Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.1986, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.1986, Side 4
íslenzku sjónvarpi hleypt af stokkunum fyrir 20 árum „Eins og að stökkva fram af klettum66 Glaðbeittur hópur — myndin er tekin rétt áður en frumraunin átti sér stað og birtist á forsíðu Fálkans. Greinarhöfundurinn Emil Björnsson erlengst til vinstri á bak við Pétur Guðfinnsson framkvæmdastjóra. I fremstu röð eru, talið frá vinstri: Jón D. Þorsteinsson verkfræðingur, Andrés Indriðason og Sverrir Kr. Bjarnason. Bak við þá eru Ulfar Sveinbjörnsson og Tage Ammendrup. I öftustu röð frá vinstri eru Magnús Bjarnfreðsson, Markús Orn Antonsson, Gísli Gestsson, Örn Sveinsson, Ingvi Hjörleifsson, Sigvrliði Guðmundsson og Guðmundur Eiríksson. Sjö þeirra starfa enn hjá sjón varpi/útvarpi. Við, sem fyrst vorum ráðnir til starfa hjá íslenska sjónvarpinu, unnum að undirbúningi starfseminnar í eitt ár áður en reglulegar útsendingar hófust, og Pétur Guðfinnsson, sem enn er framkvæmdastjóri þess góðu EFTIR EMIL BJÖRNSSON FYRRUM FRÉTT ASTJ ÓRA FYRRI HLUTI heilli, var raunar tekinn til starfa á undan öllum öðrum. Dagskrárstjórar, yfirverkfræðingur og kvikmyndatökumaður voru ráðnir síðsumars 1965, og fyrstu fréttamennirnir, aðrir dag- skrárgerðarmenn, og tæknimannahópur, um haustið. Enginn hafði starfað við sjón- varp áður, og að því leyti stóðu allir jafnt að vígi. Menn voru því sendir í ýmsar áttir til að kynnast slíkri starfsemi. Undirritaður kynnti sér og starfaði við ýmsar sjónvarps- stöðvar í Bandaríkjunum í nokkra mánuði. Við sendum fyrstu fastráðnu fréttamennina, Magnús Bjarnfreðsson og Markús Öm Ant- onsson, til London, þar sem þeir kynntu sér fréttaþjónustu ríkissjónvarpsins BBC og ITN, fréttastofu einkasjónvarpsstöðvanna þar í landi. Síðan fóru þeir Magnús og Markús Öm á þriggja mánaða námskeið dagskrárstjómenda hjá sænska ríkissjón- varpinu í Stokkhólmi ásamt Ólafi Ragnars- syni, sem stjómaði útsendingu fréttanna fyrstu árin og gerðist síðan fréttamaður. Ennfremur vom þeir Tage Ammendrup og Andrés Indriðason á dagskrárgerðarná- mskeiðum hjá BBC og Þrándur Thoroddsen og Gísli Gestsson kvikmyndastjórar höfðu lært sitt fag í Póilandi og Englandi. Loks er að nefna að vænn hópur fyrstu tækni- manna sjónvarpsins dvaldist til ársloka 1965 hjá danska sjónvarpinu til að afla sér fræði- legrar kunnáttu og verklegrar þjálfunar á hinum ýmsu sviðum sjónvarpstækninnar. Þegar menn fóru að tínast heim úr ólíkum áttum fórum við að bera saman bækumar, sjá til hvað hentaði okkur og hvers við værum megnugir, velja úr því, sem við höfð- um kynnst, og aðlaga þetta nýja þekkingar- hrafl og skammvinnu starfsreynslu í öðrum löndum okkar frumstæða húsakosti, tak- mörkuðum afköstum ótrúlegs fámennis í röðum okkar og þröngum íjárhag. Sjón- varpsupptökusalur var innréttaður í verk- stæðisplássi Bílasmiðjunnar á Laugavegi 176, sem er eini sjónvarpsupptökusalur okk- ar enn í dag. Fyrstu hæðina í húsinu, að verkstæðisplássi þessu meðtöldu, hafði framkvæmdastjórinn, Pétur Guðfinnsson, fengið að kaupa fyrir 12 milljónir þetta ár, 1965, og rofið þar með þá hefð, sem svo má næstum kalla, að reisa fyrst eða kaupa dýrt húsnæði, þegar opinberar stofnanir eru að komast í gagnið, eða þá að flytja í rok- dýrt leiguhúsnæði og leggja mest upp úr umbúðum áður en nokkurt innihald er farið að koma í ljós. En þama sneið sjónvarpið sér stakk eftir vexti, og þótt húsnæðið væri ekki íburðarmikið var þetta í fyrsta sinn, eftir áratugastarfsemi, sem Ríkisút- varpið eignaðist eitthvert þak yfir höfuðið. Þessi húsakaup vom mikið gæfuspor fyrir íslenzka sjónvarpið, sem þama hefír þróast eðlilega og smátt og smátt eignast allar fimm hæðir Bílasmiðjuhússins gamla. Sann- aðist hér að sígandi lukka er bezt. Enda þótt byijunin væri erfið, þegar sjónvarpið hóf útsendingar sínar 30. september 1966, hafði árlangur tæknilegur og dagskrárlegur undirbúningur tekið meira á taugamar, næstum að segja, vegna óvissunnar um hvað verða mundi þegar „bamið" sæi dags- ins Ijós. Við renndum öll æði blint í sjóinn í smáu sem stóm, höfðum engar innlendar reynslufyrirmyndir að styðjast við, urðum að vinna algert brautryðjendastarf, jafnt fréttamenn, aðrir dagskrárgerðarmenn, sem tæknimenn. Ég dáðist ekki síst að tækni- mönnunum, sjálfsagt í og með vegna þess að ósjálfrátt ber maður mesta „respekt" fyrir því, sem maður ber minnst skynbragð á, en sér þó ganga með undraverðum hætti. Spennan jókst fram eftir árinu 1966, en þó einkum eftir að menntamálaráðherra hafði ákveðið hvaða dag lagt skyldi í loftið og íslenzka sjónvarpið er 20 ára eftir þrjá daga. Það nær til f lestra heimila í landinu og er snar og að flestum finnst ómissandi þáttur í hinum daglega veruleika. Það er glugginn sem veit út á við, það á stóran þátt í skoðanamyndun fólk ogþað sér landsmönnum fyrir fróðleik, skemmtun og afþreyingu. Þeir sem réðust til starfa hjá sjónvarpinu fyrir rúmlega 20 árum, tókust á við heillandi verkefni, sem þeir eru sammála um að haf i verið mikið ævintýri. Þar á meðal var fréttastjórinn í nærri tvo áratugi, séra Emil Björnsson. „Brautryðjandastarf hans og forystu fyrir 20 árum og jafnan síðan verður alltaf minnst í sögu íslenska sjónvarpsins,“ sagði Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri, í grein í Morgunblaðinu I fyrra, þegar Emil lét af störfum fréttastjóra. Að ósk Lesbókar rifjar hann upp eitt og annað frá upphafi sjónvarpsins; fyrri hluti þess birtist hér og sá síðari á næstunni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.