Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1988, Side 17
Tvíburaturaarnir Debit og
Kredit, höfuðstöðvar Deutsche
Bank, eru 155 metra háar eftir-
myndir skýjakljúfa i Dallas og
eru hluti af fjármálahverfi
Frankfurtar, sem innfæddir
kalla „Main-hattan“.
Handverksmaður fléttar
körfur úr tágum fyrir
ferðamenn í einskonar Ár-
bæjarsafni Hessen-fylkis i
Taunus-fjöllum.
Ævintýralegt og rómantiskt
landslag við Rínarfljót: vinekr-
ur, kastalar og miðaldaþorp.
Lesbók/HÓ
Turn dómkirkjunnar i
Frankfurt gnæfir yfir
framhlið „gamalla" húsa á
Römer-torginu.
Ferðamenn og innfæddir hóp-
ast á hveiju kvöldi á knæpur
og matsölustaði i Sachsenhaus-
en og skrafa þá oft yfir
eplavini, „þjóðardrykk" borg-
annnar.
Flugleiðir fljúga á ný til Frankfurt:
Heimsborg í hjarta Þýskalands
Aumingja Frankfurt. Hún er
miðstöð fjármála í Vestur-
Þýskalandi, hefur upp á fjöl-
breytt menningar- og skemmt-
analíf að bjóða, frábær söfn og
verslanir, en samt er hún fræ-
gust fyrir flugvöU þar sem þarf
ekki nema 45 mfnútur tíl að
skipta um vél.
Frankfurt hafði lengi orð á sér
að vera fráhrindandi bankaborg
þar sem menn skiptu um flugvél
eða lest, en reyndu að hafa sem
stysta viðkomu. Borgin hefur hins
vegar tekið miklum stakkaskiptum
síðustu fimmtán árin eða svo og
reyna ferðamálayfirvöld þar nú
mikið að breyta þessarri neikvæðu
ímynd, sem enn eimir eftir af í
hugum fólks.
Flugleiðir hefja beint áætlunar-
flug til Frankfurt þann 5. júní,
eftir rúma viku og munu fljúga
þangað einu sinni í viku á sunnu-
dögum í sumar og síðan á að fljúga
þangað tvisvar I viku í haust og
allt árið framvegis. Ástæðan fyrir
því að Flugleiðir hefja flug til
Frankfurt á ný er að hluta til hin-
ir miklu tengimöguleikar Frank-
furt-flugvallar - sem gera mönnum
kleift að fljúga til t.d. Afríku eða
Austurlanda flær á auðveldan hátt
- en ekki síður sú að Frankfurt
er mjög vel í sveit sett í miðju
Þýskalandi og þaðan er stutt til
margra fegurstu og merkustu
staða Þýskalands. Frankfurtar-
flugið ætti þvi að geta freistað
bæði Þjóðveija sem hyggja á ís-
landsreisu og íslendinga í Þýska-
lands- og Evrópuferðarhugleiðing-
um.
Diskótek á
flugvellinum
Þeim sem líta á Frankfurt sem
risastórt flugvélabiðskýli má virða
það til vorkunnar að flugvöllurinn
þar er frábær - eitt besta diskótek
borgarinnar er meira að segja stað-
sett þar. Frankfurt-völlur er
stærsti flugvöllur á meginlandi
Evrópu og sá þriðji stærsti í heim-
inum. Tölvustýrt 38 kílómetra
langt færibandakerfi - einstakt í
sinni röð I heiminum - sér um að
koma farangri fljótt og örugglega
á réttan stað í hinni gríðarstóru
flugstöðvarbyggingu. Alls starfa
yfír 40.000 manns á Frankfurt-
flugvelli og yfír 100 verslanir eru
í flugstöðvarbyggingunni, sem er
einu kynni mikils hluta 23 milljóna
farþega á ári af heimsborginni
Frankfurt.
Úr bankavirki í líflega
heimsborg
Frankfurt þótti fögur borg fyrr
á öldum, en í heimstyijöldinni
síðari eyðilögðust tvö af hveijum
þremur húsum í loftárásum banda-
manna. Við endurbyggingu borg-
arinnar risu steinsteypuskrímsli og
glertumar inn á milli fomra og
frægra bygginga, þar sem hús-
næðisþörf fjármálastofnana var
látin ganga fyrir fegurðarsjónar-
miðum. Fólkið flutti í úthverfin og
miðbærinn var steindauður, fyrir
utan skuggalegt klámbúlluhverfí í
kringum jámbrautarstöðina.
Nú er þetta allt breytt og gífur-
legt átak hefur verið gert til að
endurreisa gömul hús og lífga við
miðbæinn. Fyrir óvant auga er oft
erfitt að greina hvort hús eru fímm
ára gömul eða fímmhundruð ára.
Það brakar til dæmis í „fomum"
gólffjölum í Göthe-húsinu, en
æskuheimili þessa frægasta skálds
Þjóðveija er nánast endurbyggt frá
grunni út frá ljósmyndum og lýs-
ingum.
Sachsenhausen - miðstöð
skemmtanalífsins
Frankfurt-búar eru mjög án-
ægðir með hvemig til hefur tekist
við endurlífgun borgarinnar, en
einna ánægðastir em þeir með
Sachsenhausen, hinni nýju miðstöð
nætur- og skemmtanalífs í Frank-
furt. Þar era matsölustaðir, bjórkr-
ár og diskótek hlið við hlið í falleg-
um gömlum húsum (sumum
kannski nýlega byggðum!) við
steinlagðar göngugötur á „vinstri
bakka" Main-árinnar. í Sachsen-
hausen er alltaf iðandi mannlíf og
alþjóðlegt andrúmsloft, því 25%
borgarbúa eru af erlendum uppr-
una og þar á ofan bætast ferða-
menn og dátar frá stórri banda-
rískri herstöð í grenndinni. Dón-
amir halda sig hins vegar í grennd
við jámbrautarstöðina.
Ferð í Sachsenhausen er nánast
skylda fyrir hvem ferðamann I
Frankfurt. Hægt er að velja á
milli fjölda alþjóðlegra matsölu-
staða, en þeir sem hafa undrast
það hvers vegna þýsk matargerð-
arlist er ekki í sömu hávegum höfð
og t.d. frönsk eða ítölsk, geta pant-
að sér súrkálshaug með Frank-
fúrtarpylsum og feitum svínakjöts-
bitum ofaná. Slíkum kræsingum
er hægt að skola niður með bjór
hússins eða „þjóðardrykk" Frank-
furt-búa, sem þeir kalla Apfelwein
og er svalandi, léttgöróttur drykk-
ur með örlítið súra eplabragði.
Verslun og ráðstefnur
Frankfurt er mikil verslunar-
borg og fullyrða innfæddir að 1%
allrar verslunar í Þýskalandi fari
fram á Die Zeil, glæsilegri tijápr-
ýddri göngugötu í hjarta mið-
bæjarins. Verðlag er að vísu aðeins
dýrara en í mörgum öðram þýskum
borgum, en þó ekki dýrara en svo
að gestgjafar blaðamanns í Frank-
furt fullyrtu að japanskir ferða-
menn kaupi japanskar myndavélar
þar, og úrvalið er óvíða meira.
Verðskynugum íslendingum skal
bent á miklar útsölur í febrúar,
en á meðan stórar ráðstefnur era
haldnar í borginni - og Frankfurt
er ein mesta ráðstefnuborg verald-
ar - þýðir lítið að prútta við sölu-
mennina hjá Gucci og Etienne
Aigner. Rétt er að minna fólk á
að fá kvittun fyrir endurgreiðslu
söluskatts, sem flestar verslanir
bjóða upp á.
Sveitarómantík í næsta
nágrenni
Frankfurtborg hefur upp á
margt að bjóða fyrir ferðamann-
inn, en ekki era sfður athyglisverð-
ir staðir í næsta nágrenni borgar-
innar og er hægt að heimsækja
þá hvort sem er á bíl eða með
skipulögðum rútuferðum frá
Frankfurt. Beint fyrir norðan
borgina era hin skógivöxnu Taun-
us-flöll og þó að þau nái ekki
meira en 880 metra hæð er þar
mikil náttúrafegurð og friðsæl
„ekta þýsk“ sveitaþorp, sem mörg
heita Bad-eitthvað, því þar era
heitar og kaldar heilsulindir. í Bad
Homburg safnaðist allt evrópskt
kóngaslekti saman árlega fyiT á
öldum til að skafa af sér óhreinind-
in í ölkelduvatninu þar, sem mun
vera hið heilnæmasta fyrir sunnan
Snorralaug.
Áhugamenn um þýska nátt-
úrafegurð geta einnig bragðið sér
f siglingu á Rín, en frá Frankfurt
er örstutt f þorpið Rudesheim, einn
vinsælasta ferðamannastað Þýska-
lands, sem um 3 milljónir ferða-
manna heimsækja árlega. Þaðan
er siglt norður og niður Rínarfljót,
framhjá köstulum, miðaldaþorpum
og vfnekram, sem hanga utan í
bröttum hlíðum Rínardalsins, og
framhjá klettinum Loreley, sem
af völdum Heines er lfklega fræg-
asti klettur í heimi hér og ábyggi-
lega sá eini sem er skilmerkilega
merktur á þýsku og japönsku.
Spiladósir og Rínarvín
Enginn sem ferðast um Þýska-
land út frá Frankfurt ætti að láta
Rínarsiglingu og Rudesheim-heim-
sókn fram hjá sér fara, og enginn
sem kemur til Rudesheim ætti að
sleppa heimsókn í spiladósasafnið,
sérstætt og skemmtilegt safn þar
sem allt frá framstæðum spiladós-
um upp í fyrstu grammófónana
og vélknúin orgel era til sýnis og
áheymar. Önnur skylduheimsókn
er í einhvem vínkjallarann þar sem
fagmenn kenna fólki að meta hin-
ar ýmsu tegundir Rínarvína með
öllum skynfæram.
Mislíki einhveijum nýtískulegt
yfírbragð Frankfíirtborgar, með
skýjakljúfum og fímm ára gömlum
fomminjum, era tvær af fegurstu
borgum Þýskalands, háskólabær-
inn Heidelberg og heilsulindaborg-
in Wiesbaden, skammt undan.
Bandamenn hlífðu þessum borgum
við loftárásum af smekkvísi sinni,
meðal annars af því að þeir vildu
reisa bækistöðvar sínar eftir stríð
við Wiesbaden, hvað þeir og gerðu.
Þessi stutta upptalning er byggð
á fjögurra daga boðsferð blaða-
manns til Frankfurt og nágrennis
og það er ljóst að ekki er hægt
að gera jafn stórri borg góð skil á
jafn skömmum tíma. Til dæmis
gafst ekki tími til að skoða hin
fjölmörgu söfn borgarinnar, sem
munu vera með þeim bestu f
landinu og njóta góðs af þeim
mikla auði sem safnast hefur fyrir
í þessarri „höfuðborg þýska
marksins". Til þægindaauka fyrir
tímabundinn ferðalang standa um
átta söfn hlið við hlið á Safna-
stræti á vinstri bakka Main, allt
frá náttúragripasafni til kvik-
myndasögusafns. Til enn frekari
þægindaauka er Safnastræti ör-
skammt frá Sachsenhausen, þann-
ig að það er stutt að fara fyrir þá
sem hafa svalað fróðleiksþorstan-
um og vilja svala öðram þorsta.
HUGI ÓLAFSSON
Veiði-
menn
í VÖRUHÚSIVESTUR-
LANDS fæst allt sem þarf að
hafa í veiðiferðina: Matur,
allar veiðivörur, úrval af
sportfatnaði (og jafnvel sá
stórilíka).
Komið við hjá okkur í sumar
VÖRUHÚS VESTUR-
LANDS
Birgðamiðstöð veiðimannsins
Vöruhús
Vesturlands
Borgarnesi
sími 93-71 200
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. JÚNl 1988 1/