Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.1987, Side 7
B w 1 L A R
Duesenberg 1931.
Eru allir bílar
að verða eins?
traumlínan sækir á, í stað hvassra homa eru að koma mýkri línur, sumpart
til þess að ná hagstæðum vindstuðli, en einnig til þess að draga úr slysahættu
og í þriðja lagi vegna þess að nú þetta í tízku, sem skiptir auðvitað mestu
máli. En form sem ráðast af niðurstöðum úr vindgöngum hafa orðið til þess,
að margar tegundir bíla fá alveg sama svipmótið og bílamir verða í vaxandi
mæli gersneiddir séreinkennum eða eigin
persónuleika. Það sem hér er sagt á við um
fólksbfla; þessi umfjöllun tekur ekki til sport-
bíla og ekki heldur til jeppa.
T-módelið fræga, sem Ford framleiddi
óbreytt árum saman snemma á öldinni, var
eiginlega eins og strætisvagnabiðskýli eða
stór símaklefí á hjólum. Fyrstu bflamir voru
líka beint framhald af hestakerrunum og
hraðinn ekki meiri en svo, að loftmótstaðan
skipti ekki miklu máli. Eftir að farið var
að setja stórar vélar í bíla, sem gerðist furðu
fljótt, var farið að huga að loftmótstöðunni
og straumlínan sýnist orðin háþróuð í bflum
eins og Silver Arrow, árgerð 1931, sem
raunar var með 12 strokka vél, en einnig í
þeim víðfræga Cord 810 um 1930, í Chrysl-
er Imperial, árgerð 1932 og Aubum
Speedster, árgerð 1928.
Ekki Er Allt Sem Sýnist
í þessum bflum var straumlínan tekin
eftir auganu; menn gizkuðu á, að þetta lag
minnkaði loftmótstöðuna, sem var að sjálf-
sögðu í áttina. En annað vannst um leið;
nefnilega listrænt útlit og margir fallegustu
bflar liðinna áratuga em einmnitt þeir, sem
þannig vom hannaðir. Aftur á móti kemur
í ljós, þegar farið er að mæla þessa gömlu
HVADA BÍLAR
ERU BEZT TEIKNAfHR?
Þórhallur Jósepsson
skrifar að staðaldri um bfla
í Morgunblaðið
1) Mercedes
Benz 300
CE
2) Cadillac
Allanté
3) Oldsmobile
Toronado
Jóhannes Reykdal
blaðamaður hjá DV og
skrifar um bfla
1) Mercedes-
Benz 300 CE
2) BMW 730-750
3) Alfa 164
Kristján Friðriksson
auglýsingateiknari
1) BMW 730-750
2) Mercedes-
Benz 300 CE
3) Audi 80
J6n Baldur Þorbjörnsson
bflaverkfrœðingur
1) BMW 325
2) Jaguar
Sovereign
3) Honda Civic
Berlinetta
Bessí Jóhannsdóttir
framhaidsskólakennari
1) Mercedes-
Benz500SEC
2) BMW 750
3) Audi
quattro
100
Valdemar Harðarson
arkitekt og hönnuður
1) Mercedes-
Benz 190
2) Lancia Y10
3) Honda Civic
Danfel Slgurðsson
nemi i arkitektúr
1) Mercedes-
Benz 300 CE
2) BMW 635
3) Jaguar
Sovereign
Gísli Sigurðsson
höfundur greinarinnar
1) Jaguar
Sovereign
2) BMW
730-750
3) Mercedes-
Benz300CE
STIGAGJÖF
Til þess að komast að raun um niður-
stöðu eru gefin þrjú stig fyrir fyrsta
sæti, tvö fyrir annað sæti og eitt fyr-
ir það þriðja. Samkvæmt þeirri taln-
ingu er MERCEDES-BENZ 300 CE
hæstur með 9 stig í fyrsta, 2 í annað
og 1 í þriðja sæti, eöa samtals 12 stig.
I öðru sæti er nýja SJÖAN frá BMW
með samtals 9 stig og JAGUAR SO-
VEREIGN í þriðja sæti með 6 stig.
Þessir þrír hafa verulega yfirburði.
Þarnæst koma BMW 325, Merce-
des-Bens 500 SEC og Mercedes-
Benz 190, allir með 3 stig. Með 2
stig eru eftirfarandi fjórir: BMW 635,
Cadillac Allanté, Lancia Y10 og
Honda Civic. og að lokum fá 1 stig
Oldsmobile Toronado, Audi quattro
100, Alfa 164 og Audi 80.
Niðurstaðan bendir mjög í eina
átt; Þýzkir bílar virðast eiga sér
marga aðdáendur. Þeir fá samtals
34 stig, en allir aðrir 14.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 10. OKTÓBER 1987 7