brown prógrammar tölv-
una til að kyssa frúna.
Tölvan og tölvu-
bankarnir
Þótt hver einstök tölva geti í
höndum kunnáttumanns reikn-
að, teiknað, skilgreint og geymt,
þá eykst gildi hennar margfalt
sé hún tengd tölvuneti. Tölvan
er tengd tölvubanka eða tölvu-
miðstöð með símalínu, tví-
stefnukapli, og í því alheims-
tölvuneti, sem er að myndast,
eru geimhnettir orðnir mikil-
vægir tengiliðir. Sé tölvan tengd
tölvubanka eða tölvumiðstöð, þá
er hægt að hringja í miðstöðina,
sem bæði geymir upplýsingar og
leitar þeirra um allar jarðir.
Það eru nú 1450 slíkar tölvu-
miðstöðvar í Bandaríkjunum og
þær sinna margskonar hlut-
verkum. Töivumiðstöðin Source,
sem Reader’s Digest rekur í
McLean í Viscounsin, veitir all-
ar upplýsingar um verðbréfa-
markaðinn og flugáætlanir og
fleira, en svo eru aðrar mið-
stöðvar, sem fást við sérhæfðara
efni og geta fremur kallast
tölvubankar af því að aðalhlut-
verk þeirra er að geyma upplýs-
ingar, þótt þeir leiti þeirra einn-
ig til annarra banka. Slíkur
banki er til dæmis AMA/NET,
sem er rekinn af bandarísku
læknasamtökunum, ellegar
Hughes Rotari Rig Report, sem
er fyrir hina innvígðu einvörð-
ungu. Gjald fyrir banka- eða
miðstöðvarþjónustu er allt frá
10 dölum á klukkustund til 300
dala.
í læknisfræðinni er tölvan,
sem í upphafi geymdi aðeins
skýrslur og skrifaði út reikn-
inga, farin að sjúkdómsgreina.
Caduceus-tölvan þekkir um 4
þúsund einkenni 500 sjúkdóma.
Mycin-tölvan er sérhæfð í smit-
sjúkdómum, Puff í lungna-
sjúkdómum og allar þessar tölv-
ur tengjast svo tölvuneti, sem
kallast Sumex-Aim, og eru
bækistöðvar þess í Stanford í
vestri en Rutgers í austri. Þetta
gæti nú virzt enn eitt skrefið á
brott frá hinum vinalega heim-
ilislækni, en það er nú svo, að
þótt heimilislæknirinn gæti
þekkt 4 þúsund sjúkdómsein-
kenni, þá er líklegra að Ca-
duceus-tölvan gæti áttað sig
betur á, hvað af þeim kæmi bezt
heim við lýsingu sjúklingsins á
sínu tilfelli. Þetta getur sýnzt
ómannlegt fyrir sjúklinginn en
það reyndist þó svo á sjúkrahúsi
einu (sem ekki er nefnt í Time,
sennilega vegna læknanna þar)
þar sem það var borið saman,
hvernig sjúklingum með maga-
krabba félli við sjúkdómsgrein-
ingu tölvu samanborið við sjúk-
dómsgreiningu læknis. Það
furðulega kom í ljós, að sjúkl-
ingnum þótti tölvan „vinalegri,
kurteisari, afslappaðri og skiln-
ingsbetri" en hinn venjulegi
læknir.
(Þetta er dálítið ískyggileg
uppákoma fyrir læknastéttina,
en bjargast þó á meðan það er
læknirinn sem kveikir á tölv-
unni, en málið fer að vandast
þegar sjúklingur kann á al-
menningstölvuna, og hefur sam-
band við sinn tölvubanka. En á
það skal bent, að þá er betra að
sjúklingurinn sé sæmilega klár í
kollinum, því ef hann gefur tölv-
unni rangar upplýsingar, getur
hann allt eins fengið svarið: Þú
ert dauður, maður minn — og
tölvan tekur ekkert aftur, sem
hún hefur einu sinni sagt, nema
hún sé algerlega spurð uppá
nýtt. Hvað geta tölvudýrkendur
gert í svona tilfelli, nema deyja
á stundinni?)
Það er nú til tölvutæki, sem
komið er fyrir í sjúklingi með
hjartagalla, og í sykursjúklingi
dælir tölva nákvæmum
skammti af insúlíni í skrokk
hans, þá getur tölva greint
sundur hundruð blóðprufa við
rannsókn á ofnæmi og hún getur
framleitt hljóð með tíðni, sem
hinir heyrnarlausu skynja og
hún getur örvað með rafmagns-
öldum lamaða vöðva i lömunar-
sjúklingi og gert þá gangfæra.
Sérfræöingar í sam-
bandi við tölvubanka
Jon Love, bæklunarsérfræð-
ingur og skurðlæknir, segist
tengja sína heimatölvu við tvo
5