Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1985, Qupperneq 12

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1985, Qupperneq 12
eða losna við slíkt Tvennt er það, sem margir telja hættulegast heilsu manna á vinnustöðum í Bandaríkjun- um. Asbest? Kolaryk? Nei. Skrifborð og snúningsstóll.Ef menn þurfa að sitja við skrifborð meginhluta starfsævinnar, geta SVÁ ÞÝDDI þeir reiknað með því fyrr eða síðar (venju- lega fyrr) að fá ístru, verða framsettir eða magamiklir eða hvað menn vilja kalla það, nema þeir sýni sérstaka gát. Menn þurfa ekki að vera feitir eða feit- lagnir. Þvengjalengjur geta líka fengið ístru. Og jafnvel þótt menn ástundi göngur, skokk, sund og hjólreiðar og hvað eina. Slíkar athafnir geta stuðlað mjög að því að viðhalda heilsunni og bæta hana. Þær eru hollar fyrir hjartað og lungun. En Um Miðhlutann Gegnir Öðru MÁLI Það sem menn þurfa að gera til að kom- ast hjá því að fá ístru — eða til að losna við hana, ef hún er þegar fyrir hendi — eru nokkrar sérstakar æfingar. Ekki margar. Aöeins örfáar æfingar munu leysa vandann. En þaö verða að vera hinar réttu. Og menn skyldi ekki undra, þótt niargar hinna gömlu hugmynda sem haldið hefur verið að þeim — um það hverjar séu hinar réttu æfingar — reynist vera rangar. ElNN KOSTUR: „FlTUSOG“ Sagt hefur verið, að miður aldur byrji á mönnum miðju. Það er skiljanleg fordild hjá mörgum manninum á fimmtugsaldri að óska þess, að hann væri aftur kominn með sama vöxt og hann hafði 20 árum áður eða svo. Þessi fordild, ef nota má það orð í þessu sambandi, hefur komið sumum til að reyna nýlega aðferð sem kalla mætti „fitusog", í von um að geta grennt sig á auðveldan hátt. Og áður en við snúum okkur að því að lýsa þeim ráðum, sem við erum sannfærðir um að sé hin rétta leið til að losna við bumbuna eða koma í veg fyrir hana, er ekki úr vegi að fara örfáum orð- um um „hinn nýja fituskurð". Aðferöin er fólgin í því, að fita er bók- staflega soguð burt úr vissum hlutum lík- amans. Læknir sker fyrst rúmlega tíu sentimetra langan skurð á þeim bletti, þar sem sog á aö fara fram, og síðan er pípu stungið þar inn. Pípan er tengd við dælu og fita er svo soguð út. Eftir endurteknar aðgerðir með sogpípunni er fitukeppurinn kominn með mynstur sem minnir á svissn- ‘eskan ost. Læknirinn þrýstir síðan saman þeirri fitu, sem eftir er, svo að holurnar eða göngin leggist saman, og umbúðir koma í veg fyrir að þau fyllist af vökva. Þessari aðferð er hægt að beita við vissa hluta líkamans svo sem læri, þjóhnappa, brjóst og kvið. Nokkur tími verður að líða, áður en fullnaðarreynsla er fengin af fitu- sogsaðferðinni. Ein helzta spurningin er, hvort fita muni myndast aftur í stað þeirr- ar, sem fjarlægð var. En auk þess er hætt við ýmsum aukaverkunum fyrir utan sviða og sársauka í viðkomandi líkamshluta sem kann að vera mánuðum saman. Hið Eiginlega Vandamál Eins og áður sagði, þurfa menn ekki að vera feitlagnir til að fá ístru eða verða magamiklir. Sökin er hjá magavöðvunum. Vissulega getur fita aukið á vandamálið, og ef menn þjást af offitu, þá þarf það sérstakrar athugunar við einnig. En hvort sem er um of mikla fitu að ræða eða ekki, þá er það slökum maga- vöðvum að kenna fyrst og fremst, að menn fá ístru. Og það er einnig meginatriöi annars al- gengs vandamáls. Bakverkir, sem eru næst- um eins algengir og kvef, valda miklu böli meðal raanna. En þeir stafa oftast af öðru en því, að brjóskplötur hafi haronað eða bein pressast saman. í könnun, sem gerð var á vegum tveggja háskóla í Bandaríkjunum á 5000 sjúkling- um, sem þjáðust af langvinnum bakverkj- um, kom í ljós, að í 8 af' hundraði tilfella var ekkert að í sambandi við brjósk eða bein. Hjá 4000 af þessum 5000 mátti rekja bakverkina einfaldlega til þess, að maga- vöðvarnir voru of slakir. Önnur könnun á vegum Iowa-háskóla leiddi í ljós, að hjá sjúklingum með lang- vinna bakverki var styrkur magavöðvanna oft innan við þriðjung af styrkleika bak- vöðvanna, og í þeirri könnun og fleirum reyndist ráðið við bakverkjunum vera í því einu fólgið að styrkja magavöðvana. Hlutverk magavöðvanna er mjög mikil- vægt fyrir margra hluta sakir. Hryggurinn, eða hryggsúlan, er samsett úr sérstökum beinum eða hryggjarliðum. En þeim er ekki raðað hverjum ofan á annan eins og leikfangakubbum. Til að halda líkamanum í jafnvægi er þeim raðað í S-laga bugðu. Vöðvar verða að styðja súl- una. Það eru 140 vöðvar tengdir við hrygginn og þeir vinna feikiverk samanlagt. Þeir halda uppi hryggjarsúlunni á svipaðan hátt og stög símastaur. Samiíkingin við stög á við að vissu marki. Sé eitt af stögunum sem heldur staur uppi, skorið í sundur, hallast eða feliur staurinn í áttina til óslitins stags. En þegar magavöðvar manna eru slakir, detta þeir ekki aftur á bak. Til að vega upp á móti veikleikanum færa þeir líkams- þungann til, halla sér lítilsháttar fram á við og treysta á bakvöðvana, sem meiri stuðningur er af. En þetta reynir óhóflega á bakvöðvana. Að því kemur aö þeir þreytast og valda sársauka — því aö þeir verða að gera það, sem magavöðvarnir ættu að gera. Af meira en einni ástæðu er það því styrking magavöðvanna, sem máli skiptir — og meira en nokkurt fitusog eða því um líkt, sem skilur magavöðvana eftir engu bættari. Hinar Gagnslausu Æfingar (Gegn Ístru) Ef menn hafa reynt líkamsæfingar og jafnvel stundað þær af kostgæfni til að losna við ístru og ekki náð neinum árangri, þá skulu þeir þó ekki örvænta. Það gæti nefnilega verið, að æfingarnar hafi ekki verið hinar réttu í þessu augnamiði. Göngur, skokk, sund, hjólreiðar og þess háttar athafnir eru góðar fyrir hjartað og æðakerfið, eins og áður sagði, en þær eru til lítis gagns, ef nokkurs, fyrir magavöðv- ana. Og sömu sögu er að segja um algengustu æfingarnar, sem stundaðar eru til að styrkja magavöðvana. Menn geta þjálfað sig lengi og vel með æfingum eins og að lyfta báðum fótum og setjast á ýmsá vegu án þess að verða varir við nokkrar breytingar til hins grennra um miðjuna. Og það af góðum og gildum ástæðum, sem menn hafa ekki gert sér nægilega grein fyrir. Þegar menn lyfta samtímis báðum fót- um til dæmis, liggja þeir á bakinu og lyfta fótunum, unz þeir mynda rétt horn við gólfið, og láta þá síðan síga. Æfing fyrir magavöðvana? Tæplega. Um þessar æfingar fjallar Judy Alter, prófessor við Wisconsin-háskóla, í bók sinni „Surviving Exercise". Hún segir, að fótalyftingar séu oft meðal verkefna í æf- ingum og þá sérstaklega mælt með þeim til að styrkja magavöðvana. En í rauninni eru það fyrst og fremst mjaðmarvöðvar, sem lyfta fótunum frá gólfinu í fyrri hluta æfingarinnar, en ekki magavöðvarnir. En svo þegar kemur til þeirra kasta, vinna þeir eins konar björgunarstörf til að koma í veg fyrir að bakið bogni. Það getur svo haft allt annað en æskileg áhrif á maga- vöðvana. Varðandi þá æfingu að setjast upp varar prófessor Alter eindregið við fjórum atrið- um: Það á ekki að setjast upp snögglega, ekki með fæturna beina, ekki að krækja fótunum undir innanstokksmuni eða neitt annað og ekki hafa handleggina bak við höfuðið — en allt eru þetta algengar að- ferðir. Og hún færir gild rök fyrir viðvörunum sínum: Sérhver æfing, sem gerð er snögglega, byggist að verulegu leyti á viðbragðsflýti fremur en á vöðvastyrk — og það að setj- ast snögglega upp styrkir í raun og réttu ekki magavöðvana. Þegar ménn setjast upp með beina fæt- ur, geta þeir lyft líkamanum nærri því án þess að reyna nokkuö á magavöðvana. Þegar fæturnir eru beinir, eru það vöðvarnir efst og á hliðum læranna, beygivöðvar mjaðm- ar, sem vinna störfin við lyftinguna. Ef fótunum er krækt undir eitthvað, verður enn minna um styrkingu maga- vöðvanna að ræða, því að fæturnir hjálpa mjaðmarvöðvunum lyftinguna og sigið. Og séu hendurnar hafðar bak við höfuð- ið, reynir enn minna á magavöðvana, því hægt að er nota handafl og snögga lyft- 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.