Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.1987, Blaðsíða 10
HONDA CIVIC
fékk 2 stig og er einijapaninn sem fékk atkvæði.
Aðrar gerðir afHonda svo sem Accord ogPrelude
eru einnig frábærlega teiknaðar, en Civic erþeirra
frumiegastur.
OLDSMOBILE TORONADO
fékk eitt stig, en fáir hafa líklega séð hann hér.
Teikningin eríhöfuðatriðum sú sama ogeinkennir
aðra GM-bíia, en hérhefuraðþvíer virðist verið
tekið mið af bíium fyrr á öldinnieins og Bugatti
til dæmis.
AUDI QUATTRO 100
fékk eitt stig. Útlitið er nánast það sama og á
Audi 100 cc, sem landsmenn þekkja vel ogerein
bezt heppnaða bílhönnun síðari ára, reist á fáguðum
einfaldleika.
ALFA164
fékk eitt stig. Hann ereinn affjórum Evrópubílum,
sem aðhluta voru unnirsaman, en þessi ernýjastur
og kemur í útfærslu snillingsins Pininfarina.
AUDI80
fékk eitt stig. Þessi bíll hefur hlotið miklar vinsældir
íÞýzkalandi ogþykir vel teiknaður. Hann ermeð
lágan vindstuðul oggreinilegt að niðurstöður úr
vindgöngum hafa ráðið miklu um útlitið.
og er varla hægt að segja lengur, að hann
hafí sterk séreinkenni.
Honda Civic, Accord og Prelude sóma sér
vel í hópi bezt teiknuðu bfla heimsins, en
frumlegastur af þeim er Civic. Við fyrsta
augnakast er Prelude þó þeirra glæsilegast-
ur. Accord er einnig frábærlega teiknaður
fólksbfll og ég hygg að sú hönnun standist
tímans tönn. í nýjustu útgáfunni af Dai-
hatsu Charade hefur Civic verið hafður til
hliðsjónar; engu að síður er þessi nýi
Charade framúrskarandi vel teiknaður
smábfll. Nissan Leopard, lúxusútgáfa, sem
mun ekki vera til hér á landi, virðist eftir
myndum að dæma vera fallega teiknaður,
en gallinn er hinsvegar sá, að þar er BMW
635 stældur einum um of. Síðast en ekki
sízt vil ég nefna þann nýja Mazda 626,
hvort sem er í 5 dyra hatchback-útgáfunni
eða 2 dyra coupé-útgáfu, - og með stýri á
öllum hjólum. Hann er kannski ekki yfír-
máta frumlegur með algerlega þýzkættað
mælaborð, en engu að síður framúrskarandi
vel teiknaður bfll.
Á teikniborðum bílhönnuða er verið að
spá í framtíðina og alltaf er frumlegt útlit
að skjóta upp kollinum, en sú framtíðar-
músík nær sjaldnast alla leið á framleiðslu-
stigið. Frumlegustu hönnuðimir eru í
Evrópu og nægir að nefna Bertone, Ital
Design, Michelotti, LAD (Intemational Auto-
motive Design) Euro Design og að sjálf-
sögðu Pininfarina. Allir em þeir með nýja
og spennandi bfla í mótun. En þegar framúr-
stefnuhönnun er borin saman við eitthvað,
sem þykir gott og gamalreynt, kemst maður
í vanda. Hvor er t.d. betur teiknaður, nýja
Alfan frá Pininfarina, sem getur næstum
því talizt listaverk - eða Mercedes-Benz 500
SEC, sem kannski er glæsilegastur allra
þýzkra bfla í dýrasta verðflokki?
Þótt hallað hafí undan fæti hjá Bretum
í framleiðslu ódýrra bíla, halda þeir alltaf
sínu striki með stöðutáknin sín, Rolls og
Bentley - og miðað við að stahda í stykkinu
sem óhemjulega dýr stöðutákn, geta þeir
talizt vel teiknaðir. Nú er Bretinn hættur
að framleiða stóra Roverinn, sem var í hönn-
un á undan sinni samtíð og vemlega fallegur
bfll. Hans í stað er kominn Rover 825 Sterl-
ing í samvinnu við Honda og virðist vera
miklu venjulegri bfll en sá gamli var.
Það er líka deginum ljósara, að vel heppn-
uð bflhönnun felst ekki bara í svokölluðu
sportlegu útliti. S-klassinn frá Mercedes-
Benz hefur eitthvað allt annað til að bera,
en töframir sem þar hafa náðst, virðast
verka á jafn áhrifamikinn hátt á íslenzka
útgerðarmenn og arabíska olíufursta. Það
virðist einnig ljóst, að bflum eins og Rolls
og Benz þarf ekki að umtuma; stöðutáknið
er áhrifaríkast með lágmarksbreytingum.
Evrópa heldur fomstuhlutverki sínu í bfla-
hönnun með snillinginn Pininfarina í farar-
broddi. Hann hefur teiknað bíla fyrir Japani
og Bandaríkjamenn einnig; Cadillac Allanté
til dæmis og ítalska skólann má með réttu
kenna við hann öðmm fremur. Hinn póllinn
í evrópskri bflahönnun er þýzki skólinn með
einfaldan traustleika í fyrirrúmi. Enda þótt
þýzkir bílar hafi greinilega orðið ofaná hjá
þeim átta, sem láta álit sitt í ljós á bls. 7,
er ekki mikla lærdóma af því að draga.
Þetta var einungis gert til gamans og getur
ekki talizt marktækt nema fyrir þennan
átta manna hóp. Hitt er svo annað mál, að
allir í þessum hópi hafa fylgst vel með því
sem gerst hefur í bflahönnun og hafa mjög
ákveðnar skoðanir á því, hvaða bflar séu
bezt teiknaðir.
Enginn vafi leikur á því, að umtalsverðar
framfarir hafa orðið í bílahönnun uppá
síðkastið og margir framleiðendur virðast
gera betur en áður; samræma tæknilegar
nýungar listrænu útliti með lágum vind-
stuðli. Mörgum gengur aftur á móti ver að
halda sérstæðu svipmóti.
GÍSLI SIGURÐSSON
VOLVO 760
kom til álita fyrir útlit sem þykir hreinlegt og
svipmikið ognú hefur þessi gerð fengið litið eitt
mýkri línur að framan sem er til bóta.
HONDA ACCORD
kom til álita en fékk ekki stig. Þetta er
framúrskarandi vel teiknaður fólksbíll oghefur
sinn svip eins og allar gerðir frá Honda.
FORD SCORPIO
kom einnigtil álita. Fordfærháa einkunn fyrir
þennan glæsilega fólksbíl, sem einniger
framleiddur í Ameríku sem Ford Taurus og
Mercury Sable.
SAAB 9000
kom til álita ásamt Lancia Thema; báðirevu
framúrskarandi vel teiknaðir nútíma fólksbílar.
Saab hefurþó meiri fágun til að bera.
MAZDA 626 4ws
kom til álita ogþykir vel teiknaður með áherzlu
á fágun og einfaldleika. Þessigerð er alveg ný
með stýringu á öllum hjólum.
OPEL OMEGA 3000
kom til álita ogþykir vel teiknaður að utan sem
innan. Útlitið er evrópskt, þótt framleiðandinn sé
General Motors.