Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1985, Blaðsíða 8
Appollon — áheyrendasalurinn í Tónlistarbúsinu í Nice tekur 2500 manns í sæti. Mikill halli er á gólffletinum og bonum er skipt í reiti með lítið eitt hallandi steinreggjum — og hljómburðurinn er i
Ferðalangur í Nice á Miðjarðarhafsströnd
Frakklands þarf ekki að fara langt eða víða
um þann suðræna bæ til þess að skilti beri
fyrir augu með áletruninni Akropolis. Hingað
til hefur maður ekki vitað til þess að Akro-
polis sé annars staðar en í Aþenu og dálít-
ið langsóott að fara að vísa á þá hofum
prýddu klettaborg vestur í Frans. En svona
er nú heimurinn orðinn; Enginn fær að
hafa sín örnefni í friði, ef einhverjum
hentar að nota það í kauphlaupinu um
athygli fólksins. Skiltin í Nice sýna hins-
vegar, að borgarfeðrum þar er mjög í mun
að ókunnugir fari ekki framhjá Akropolis,
en svo nefna þeir nýtt hús tónlistarinnar,
sem verður að teljast rósin í hnappagati
borgarinnar.
ARKITISKTÚR
Þessu tónlistarhúsi hefur verið valinn
staður við hæfi. Frá miðbænum liggur
leiðin þangað eftir fögrum lystigörðum,
prýddum gosbrunnum og pálmatrjám. En
umhverfis húsið eru einnig gosbrunnar og
stórar nútíma höggmyndir. Sjálft húsið
nýtur sín eins vel og verða má í þessu
umhverfi. Það er stórt; 338 metrar á lengd
og 65 á breidd. Hér hafa nokkrar flugur
verið slegnar í einu höggi: Byggt í einu
lagi yfir tónlistarflutning hverskonar og
fullkomin aðstaða til óperuflutnings, enda
er sviðið alls 1200 fermetrar og hefur
aðeins Parísaróperan stærra svið í Frakk-
landi. Salurinn rúmar 2500 manns í sæti,
en auk hans er annar 750 sæta salur í
húsum fyrir kammermúsík, smærri kon-
serta og ráðstefnur.
Ekki er aðeins nafn hússins tekið að láni
frá Grikkjum, heldur heitir stóri konsert-
salurinn Appollon, forsalurinn, sem
kannski er glæsilegasti hluti hússins heitir
Agora og minni salurinn heitir Aþena.
Fransarar hafa hingað til talið, að engum
væri vorkunn að bera fram frönsk heiti
og þeir skíra ekki sín hús að jafnaði
Hollywood eða Broadway. Borgarstjórinn
í Nice, Jacques Medecin, hefur beitt sér
manna mest fyrir því að þetta hús er nú
orðið að veruleika og hann vildi setja al-
þjóðlegt yfirbragð á fyrirtækið með þess-
um grísku heitum, sem allir þekkja og allir
geta borið fram án vandræða.
n m *
•ijífísii
Aþena beitir smærri salur, sem tekur 750 manns ísæti. Þar eru haldnar ráðstefnur, en einnig smærri t