Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1984, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1984, Síða 11
Saura fæddist í Huesca árið 1932. Hann hóf nám í verkfræði en lauk því aldrei. Frá árinu 1949 helgaði hann sig ljósmyndun og tók þátt í ýmsum sýningum. Árið 1952 hóf hann nám í „La Escuela de Cine“ (Kvik- myndagerðarskólanum) og útskrifaðist þaðan árið 1957, sá eini í sínum árgangi sem náði prófi. Hann starfaði um skeið sem kennari við kvikmyndagerðarskólann og gerir um svipað leyti nokkrar stuttar kvikmyndir, t.d. „Cuenca" (1958) auk þess sem hann skrifar kvikmyndahandrit í samvinnu við aðra. Saura brúar bilið á milli tveggja hópa í spænskri kvikmyndagerð, annars vegar eru Bardem og Berlanga og hins vegar höf- undar „nýju kvikmyndarinnar" sem fram kom á 8. áratugnum. Fyrstu kvikmyndir hans hafa að geyma opinskáa þjóðfélags- gagnrýni enda var Saura undir áhrifum frá ítölsku nýraunsæi og hlynntur gagn- rýnni raunsæisstefnu. f sinni fyrstu löngu kvikmynd, „Los golfos" (Götustrákarnir, 1959), lýsir Saura samskiptum sínum við smábófaklíku í fátækrahverfi, pilta sem ávallt munu bera lægri hlut í lífinu. Þessi félagslegi ósigur skýtur upp kollinum aft- ur og aftur hjá Saura, ekki aðeins meðal lægstu stétta þjóðfélagsins eins og í „Los golfos" heldur einnig hjá borgarastéttinni. Kvikmyndaeftirlitið gerði Saura erfitt fyrir þegar hann gerði aðra kvikmynd sína „Llanto por un bandido" (Stigamaður syrgður, 1963), en með henni vildi hann benda á hina raunverulegu orsök þess að rupl og rán voru svo mikið stunduð í Anda- lúsíu, þ.e.a.s. hið mikla félagslega óréttlæti sem bændur á þessum slóðum urðu að þola. Kvikmynd þessi vakti lítinn áhuga- manna. Frá árinu 1965 fara verk Saura að mynda tengsl sín á milli enda mikið til sama fólkið sem starfar að þeim með hon- um, til dæmis Geraldine Chaplin sem Saura tengdist tilfinningaböndum við gerð myndarinnar „Peppermint frappé" (1967). Mynd hans „La caza“ (Veiðiferðin, 1965) hlaut Silfurbjörninn á kvikmyndahátíð- inni í Berlín og í kjölfarið var hún seld til Bandaríkjanna þar sem gagnrýnendur í New York töldu hana þriðju bestu erlendu kvikmyndina á því ári. Á árunum 1965—73 byggir Saura upp sinn eigin og afar einkennandi stíl og enda þótt sum verk hans frá þessum tíma séu fálmkennd, mislukkuð eða einungis miðl- ungi góð, eru önnur frábær. Þetta eru tím- ar þroska og reynslu fyrir Saura sem auk þess býr í landi þar sem ríkir allsherjar og niðurdrepandi ritskoðun. Við slíkar að- stæður neyðist Saura til að nota torrætt og táknrænt líkingamál um leið og hann reynir að tjá sig af djúpstæðu raunsæi þar sem ímyndunarafl, draumur og martröð koma einnig við sögu eins og hjá læri- meistara hans, Bunuel. Þegar ritskoðuninni var aflétt árið 1975 var Saura skipað á fremsta bekk í spænskri kvikmyndagerð, enda er enginn vafi á því að næst á eftir Bunuel er hann merkastur allra spænskra leikstjóra. Gagnrýni á Borgarastéttina Oftast fjalla kvikmyndir Saura um spænsku borgarastéttina og oft um þá kynslóð sem fæddist rétt eftir borgara- stríðið, mislukkaða menn á fimmtugsaldri sem Saura notar til að sýna hvernig þær mótsagnir sem borgarastéttin hefur sjálf skapað enda með því að eyðileggja bæði þá einstaklinga og hópa sem henni tilheyra. Fernt er það hjá Saura sem ávallt er að finna í verkum hans: innilokun, afturferð í tímá, kynlíf og dauðinn. Persónurnar eru lokaðar einhvers staðar og komast ekki út. Þær geta verið á friðlýstu svæði (La caza), í borgarhverfi (Deprisa, deprisa) eða í far- Aitor Yraola SAURA og aörir stórmeistarar kvik- myndagerðar á Spáni, sem hafa blómstrað síðan Franco leið — og jafnvel fengið Óskarsverðlaun Fernt er það, sem ávallt er að finna í kvikmyndum Saura. Innilokun, afturferð í tíma, kynlíf og dauða. Þær fjalla oftast um spænsku borgarastéttina og oft þá kynslóð, sem fæddist rétt eftir borgarastríð. Saura, áhrifamesti kvikmyndahöfundur Spán- rerja um þessar mundir. Úr kvikmyndinni „Vestide de Azul“ sem sýnd er á kvikmyndahátíðinni. Alfredo Landa, aðalleikarinn í krikmyndunum „Ei Crack 1“ og „El Crack 11“ sem sýndar eru á krikmyndahátíðinni. Kvikmyndaleikstjórinn José Luis Garci. lama líkama sínum (E1 jardín de las delici- as). „Fangelsi" þetta er fullt af atriðum eða persónum sem minna á fortíðina og úr nútíð kvikmyndarinnar hverfum við aftur í tímann. Það er gangur fortíðarinnar inn í nútíðina (flashback, upprifjanir) sem hefur úrslitaáhrif á lausn verksins. í myndinni „La prima Angélica" (Angélica frænka, 1973) lætur Saura leikarann López Vázquez sem er fullorðinn maður leika lít- inn dreng og sýnir þannig að ekkert hefur breytzt á 40 árum og að komið er fram við fullorðið fólk eins og það væri börn. Kynlífið er sett fram sem þráhyggja sem leiðir til togstreitu og ofbeldis, kynlíf borgarastéttarinnar er eyðileggjandi afl og aldrei annað en líkamlegt, það getur ekki orðið tilfinningalegs eðlis. Öfgafyllstu dæmin um þetta eru læknirinn í „Pepper- mint frappé" eða eiginmaðurinn í „Elisa, vida mía“ (Elisa, ástin mín, 1977). Dauðinn er óhjákvæmilegur endir í myndum hans. „Ég drep þau ekki, þau deyja sjálf," segir Saura þessu til réttlæt- ingar. Raunverulegur dauði eða siðferði- legur, það skiptir ekki máli hvort heldur er. En öll þau atriði sem hér hafa verið talin gera myndir Saura afar sérstæð verk sem bjóða upp á afar ákveðna túlkun. Á meðan Franco var við völd túlkuðu menn myndir Saura sem pólitískar. Á tím- um einræðisherrans var það vissulega óhjákvæmilegt fyrir alla listamenn að skírskota á einn eða annan hátt til hins þrúgandi umhverfis sem þeir lifðu og hrærðust í. En þrátt fyrir það takmarkast verk hans ekki eingöngu við gagnrýni á stjórnarfarið, þau sýna okkur jafnframt skelfilega rotið samfélag þar sem bæði eru einstaklingar og ýmis fyrirbæri sem gera lífið í því næsta óbærilegt. Þar eru til dæmis hið kúgandi menntakerfi, sjálfspísl trúarinnar, ófullnægjandi ástarsambönd, sjúkleg fýsn í ágóða, persónuleg sambönd þar sem annar aðilinn kúgar hinn, von- brigði og vonleysi á öllum sviðum. Hin óteljandi verðlaun sem Saura hefur hlotið staðfesta að hann er verðugur stöðu sinnar í spænskri kvikmyndagerðarlist. Samt skipta hvorki verðlaunin né frægðin erlendis höfuðmáli fyrir hann heldur hitt, að hann lítur á kvikmyndagerð sem tján- ingarmáta fremur en starf eða lífsmáta. Saura gerir kvikmyndir vegna þess að hann hefur eitthvað að segja og vegna þess að þær eru sá miðill sem hann kýs að nota til að tjá það sem honum liggur á hjarta bæði sem maður og listamaður. Skrá yfir kvikmyndir eftir Saura 1958 Cuenca 1959 Los golfos 1963 Llanto por un bandido 1965 Lacaza 1967 Peppermint frappé 1968 Stress es tres, tres 1969 La madriguera 1970 El jardín de las delicias 1972 Ana y los lobos 1973 La prima Angélica 1975 Cría cuervos 1976 Elisa vida mía 1978 Los ojos vendados 1979 Mamá cumple cien anos 1980 Deprisa, deprisa 1981 Bodas de sangre 1981 Dulces horas 1982 Carmen Luis García Berlanga, SVARTSÝNN HÚMORISTI Hann fæddist í Valencia og er núna 59 ára gamall, renglulegur og gráhærður, sonur sæmilega auðugs landeiganda og var í æsku áhugamaður um hjólreiðar. Hann hóf nám í lögfræði og heimspeki, en hætti fljótlega. Hann gekk í „Bláu herdeildina" og var í nokkra mánuði í Sovétríkjunum en hleypti aldrei af einu einasta skoti. Upphaf manndómsára hans einkennast af stöðugri leit, skáldskap og skrifum um kvikmyndir, en þá bjó hann í Madrid og lifði á peningum móður sinnar. Þegar „La Escuela de Cine“ tók til starfa árið 1947 hóf hann nám í leikstjórn og að náminu loknu fékkst hann einkum við að gera stuttar kvikmyndir en gerir sína fyrstu löngu kvikmynd árið 1951, „Esa pareja fel- iz“ (Þetta hamingjusama par). Hann hefur skrifað fjöldann allan af handritum sem kvikmyndaeftirlitið kom í veg fyrir aö hann gæti kvikmyndað, og fjárhagslega er hann svo vel stæður að hann þarf ekki að gera neinar kvikmyndir samkvæmt for- skrift. Berlanga var kennari við kvikmynda- gerðarskólann í mörg ár, forseti dóm- nefndarinnar á kvikmyndahátíðinni í Berlín og nú er hann yfirmaður spænska kvikmyndasafnsins jafnframt því sem hann leikstýrir kvikmyndum. Með svolítilli einföldun má skipta verk- um hans í tvo hópa. í fyrri hópnum er myndin „Plácido" (1961) og allar þær myndir sem hann gerir á undan henni. Þessar myndir einkennast af gagnrýnu ný- raunsæi en góðlátlegu þó, ásamt bjartsýni og manneskjulegri kímni. Seinni hluti verka hans býr yfir meiri beiskju og gálga- húmor. Þar kemur fram bölsýnismaðurinn Berlanga sem ýkir persónur sínar og vill rifa niður eða jafnvel kollvarpa hlutunum. Boðskapurinn væri eitthvað á þessa leið: „Þjóðfélagið eyðileggur einstaklinginn." Kvikmyndina „Plácido" ætlaði hann að Spænsk kvikmyndagerð. Síðari hluti. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. FEBRÚAR 1984 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.