Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.1987, Page 8
-t
eryfirburða sigurvegari í stigagjöfinni með samtals 12stig, þar af9 ífyrsta
sæti. Þetta er nýgerð, sem kom fyrst á markað íár, lítið eitt styttri en sjöan
frá BMW, eða 4,74m. Þessigerð hefur fengið geysilega góðar viðtökur, enda
hefur hönnuðum Benz tekizt vel upp. Hinu sérstæða svipmóti erhaldið til
fulls, en kílformið aukiðfrá 230-260gerðinni ogáherzlan á straumlínu er
meiri en áður.
straumlínubíla í nútíma loftgöngum, að loft-
mótstaðan er miklu meiri en hægt væri að
ímynda sér. Þar er ekki allt sem sýnist. Til
dæmis eru nýju gerðimar af Mercedes Benz
með mjög góða útkomu að þessu leyti án
þess að sýnast rennilegar. Þótt ótrúlegt
megi virðast, kemur stóra gerðin af Citroen,
CX, ver út og stóri Jagúarinn, XJ6, sem
sýnist sleipur eins og lax, er með vindstuðul-
inn 0,36, þegar bílar eins og Benz 300,
Audi 100 og 80 og Renault 25 eru með um
0,30.
Miðað við akstur á venjulegum ferða-
hraða, breytir það ugglaust litlu um eyðsl-
una, hvort vindstuðullinn er fáeinum brotum
hærri eða lægri. En frá og með olíukrepp-
unni varð þetta auglýsingaatriði, sem
væntanlegir kaupendur voru látnir trúa að
skipti sköpum. Þessvegna er lágum vind-
stuðli slegið upp, þegar nýjar gerðir eru
kynntar og til þess að hann náist, verður
að forma útlitið samkvæmt niðurstöðum úr
vindgöngum. Þá getur farið svo, að öðru
þýðingarmeira verði að fóma, svo sem hæð
undir loft í bflnum, eða jafnvel farangurs-
rýminu.
Það er þetta, sem við búum við núna:
Vindstuðullinn er látinn ráða útliti nýrra
bfla, en með þeim dapurlega árangri, að
þeir sýnast verða í vaxandi mæli alveg eins.
Framleiðslan er að stórum hluta að nálgast
þá niðurstöðu, að bflamir verði álíka spenn-
andi og kæliskápar eða þvottavélar. Þá er
átt við hina almennu fjöldaframleiðslu; að
sjálfsögðu á þetta ekki við um bfla í dýrari
verðflokkum og svo eru framleiddir í litlum
upplögum bflar fyrir allskonar sérþarfír og
þá með sérstæðu útliti, sumir jafnvel hand-
smíðaðir. Það hefur einnig orðið vinsælt,
einkum í Evrópu, að sérstök verkstæði flikka
dálítið uppá bfla eins og Benz og BMW;
gera þá vígalega eða „töff“ eins og það
heitir núna.
Of SérstæðirTil Að
Verða Fyrirmynd
Merkilegt er það, að sumum tímamótabfl-
um hefur ekki tekizt að skapa tízku, eða
verða almenn fyrirmynd. Volkswagen hins
snjalla Ferdinands Porsche var slflcur tíma-
mótabíll, byggður á sjónrænni hugmynd um
lága loftmótstöðu. Sigurganga hans var
með ólíkindum og ugglaust er Bjallan ein-
hver merkasti bíll, sem framleiddur hefur
verið. En hann varð ekki almenn fyrirmynd
í smábflaiðnaðinum. Aðrir, sem kepptu við
hann, voru með mun meira kassalagi,
smærri gerðimar af Renault, Fiat, Austin
mini svo og þeir japönsku. Og svo fór eins
og allir vita, að Volkswagen yfírgaf bjölluna
og gekk til móts við keppinauta sína.
Citroen DS frá 1956 var annar tíma-
mótabíll, langt á undan sinni samtíð,
framdrifínn með vökvaijöðrun og eins og
skutla í útliti borið saman við 56-árgerðim-
ar yfirleitt. Þótt hann eignaðist hóp tryggra
aðdáenda, var hann of frábmgðinn megin-
straumi bflaframleiðslunnar og enginn
annar bílaframleiðandi reyndi að stæla
hann. Mun verri urðu þó örlög tímamótabfls-
ins Ro 80 frá NSU, sem var svo langt á
BMW 325
hlaut3stig. Þessigerð er ínýlegum búningi, þarsem áherzlan erálátleysi
og vandaðan frágang. Þótt hann sé sprækurþessi, er ekki beint verið að setja
á hann þetta viðtekna sport-útlit.
MERCEDES-BENZ 500 SEC
hlaut 3 stig. Hér er komið uppí toppinn hjá Benz. ímynd stöðugleikans er
gefín aukin straumlína íþessari sportútfærslu.
MERCEDES-BENZ 190
hlaut 3 stig. Þaðþótti djarft skrefhjá þessum framleiðanda virðulegra
lúxusbíla að gefa kost á svo litlum bíl, en það tókst ogjitli Benzinn “ hefur
orðiðafburða vinsæll.
undan sinni samtíð, að hann gæti sem bezt
staðið við hliðina á þeim framsæknustu
núna. En það var líka Wankel-vélin, sem
kálaði honum. NSU lenti svo inní Audi-
samsteypunni og ekki fráleitt að bflar eins
og Audi 100 og 8o beri keim af Ro 80.
Um svipað leyti náði amerísk bílafram-
leiðsla lengst í fáránleika; þeir bandarísku
urðu þá æði oft tveggja tonna drekar með
ónýtum sætum, allskonar spjótum og
skrauti og einhveijum alverstu aksturseigin-
leikum, sem um getur. Nú hefur mikil
breyting orðið á. Bandarísk bflaframleiðsla
hefur reynt að nálgast þá evrópsku og það
hefur haft í för með sér miklu betri aksturs-
eiginleika frá því sem áður var. Hinsvegar
hafa Bandaríkjamenn ekki að fullu og öllu
yfírgefið hugmyndina um drekann, en hafa
halaklippt þá flesta, svo þeir eru ekki ýkja
fyrirferðarmiklir. Og Japanir, sem reyndu
framan af að smíða mini-útgáfur af
amerískum bflum, hafa einnig snúið sér að
evrópskum fyrirmyndum.
í bflahönnun er Evrópa í forustuhlutverki
og að mínu mati eru nokkrir bezt teiknuðu
bflar heimsins frá Evrópulöndum. Erfítt er
að gera upp á milli þeirra beztu; þeir eru
allir glæsilega teiknaðir. Nú eru liðin 20 ár
síðan á Bítlaskeiðinu, að Bretinn hleypti
Jaguar XJ6-12 af stokkunum og það merki-
lega er, að hann hefur algerlega staðizt
tímans tönn og er jafn módeme og fallega
teiknaður og hann var þá. A þessu ári var
svo í fyrsta sinn gerð á honum smávegis
útlitsbreyting, sem er því miður ekki til
bóta og felst einna helzt í því, að kringlótt-
um framlugtum hefur verið fómað fyrir
stór, ferköntuð framljós. Sovereign-gerðin
af Jaguar heldur þó áfram í sínum fyrra
búningi.
Rennilegur er líklega það lýsingarorð,
sem flestum kemur í hug í sambandi við
Jaguarinn, en það sem einkennir hann að
öðm leyti em frábær hlutföll, mýkt í línum
og stór hjól. Ef eitthvað er gamaldags,
væri það helzt stýrið. En Bretinn vill víst
hafa sumt mátulega íhaldssamt í bflum af
þessu tagi.
ÞÝZKISKÓLINN: ÁHERZLA Á
SÉRSTAKTSVIPMÓT
Með því bezta í bflhönnun síðari ára er
líklega sú, sem birtist í Audi 100. Hann var
kjörinn bíll ársins þegar hann kom fram í
byijun þessa áratugar og líkt og gildir um
Jaguar, liggur galdurinn í einfaldleika og
formi, sem gengur upp í sjálfu sér, ef svo
mætti segja. En af þessum tveimur bflum,
Audi 100 og Jaguar XJ6-12, má draga þann
lærdóm, að stærðin ein út af fyrir sig skipt-
,ir máli. Sé reynt að þjappa þessu formi
saman líkt og gert hefiir verið með minni
gerðinni, Audi 80, glatast glæsileikinn og
það sama hygg ég að mundi eiga sér stað,
væri reynt að stytta eða minnka Jaguar.
Lengdin skiptir einnig máli fyrir útlitið á
hinum nýja BMW 728-50, sem verður að
teljast einn af þeim bflum sem hvað bezt
eru teiknaðir núna. BMW hefur alltaf farið
sér hægt í breytingum; sama gerðin hefur
verið framleidd óbreytt f áratug. Það var
8