Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1988, Síða 23

Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1988, Síða 23
Útsýni yfir Sorrento við Napólí-flóa. NAPÍRI * • VíVUVIUS • POMKt SORRÍNTO • KAPBI • Frá Týról í Austurríki. Djitta Bhavn, orkídeubúgarður og brúin yfir Kwaifljótið. Siglt er með litlum bátum til kóraleyjar og hægt að virða fyrir sér lífríkið í sjónum á leiðinni. Fararstjóri er Jóhannes Reykdal. Barbados. 1. nóvember er flogið í 15 daga ferð um New York til Barbados í Karabíska hafinu. Eyjarskeggjar, sem eru flestir af afrískum upp- runa, eru um 250.000 og 100.000 búa í höfuðborginni Bridgetown. Eyjan er sjálfstætt ríki innan breska samveldisins og enska er þjóðtungan. Náttúrufegurð . og hlýtt loftslag heillar ferðamenn til Barbados. Landið er ferðamanna- land og öll aðstaða til íþróttaiðkana eða strandlífs er talin mjög góð. Tónlist eyjarskeggja, sem er sam- bland af. afrískri og karábískri menningu, þykir mjög sérstæð og heillar marga. Fjölskylduferðir Urval leggur mikla áherslu á sólareyjuna Majorka og er með beint leiguflug þangað frá maí til október. Eyjan er tilvalinn ferða- mannastaður, veðurblíða, stuttar fjarlægðir, falleg, lítil þorp og nátt- úrufegurð. Þó að Majorka hafí um árabil verið þéttsetin af ferða- mönnum, eru nokkrir staðir ós- nortnir. Þar má nefna Valldemosa með munkaklaustrið þar sem Chopin samdi mörg sín fallegustu lög og Drekahellana, sem eru eitt mesta náttúruundur Majorka. Einnig er mjög gaman að skoða sögulegar menjar höfuðborgarinn- ar Palma, heimsækja gamlar kirkj- ur og söfn og ganga um gamla borgarhlutann. Urval býður upp á eitt skemmtilegasta svæðið á eyj- unni, á ströndunum Cala Bona og Cala Millor. Gisting er í íbúðahótel- um eða í litlum raðhúsum við ströndina. Kýpur. Vikulegar ferðir eru í sumar til Kýpur. Flogið er í gegnum Lúxem- borg og hægt að dvelja þar í upp- hafí ferðar eða í ferðalok. Kýpur er mjög áhugaverður staður sem * VAiiOtMOSA Ferðablaðið er nýlega búið að kynna. Þar blandast allt saman sem flestir ferðamenn sækjast eft- ir í sólarlandaferð, einstök veðurbl- íða, náttúrufegurð, sögulegar menjar, góður matur og góð að- staða til að stunda strandlíf. Úrval býður upp á gistingu í íbúðahótel- um og allt upp í 5 stjömu hótel sem óhætt er að mæla með. Daun Eifel. Nokkur undanfarin ár hefur Úrval boðið upp á íbúðir eða rað- hús í Daun Eifel í Þýskalandi, um tveggja stunda akstur frá Lúxem- borg. Oll aðstaða er mjög góð fyr- ir bamafjölskyldur, sundlaug, allar tegundir af íþróttavöllum og íslensk bamfóstra verður á staðn- um í sumar. Daun Eifel liggur skammt frá mörgum áhugaverðum stöðum. Má þar nefna Móseldalinn með litlum hlýlegum þorpum og köstulum á hæðarbrúnum. Rínar- dalurinn með Loreley-klettinum er skammt undan. Einnig er stutt að skreppa til borgarinnnar Trier, sem var nyrsta virki Rómaveldis. í næsta nágrenni liggja ót'al gönguleiðir um fallegt skóglendi. Suður-England. Foreldrar sem hafa áhuga á Englandi og vilja að bömin fái þjálfun í ensku, fá tækifæri til að koma bömunum í sumarbúðir til Beaumont, en nýta tímann á með- \ Majorka, hinn sívinsæli sum- cala bona • arleyfisstaður cala millor • fslendinga. sa coma • e an til að ferðast um England. Í Beaumont eru starfræktar sumar- búðir fyrir böm og unglinga á aldr- inum 8-17 ára. Lágmarksdvöl þar er ein vika, en lengri dvöl nýtist betur til náms. Sumarleyfísstaðuririn, South- coast World er á boðstólum annað sumarið í röð. Hann er í útjaðri Bonor Regis á suðurströnd Eng- lands, um einnar og hálfrar klukkustundar akstur frá London. Á staðnum er fjölbreytt og góð aðstaða til hverskonar tómstunda- iðkana og ekki síður fyrir fullorðna en böm. Á svæðinu er bamaheim- ili og hægt að fá bamagæslu á kvöldin. Ítalía. 24. júní, 11. júlí og 19. ágúst verður farið til Rómar og Sorr- ento. Allar ferðimar taka um þijár vikur. Flogið er um Lúxemborg til Rómar þar sem gist er 1 fjórar nætur. I Róm em merkar fom- minjar sem flesta dreymir um að skoða. Þar ber hæst Vatikanið með Vatíkansafninu og einkakapellu páfa, Péturskirkjuna, Kapitólíum- hæðina, foma hringleikahúsið, Kolosseum og Sixtínsku kapelluna. Frá Róm er ekið til Sorrento við Napólí-flóa þar sem dvalið er í tvær vikur. Gist er í góðu hóteli með útsýni yfír Napólí-flóann. Skoðunarferðir eru til eyjunnar Kaprí þar sem Blái hellirinn er heimsóttur, upp á eldfjallið Vesúv- íus og til Pompei. Eldgos frá Vesúvíus gróf Pompei árið 79 eftir Krist. Á síðustu öld hófst þar upp- gröftur sem leiddi í ljós einn fræg- asta fomleifafund sem sögur fara af. Náttúrufegurð á þessum slóð- um hefur löngum þótt stórkostleg. Rútuferðlr um Evrópu. 5. júní er farið í 15 daga ferð um Suðaustur-Evrópu. Ekið verður um Austuiriki, Ungveijaland, Júgóslavíu, Ítalíu og Þýskaland. Gist er á ljögurra stjömu hótelum á leiðinni. Ferðin endar í Salzburg þar sem hægt er að dvelja nokkra daga. 16. ágúst hefst svo 15 daga ferð um Mið-Evrópu. Ekið verður um falleg svæði í Lúxemborg, Þýskalandi, Frakklandi og Sviss. Gist verður á góðum hótelum og hægt að framlengja dvölina í Lúx- emborg. Á eigin vegum. Úrval leggur mikla áherslu á að koma til móts við óskir þeirra sem vilja ferðast á eigin vegum og skrifstofan telur sig geta tryggt farþegum sínum bestu fáanlegu kjör á bílaleigubílum og gistingu. Mest áhersla er lögð á ferðir út frá Lúxemborg sem er miðsvæðis í Evrópu, en auðvitað er líka hægt að ferðast frá Kaupmannahöfti og Salzburg. Umferðin á meginlandi Evrópu er töluvert hraðari en hér á landi, en.þægileg og örugg. Leið- ir eru vel merktar og þeir sem vilja heldur ferðast utan hraðbrauta geta valið rólegri leiðir í gegnum sveitir og þorp. Að auki býður Úrval upp á golf- ferðir til Skotlands 14.-24. maí og til Flórída og Majorka. Ferðir fyrir eldri borgara eru 6.-28. maí og 1.-29. október til Majorka og til Danmerkur 8.-23. júní. Boðið er upp á góða gististaði á Flórída og ferðir í samvinnu við Luxair til margra sólarlanda við Miðjarðar- haf. DRSKAHELLARNm • | PALMA MA6ALLUF • ARENAL Flugfrakt innanlands h\ Vöruflutningar í lofti spara tíma og fyrirhöfn. Hraðsendingar samdægurs til flestra staða. h Eftirkröfuþjónusta tii og frá 26 stöðum. h Fraktafgreiðsla til 37staðaálandinu. ■r Fraktafgreiðsla Flugleiða Reykjavíkurflugvelli er opin ALLAVIRKA DAGA KL 8.00 TIL 18.00. Á LAUGARDÖGUM KL 8.00 TIL 12.00. Símar vöruafgreiðslu á Reykjavikurflugvelli; Skiptiborð 690100. Vörumóttaka: 690584. Vöruafhencfing: 690585. t*\ Allarupplýsingar áskrifstofum Flugleiða og hjá umboðsmönnum. FLUGLEIDIR LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27. FEBRÚAR 1988 23

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.