Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1987, Qupperneq 10
Sigurður Örn Brynjólfsson við vinnu í teiknistofu sinni.
fáumst við allt er varðar undirbúning á
prentuðu efni hvort sem er myndskreyting,
leturval, útlitsteiknun bóka, blaða og tíma-
rita, val á myndum og svo framvegis.
Við erum hins vegar alls ekki einir að
verki, þarna koma við sögu ljósmyndarar,
prentarar, kvikmyndagerðarmenn, texta-
höfundar og fleiri auk þeirra sem kaupa af
okkur verkið. Við erum hins vegar sá aðili
sem samræmir þessa vinnu, fáum upplýsing-
ar frá auglýsanda eða útgefanda og köllum
til aðra þá sem þarf til að vinna verkið.
ElGIN TEIKNISTOFA
Sigurður Örn Brynjólfsson útskrifaðist
árið 1968 frá Myndlista og handíðaskóla
íslands og við spyijum af hveiju hann valdi
þá deild og nánar um ferilinn:
— Á þeim árum var hægt að velja þijár
deildir eftir tveggja ára forskóla; auglýs-
ingadeild, kennaradeild og vefnaðarkenn-
aradeild. Af þessum þremur fannst mér
auglýsingadeildin ein koma til greina. Eftir
að ég lauk námi vann ég í ár hjá Argus sem
þá var nýstofnuð en síðan fór ég til Hol-
lands. Ég fékk styrk til náms í Rotterdam
og var þar veturinn 1969 til 1970 við Aca-
demie van Beeldende Kunsten.
— Þetta var góður vetur í Hollandi og
ég vann þar við myndlist, sótti fyrirlestra
og naut aðstoðar kennara en að öðru leyti
var þama um alveg sjálfstæða akademíska
vinnu mína að ræða. Það er mjög hollt og
reyndar nauðsynlegt að mínu viti fyrir
myndlistarmenn að dvelja um tíma erlendis
til að stækka sjóndeildarhringinn og við sem
vorum samferða í Myndlistaskólanum höf-
um flest gert það. Þegar ég kom heim aftur
fór ég að vinna á auglýsingastofu Kristínar
og vann síðan á ýmsum stofum. Síðustu
árin hef ég rekið eigin teiknistofu og vinn
þar enn.
Þú rekur þá ekki eiginlega auglýsinga-
stofu?
— Nei, ég rek ekki auglýsingastofu, þar
sem ég sé ekki um að panta birtingar og
önnur slík samskipti við fjölmiðla, heldur
annast ég allt sem viðkemur framleiðslu
myndefnis hvort sem það er fyrir bækur,
bæklinga, auglýsingar eða annað og fæ til
liðs við mig textagerðarmenn, ljósmyndara
og aðra sem þar þurfa að koma við sögu.
Mér fínnst gott að vinna þannig upp á
eigin spýtur og ég hef ekki viljað fara út í
mikinn stofurekstur. Margir auglýsinga-
teiknarar í dag eru orðnir verkstjórar eða
framkvæmdastjórar fyrir stofur en teikna
ekki lengur, en ég hef þó haldið út þetta
lengi og kann vel við það! Og þar sem ég
vinn einn get ég líka snúið mér að öðrum
verkefnum ef mér sýnist svo án þess að
leggja niður eitthvert fyrirtæki sem alltaf
hefur óþægindi í för með sér. Ég vinn núna
að verkefnum fyrir nokkra stóra aðila, m.a.
að námsbókahönnun og um þessar mundir
er ég líka að vinna að gerð teiknimynda.
TEIKNIMYNDIRNAR
Þar nefnir Sigurður svið sem er ekki
hvað fyrirferðarminnst í störfum hans, en
hann segist hafa mikinn áhuga á gerð teikni-
mynda. Hann gerði fyrstu íslensku teikni-
myndina, Þrymskviðu, sem var frumsýnd
árið 1980 í Regnboganum. Hún var einnig
sýnd úti á landi og síðar í sjónvarpinu. Er
þetta 15 mínútna löng mynd og fékk Sigurð-
ur starfslaun listamanns til að vinna að
myndinni en alls tók verkið nærri fimm ár.
Núna vinnur hann að gerð mynda fyrir
sænsku kvikmyndastofnunina.
— Já, ég hef alltaf haft mikinn áhuga
fyrir teiknimyndum og þegar ég vann til
dæmis á Auglýsingastofu Kristínar gerði
ég slíkar myndir sem sjónvarpsauglýsingar.
Á sýningu í Svíþjóð eða eins konar teikni-
myndahátíð fengu fulltrúar frá sænsku
kvikmyndastofnuninni áhuga á mynd frá
mér og fannst mér það mikil uppörvun. Þar
hitti ég menn sem höfðu lengi reynt að
koma myndum sínum að hjá þeim án árang-
urs en þeir ákváðu að taka myndir frá mér
og ég er nú að vinna að lokafrágangi. Ég
fer síðan með myndimar til Svíþjóðar í
næsta mánuði til kvikmyndunar og þær
verða sýndar sem aukamyndir í kvikmynda-
húsum.
Verður eitthvert framhald á slíkum verk-
efnum hjá þér?
— Það er ekki gott að segja. Þetta eru
núna þijár stuttar myndir sem sænska
stofnunin framleiðir og dreifir en það er
aldrei að vita hvað gerist í framhaldi af
því. Áhuginn hjá mér er í það minnsta fyr-
ir hendi.
Þarf teiknari ekki einhveija sérhæfingu
eða sérstaka kunnáttu til að framleiða
teiknimynd?
— Þetta er fyrst og fremst spuming um
Dæmi um sérstakan stíl í auglýsinga-
myndum, sem Sigurður hefur tileinkað
sér.
þolinmæði. Það þarf að sjálfsögðu að setja
sig inn í ákveðin vinnubrögð en_ hjá mér
hefur verið um sjálfsnám að ræða. Ég kynnt-
ist þessu fyrst þegar ég vann á auglýsinga-
stofu og jiað vantaði einhvem til að fara út
í þetta. Ég hafði löngu áður eignast hand-
bók eða leiðbeiningabók um teiknimynda-
gerð, dró hana fram og fór að þreifa mig
áfram og hef haft mjög gaman af þess
konar verkefnum.
Fjölbreytt Og Erfitt Nám
Eins og áður segir hefur Sigurður Öm
verið deildarstjóri grafísku hönnunardeildar-
innar í Myndlista- og handíðaskólanum
síðustu fimm árin en hann lætur nú af því
starfi. Hann hyggst þó kenna áfram við
skólann og við spyijum hann hvemig nám-
inu sé háttað í dag?
— Myndlista- og handíðaskólinn hefur
tekið allmiklum breytingum og þar em nú
mun fleiri deildir en þegar ég var við nám.
Námið í grafískri hönnun, auglýsingateikn-
un, er mjög fjölbreytt og erfitt. Við reynum
að kynna nemendum það strax því þegar út
í alvöruna kemur þurfa þeir að vinna af
nákvæmni, hratt og skipulega og þess vegna
kemur það fyrir að nemendur sem hefja nám
í deildinni skipta yfir í aðra deild.
Á hveiju námsári er farið yfir nokkur
svið. Við kennum módelteikningu, typo-
grafíu eða fræðin um letur og notkun þess,
notkun ljósmynda, filmuvinnu og prent-
tækni, litafræði, notkun myndbanda,
markaðsfræði, myndskreytingu, plakatgerð,
umbúðahönnun, gerð merkja, útlitsteiknun
og skissuteikningar. Hver kennari tekur að
sér eina eða fleiri annir og við leitum þess
vegna til fagmanna utan skólans, grafískra
hönnuða, prentara, ljósmyndara, viðskipta-
fræðinga og annarra og við höfum fengið
erlenda kennara til að taka einstakar annir.
Þannig höfum við bæði fengið menn frá
Ungveijalandi og Finnlandi.
Sigurður Öm dvaldi sjálfur fyrir ári í
Ungveijalandi, hélt þar sýningu á plakötum
og teikningum og kom heim þaðan með
fjölda mynda sem hann vann meðan á dvöl-
inni þar stóð. Eru það olíu— og þurrpastel
myndir og sýndi hann þær í Gallerí Borg á
liðnu vori. Honum hefíir verið tíðrætt um
grafíska hönnun en hann hefur einnig ýmis-
legt að segja um aðra hönnun til dæmis
iðnhönnun og sitthvað henni tengt:
IÐNHÖNNUN
— Iðnhönnun og grafísk hönnun eru
ágæt dæmi um hugtak sem mikið er talað
um á góðum stundum en síðan lítið meira
gert með og á það einkum við iðnhönnun.
Menn eru sammála um nauðsyn þess að við
íslendingar eignumst iðnhönnuði og sjáum
verkefni fyrir þá í hvetju horni. Við gerum
hins vegar ekkert í því að mennta iðn-
hönnuði en það tekur nokkum tíma, þeir
detta ekki ofan úr skýjunum. Kemur þá til
dæmis til greina að koma upp slíkri deild í
Myndlista og handíðaskólanum.
Finnar gerðu mikið átak í þessum málum
hjá sér fyrir einum þijátíu ámm og veittu
talsverðu fjármagni til að mennta iðnhönn-
uði og aðra til að koma finnskri framleiðslu
á framfæri við umheiminn. Þeir hafa síðustu
árin verið að njóta uppskerunnar. Við emm
hins vegar á hráefnisstiginu — margir út-
lendingar líta einungis á Island sem hráefn-
isframleiðanda og því þurfum við að breyta.
Við þurfum líka að breyta þeim vinnubrögð-
um að „hanna“ eða stela hlutum frá útlönd-
um sem við framleiðum síðan sem íslenskt.
Það gengur aldrei á heimsmarkaði.
Við þurfum líka að gæta okkar í markaðs-
málunum. Ullin hefur gengið vel, sauðalit-
imir seldust vel og allir vom ánægðir. Nú
hefur hins vegar orðið breyting á og menn
vilja aðra liti en við ætlum bara að þrengja
sauðalitunum upp á menn áfram. Við þurf-
um að vera miklu sveigjanlegri og laða
okkur að markaðnum miklu betur en við
höfum gert.
Að lokum minnumst við á sýningu Sigurð-
ar sem hann opnar í dag, laugardaginn 19.
september, í Listasafni ASÍ í Reykjavík.
Hann sýnir þar ýmislegt af því sem hann
hefur verið að fást við á undanförnum 20
ámm, bókarkápur, plaköt, auglýsingar og
myndir. Má segja að þar fáist í einni svipan
gott yfirlit yfir það sem heitir grafísk hönn-
un og kemur þá vel í ljós hversu yfirgrips-
mikið og flölbreytt svið hér er um að ræða.
seætieitiraðRautamesi.
við.
ogrenút)
Reri Skalla Grimur síðan til tands með steinínn og hót að smíða jám.
H&mitíir; EgHs saga.
Nafn;
Bekkur:
Kl. Mánudagur
Þriðjudagur | Miövikudagur Fímmtudagur
FÖstudagur
Stundaskrá — eins og flest verk Sigurðar með áherzlu á gamansemi.