Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1984, Blaðsíða 9
i Axel Björnsson, Kjartan Ólason og
gu ásýnd nýbylgjunnar í málverki og
Jón Axel
Björnsson
er faeddur í Reykjavík 1956. Hann
hóf listnám á kvöldnámskeiöum
undir leiðsögn Hrings Jóhannesson-
ar. Nám í Myndlista- og handíöa-
skóla íslands hóf hann 1976 og lauk
prófi frá málaradeild 1979. Þau 5 ár
sem síðan eru liðin hefur Jón Axel
unnið samfleytt að myndist, en
stundað vinnu jafnframt, þar til
fyrir einu ári. Síðan hefur hann að-
eins málað. Fyrstu einkasýningu
sína hélt Jón Axel í Ásmundarsal á
páskum 1982 og síðastliðið haust
átti hann þátt í sýningu í'Listasafni
ASl með þeim Vigni Jóhannssyni og
Gunnari Erni. Þar að auki hefur Jón
Axel tekið þátt í mörgum samsýn-
ingum.
mál. Við erum ekki í að „analísera" eins og
verður meginhlutverk formrænnar mynd-
listar. Það sálræna skiptir mestu máli hjá
okkur; það er í raun innsti kjarninn.“
Lesbók: Þar höfum viö kannski nákvæmustu
skilgreininguna, eöa einmitt svariö
við fyrstu spurningunni um innsta
kjarna nýbylgjumálverksins.
Jón Axel: Ég vil samt undirstrika, að
formið ræður mjög miklu hjá mér. Ég ætla
mér ef til vill að koma einhverju á fram-
færi og nota til þess ákveðin myndræn
atriði, en svo kemur fyrir að mér finnst
það á kostnað formsins og þá útrými ég
því.“
Lesbók: f blaðaviðtali við einn af nýbylgju-
málurunum, kvaöst hann vera að
túlka þennan brjálaöa heim okkar,
ef ég man rétt. Heimssýn hans birt-
ist í allskonar afskræmdum fígúr-
um. Eruð þið einnig að túlka þenn-
an brjálaða heim?
Jón Axel: „Já, ég tel mig hafa þessa af-
stöðu einnig. Ekki kannski sem heims-
ádeilu, heidur eðlileg viðbrögð, tilfinninga-
lega séð, við því sem er að gerast í heimin-
um. Ég er samt ekki að prédika."
Kjartan: „í mínum verkum geng ég út frá
einni meginhugmynd: Að maðurinn er
hvorttveggja í senn villtur og taminn.
Þetta lögmál skapar togstreitu hvata og
vitsmuna. Brjálæðið í heiminum er afleið-
ing af þessari togstreitu.
Sko, það hefur verið bent á — og víst
með réttu — að mínar myndir hafi nei-
Milverk eftir Valgarð Gunnarsson
Milverk eftir Valgarð Gunnarsson
kvætt innihald. Mér finnst það neikvæða
verða í ríkari mæli skapandi. Maður hefur
þörf fyrir að skilgreina heiminn og skil-
greiningin verður neikvæð."
Valgarður: „Það er þessi spurning um
klikkaðan heim. Ég get bezt svarað henni
þannig, að mitt viðhorf er rómantískt. Ef
umheimurinn kemur við sögu í mínum
verkum, þá er það ómeðvitað. Ég reyni að
búa mér til sérstakan myndheim, sem af-
markast ekki af innihaldi, — heldur stíl —
ef rétt er að farið. Svo það er þá aðeins
óbein lýsing á þessum brjálaða heimi, sem
fyrir kemur hjá mér. Eg nota .stundum
symból, táknmyndir, en það eru ekki algild
symból, heldur persónuleg og ég get alls
ekki ætlazt til þess að merking þeirra liggi
í augum uppi.“
Lesbók: Það eru víst hreinar línur, að þetta
nýbylgjumálverk rennur ekki út
eins og heitar lummur, enda þótt
sögur fari af umtalsverðri sölu á því
erlendis. Hversvegna eru viðtökur
svo dræmar hér?
Jón Axel: „Ég hreinlega veit það ekki og
hef ekkert svar við þessari spurningu."
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 17. MARZ 1984 9